
Öllum 32 starfsmönnum fiskvinnslufyrirtækisins Agustson ehf. Í Stykkishólmi var sagt upp störfum nú um mánaðamótin. Starfsmönnum voru tilkynnt þessi tíðindi á starfsmannafundi á mánudag, segir Sigurður Ágústsson einn eiganda fyrirtækisins, í frétt á mbl.is. Uppsagnirnar koma til vegna viðvarandi rekstrarerfiðleika og tapreksturs. Þá segir í tilkynningu vegna málsins að við taki krefjandi endurskipulagningarferli með það…Lesa meira








