Fréttir

true

Fjölgað í flugskeiði á Fjórðungsmóti

Vegna fjölda áskorana hefur mótsnefnd Fjórðungsmóts Vesturlands í Borgarnesi ákveðið að opna fyrir skráningu í 100 metra skeiði og eru nú tíu pláss laus og verður keppendum í þeirri grein því fjölgað úr 20 í 30. „Skráning fer fram á Sportfeng þar sem velja þarf Hestamannafélagið Glað sem mótshaldara og þar má finna Fjórðungsmót. Keppni…Lesa meira

true

Írskir dagar á Akranesi hefjast í dag

Dagskrá írskra daga á Akranesi verður með svipuðu sniði og í fyrra. Hátíðin hefst með Álmanninum í dag miðvikudag kl. 18 og setning írskra daga verður klukkan 14 á morgun, fimmtudag. Dagskráin er ansi fjölbreytt og að sögn Fríðu Kristínar Magnúsdóttur, verkefnisstjóra Akraneskaupstaðar, hefur undirbúningurinn gengið mjög vel,  fjölmargir dagskrárliðir eru á hátíðinni og ættu…Lesa meira

true

Rekstri Bifreiðaþjónustu Harðar hætt

Í dag er síðasti dagur sem opið verður hjá Bifreiðaþjónustu Harðar við Borgarbraut 55 í Borgarnesi. Fyrirtækið hefur frá stofnun boðið upp á almenna dekkjaþjónustu auk smurþjónustu. Nú lýkur 57 ára sögu fyrirtækisins en það stofnaði Hörður Jóhannsson árið 1964 og rak á eigin kennitölu til 2005. Núverandi eigendur keyptu reksturinn af börnum Harðar eftir…Lesa meira

true

Opinn bólusetningardagur í Borgarnesi í dag

Opinn bólusetningardagur verður í Hjálmakletti í Borgarnesi í dag, miðvikudaginn 30. júní, á milli kl. 14:00 og 14:30. Bólusett verður með bóluefninu frá Janssen. Frá þessu greinir Rósa Marinósdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar á heilsugæslusviði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, á Facebook í síðustu viku. Allir ættu nú að hafa fengið boð í bólusetningu að minnsta kosti einu sinni og…Lesa meira

true

Neisti frá raflínu kveikti gróðureld

Tilkynning um gróðureld barst lögreglunni á Vesturlandi um klukkan 14:45 í gær. Hafði þá rafmagnsstaur fallið á girðingu rétt innan við Varmaland í Stafholtstungum með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í sinu. Sauðfé var á staðnum og drapst ein kind. Slökkvilið var kallað á svæðið sem og björgunarsveitarmenn með fjór- og sexhjól. Vel gekk að…Lesa meira

true

ÍA fær nýjan leikmann

Skagamenn hafa samið við hollenska varnarmanninn Wout Droste út tímabilið 2022. Wout er 32 ára reynslumikill leikmaður sem spilað hefur 350 leiki í Hollandi og alls 122 leiki í efstu deild. Einnig á hann sjö leiki fyrir hollenska U19 ára landsliðið.Lesa meira

true

Egill SH í hlutverki Rebel

Tökur á kvikmyndinni Woman at sea, sem nú fer senn að ljúka í Snæfellsbæ, hafa lífgað upp á Ólafsvík nú í júní og hafa varla farið framhjá neinum. Myndin er gerð eftir margverðlaunaðri franskri bók sem fjallar um franska ævintýrakonu sem tekur þá ákvörðun að hefja nýtt líf sem sjómaður í karllægum heimi á norðurhjara…Lesa meira

true

Danskur drengjakór á Akranesi

Det Danske Drengekor heldur tónleika í Akraneskirkju fimmtudaginn 1. júlí klukkan 19:30. Stjórnandi kórsins er Benazir Braae. Kórinn er nú á söngferðalagi um Ísland og verða tónleikarnir á Akranesi þeir fyrstu í röð tónleika kórsins. -fréttatilkynningLesa meira

true

Jafntefli í botnbaráttuleik

Skagamenn tóku á móti liði Keflavíkur á Akranesvelli í Pepsí Max deild karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn var afar mikilvægur báðum liðum og þá sérstaklega heimamönnum sem þurftu nauðsynlega á sigri að halda til þess að rífa sig af botni deildarinnar. Skagamenn byrjuðu leikinn af krafti og strax á 4. mínútu átti Alex Davey…Lesa meira

true

Gul viðvörun á norðanverðu Snæfellsnesi

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun um norðan- og norðvestanvert landið í dag, þriðjudag, og á morgun. Við Breiðafjörð er viðvörun í gildi til klukkan 12 á hádegi á morgun. „Sunnan hvassviðri eða stormur á Snæfellnesi, 15-23 m/s en hægari vindur annarsstaðar á spásvæðinu. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, að 35 m/s. Getur…Lesa meira