Fréttir

true

Ráðin skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að gengið verði frá ráðningu Sigfríðar Björnsdóttur í starf skólastjóra Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Eins og kunnugt er sagði Theodóra Þorsteinsdóttir upp starfi sínu við skólastjórn í vor. Alls bárust 15 umsóknir um stöðu skólastjóra. Sigfríður mun hefja störf 1. ágúst. Á vef Borgarbyggðar er sagt frá því að…Lesa meira

true

Þverárrétt verður flýtt um eina viku í haust

Erindi fjallskilanefndar Þverárréttar í Borgarfirði var lagt fyrir byggðarráð Borgarbyggðar í síðustu viku. Nefndin óskaði eftir því að leitum og þar með réttum í Þverárrétt haustið 2021 verði flýtt um eina viku þannig að fyrsta rétt fari fram mánudaginn 13. september í stað 20. september. „Þetta telur nefndin nauðsynlegt til þess að minnka líkur á…Lesa meira

true

Komin er út skýrsla um stangveiðina á síðasta ári

Sumarið 2020 var skráð stangveiði í ám hér á landi 45.124 laxar. Af þeim var 49,5% sleppt aftur og var heildarfjöldi landaðra laxa því 22.797. Af veiddum löxum voru 36.022 smálaxar eftir eitt ár í sjó. Alls var þyngd landaðra laxa í stangveiði 63,5 tonn sem þýðir að meðalþyngd laxa sem komu á land var…Lesa meira

true

Samþykktu vinnslutillögu að breytingu aðalskipulags í Húsafelli til kynningar

Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag um tillögu að vinnslutillögu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, sem snertir Húsafell. Lögð var fram vinnslutillaga sem dagsett er 7. júní 2021 og unnin af Alta. Í tillögunni er landnotkun skilgreind fyrir verslun, þjónustu, íbúða- og frístundabyggð sunnan þjóðvegar í Húsafelli. „Markmið breytingartillögunnar er að skilgreina landnotkun svæðisins…Lesa meira

true

Spáð hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi á morgun

Á morgun verður allhvasst á norðvestanverðu landinu. Spáð er sunnan og suðvestan 10-18 m/s og að hviður gætu farið í 30 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi fram yfir hádegi. Sömuleiðis verður hvasst í vindstrengjum við fjöll á Vestfjörðum. „Slíkur vindur gæti verið varasamur fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi,“ segir í athugasemd veðurfræðings.Lesa meira

true

ÍA mætir FH í Mjólkurbikarnum

Dregið var í hádeginu í dag í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Skagamenn voru eina liðið af Vesturlandi í pottinum og mæta þeir liði FH á heimavelli 11. eða 12. ágúst. Aðrir áhugaverðir leikir í 16-liða úrslitunum eru leikir Víkings Reykjavíkur og KR, Vestra og Þórs Akureyri og 3. deildarlið KFS, sem sló út…Lesa meira

true

Selfoss vann Víking Ólafsvík í markaleik

Selfoss og Víkingur Ólafsvík áttust við á Selfossi í Lengjudeild karla á laugardaginn í stórskemmtilegum leik. Hrvoje Tokic, fyrrum leikmaður Víkings, kom Selfyssingum yfir á tíundu mínútu og 15 mínútum síðar bætti Tokic við öðru marki og staðan orðin 2-0. Fjögur mörk komu á síðustu sex mínútum fyrri hálfleiks; Kareem Isiaka minnkaði muninn fyrir Víking…Lesa meira

true

KM náði í sitt fyrsta stig gegn Reyni Hellissandi

Reynir Hellissandi lék gegn liði KM í gær á KR vellinum í C-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu. Heimir Þór Ásgeirsson kom Reynismönnum yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks með sínu sjöunda marki í sumar. KM náði hins vegar að jafna á 82. mínútu leiksins með marki frá Luis Sanchez og fyrsta stig KM í sumar…Lesa meira

true

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull stækkaður á afmælisári

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður 28. júní árið 2001 og á því 20 ára afmæli í dag. Fjölbreytt dagskrá hefur verið í gangi undanfarna daga í þjóðgarðinum sem náði hámarki í gær þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði reglugerð um stækkun þjóðgarðsins við athöfn sem fram fór á Malarrifi. Stækkar garðurinn nú um 9%…Lesa meira

true

Sumaropnun 25. júlí en Ólafsdalshátíð um miðjan ágúst

Þrettánda Ólafsdalshátíðin í Gilsfirði verður haldin laugardaginn 14. ágúst klukkan 11.00-17.00. Að sögn Rögnvaldar Guðmundssonar, formanns Ólafsdalsfélagsins, er stefnt að skemmtilegri og fjölskylduvænni hátíð við allra hæfi, en dagskrá verður kynnt fjótlega. „Vegna mikilla framkvæmda Minjaverndar við endurreisn staðarins mun sumaropnun Ólafsdalsfélagsins ekki hefjast fyrr en sunnudaginn 25. júlí. Eftir það verður opið alla daga…Lesa meira