Fréttir

true

Fyrstu heilbrigðisgagnafræðingarnir að útskrifast frá Háskóla Íslands

Haustið 2019 varð til ný námsbraut innan Læknadeildar Háskóla Íslands í heilbrigðisgagnafræði. Samhliða var starfsheitið læknaritari breytt í heilbrigðisgagnafræðingur. Heilbrigðisgagnafræðingar hafa sérþekkingu á meðhöndlun heilbrigðisgagna; gæðastöðlum, skilvirkni skráningar og lagaumhverfi heilbrigðisþjónustunnar. Störf þeirra eru einkum á heilbrigðisstofnunum og eru mjög fjölbreytt. Þær Klara Berglind Gunnarsdóttir og Rósa Mýrdal starfa báðar sem heilbrigðisgagnafræðingar við Heilbrigðisstofnun Vesturlands…Lesa meira

true

Reynismenn töpuðu fjórða leiknum í röð

Reyni frá Hellissandi gengur ekki vel þessa dagana í C-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu. Á þriðjudagskvöldið léku þeir gegn liði Álftaness og töpuðu með fjórum mörkum gegn engu. Bragi Þór Kristinsson og Finn Axel Hansen skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins fyrir Álftanes í fyrri hálfleik og í þeim seinni bætti Andri Janusson við tveimur…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn!

Í dag fögnum við 17. júní, þjóðhátíðardegi Íslendinga. 17. júní var formlega valinn stofndagur lýðveldisins árið 1944 og fögnum við því 77 ára afmæli lýðveldisins í dag. Vegleg og skemmtileg dagskrá er um allan landshlutann í dag og er fólk hvatt til að taka þátt og hafa gaman. Skessuhorn óskar landsmönnnum öllum til hamingju með…Lesa meira

true

Norðurálsmótið í knattspyrnu hefst á morgun

Norðurálsmótið á Akranesi verður haldið dagana 17.-20. júní. Mótið er fyrir 7. flokk drengja og hefst föstudaginn 18. júní og lýkur sunnudaginn 20. júní. Einnig er mót fyrir 8. flokk drengja og stúlkna sem fer fram á Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Spilaður verður fimm manna bolti. Þátttaka á mótinu er mikil en skráðir þátttakendur eru 1.650.…Lesa meira

true

Skallagrímur vann stórsigur

Skallagrímur gjörsigraði lið Gullfálkans 9-0 í B-riðli 4. deildar á Skallagrímsvelli í Borgarnesi í gærkvöldi. Gullfálkinn var fyrir leikinn búinn að skora tvö mörk og fá á sig 26 í fjórum leikjum í riðlinum og því líklegt að mótstaðan yrði ekki mikil. Það gekk eftir því eftir að hafa skorað þrjú mörk í fyrri hálfleik…Lesa meira

true

Kári gerði jafntefli gegn ÍR

Í gærkvöldi mættust Kári og ÍR í 2. deild karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. ÍR- ingar voru meira með boltann í byrjun en það voru Káramenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins á 15. mínútu þegar Martin Montipo skoraði eftir frábæra sókn. Forysta Kára varði þó ekki lengi því ÍR-ingar tóku miðju,…Lesa meira

true

Góður sigur Skagastúlkna í Grindavík

ÍA sótti lið Grindavíkur heim í Lengjudeild kvenna í gærkvöldi en leikurinn var í 7. umferð deildarinnar. Frekar kalt var á Suðurnesjum í gær og mikill vindur sem stóð á annað markið. Heimastúlkur byrjuðu að spila undan vindi og reyndu að pressa á Skagastúlkur án þess þó að skapa sér marktækifæri. Rangstöðutaktík ÍA gekk mjög…Lesa meira

true

Alinn upp við heyskap og hyggst gera út með rúllusamstæðu

Guðmundur Grétar Bjarnason er verktaki í Hlíðarholti í Staðarsveit. Hann býr þar ásamt unnustu sinni, Veru Sól Bjarnadóttur, og nýfæddri dóttur þeirra, Bjarneyju Dögg. Hann rekur jarðvinnuverktakafyrirtækið B. Vigfússon ásamt föður sínum, Bjarna Vigfússyni, og bróður, Vigfúsi Þráni Bjarnasyni. Nóg hefur verið að gera hjá þeim síðustu ár. Þeir hafa til dæmis verið að vinna…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um rannsóknir og nýtingu þangs í Stykkishólmi

Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu milli Stykkishólmsbæjar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Veitna og Acadian Seaplants um samstarf um sjálfbæra atvinnu- og innviðauppbyggingu í Stykkishólmi í tengslum við fyrirhugaða nýtingu þangs í Breiðafirði. Með viljayfirlýsingunni er stoðum rennt undir rannsóknir og vinnslu þangs í Stykkishólmi og verður unnið að því að nýta fyrirliggjandi tækifæri til atvinnu- og…Lesa meira

true

Hefur lengi haft áhuga á ástandinu í Ísrael og Palestínu

Elín Huld Melsteð Jóhannesdóttir er Dalakona, dóttir Ásdísar Kr. Melsteð og Jóhannesar Haukssonar. Elín er í dag búsett í St. Andrews í Skotlandi og stundar mastersnám í öryggisfræðum í Mið Austurlöndum, Mið Asíu og Kákasus við University of St. Andrews. Elín lauk BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og skrifaði lokaverkefni um Al Kaída…Lesa meira