Fréttir

true

Myndasyrpa – Bláfáninn blaktir við Langasand

Bláfáninn var dreginn að húni við Langasand á Akranesi í morgun, níunda árið í röð. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að verndun á lífríki haf- og starndsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er…Lesa meira

true

Framlag Íslands sýnt í kvöld

Síðari undanriðill Eurovision söngvakeppninnar verður sýndur í kvöld kl. 19 í Ríkissjónvarpinu í beinni útsendingu frá Ahoy höllinni í Rotterdam. Þar munu 17 lönd keppa um þau tíu sæti sem eru í boði í úrslitunum á laugardaginn. Framlag Íslands; 10 Years, með Daða og Gagnamagninu verður áttunda atriði kvöldsins, en þá verður spiluð upptaka frá…Lesa meira

true

Molta fyrir íbúa í Borgarbyggð

Á vef Borgarbyggðar er sagt frá því að molta frá Íslenska gámafélaginu sé nú aðgengileg íbúum í sveitarfélaginu og er hún staðsett fyrir neðan Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi. Moltan sem um ræðir er töluvert gróf og hentar því vel í trjábeð. Ekki verður mögulegt að fá fíngerðari moltu og eins og staðan er á framleiðslu moltunnar…Lesa meira

true

Njóta góða veðursins

Hún Sara Lísa starfar sem dagmóðir á Akranesi. Þrátt fyrir að lofthitinn sé ekki hár fór hún út í góða veðrinu í morgun með börnin og smellti blaðamaður mynd þegar þau óku framhjá ritstjórnarskrifstofunni.Lesa meira

true

Kynna deiliskipulagslýsingu tveggja áfanga í Skógahverfi

Bæjarstjórn Akraness samþykkti nýlega lýsingu fyrir gerð deiliskipulags Skógahverfis sem nefndir eru áfangar 3C og 5. Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum 17. maí að skipulagsgögnin vegna þessara nýju áfanga í Skógahverfi verðir kynnt á almennum kynningarfundi. Undanfarin ár hefur meginuppbyggingarsvæði íbúðabyggðar á Akranesi verið í Skógahverfi. Rrammaskipulag hverfisins var unnið árið 2005 og…Lesa meira

true

Hollvinasamtökin minnast Bifrastarhjóna með útgáfu bókar

Í byrjun þessa mánaðar kom út bókin Nemandi minn, þar sem m.a. er gripið niður í skólaslitaræður Guðmundar Sveinssonar fyrrum skólastjóra á Bifröst og fjallað um skólann fyrstu tvo áratugina eftir flutning hans á Bifröst. Það eru Hollvinasamtök Bifrastar sem gefa bókina út til minningar um séra Guðmund sem var skólastjóri árin 1955 til 1974…Lesa meira

true

Kúla á að gera söfn aðgengilegri fyrir alla

Kúla – óstaðbundið safn, er nýsköpunarverkefni sem Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir í Borgarnesi hefur sett af stað. Verkefnið segir Guðlaug hafa sprottið upp út frá umræðu um aukna þörf á faglegri nálgun þegar kemur að safnastarfi. „Söfn eru mikilvæg varðandi rannsóknir, varðveislu gagna, fræðslu og miðlun. Söfn og sýningar eru í raun óformlegur vettvangur menntunar og…Lesa meira

true

Hopp rafskútur mættar á Akranes

Í dag var opnuð deilileiga fyrir rafskútur á Akranesi undir merkjum Hopp. Þjónustan verður opnuð sem sérleyfi en það eru Akurnesingarnir Íris Gústafsdóttir, Alexandra Jóna Hermannsdóttir og Gunnar Örn Gíslason sem standa að baki rekstrinum á Akranesi. Í tilkynningu frá Hopp á Akranesi kemur fram að opnað verður með 40 rafskútum en þessar rafskútur eru…Lesa meira

true

„Hannyrðir og tómstundir eru öllum nauðsynlegar til að öðlast innhaldsríkara líf“

Norskættaði Skagamaðurinn Marianne Ellingsen hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir handbragð sitt við útsaum, prjón, hekl, leðurgerð, þæfingu og gerð allskyns listmuna í formi brúða og dýra. Brúðurnar eru oft klæddar í þjóðbúninga þar sem öll smáatriði eru unnin af mikilli nákvæmni. „Áhugi minn á handverki gæti átt rætur að rekja til uppeldisins í Noregi. Mamma…Lesa meira

true

Nýir eigendur hyggjast auka vinnslu Eðalfisks í Borgarnesi

Eins og nýverið var greint frá í Skessuhorni hefur formlega verið gengið frá kaupum Brimilshólma ehf. á hlutafé í Eðalfiski ehf. í Borgarnesi. Brimilshólmi er sami eigendahópur og keypti Norðanfisk á Akranesi af Brimi á síðasta ári. Áform forsvarsmanna Brimilshólma eru um að auka vinnsluna á báðum stöðum. Í ljósi þess að orðrómur hefur verið…Lesa meira