
Það var létt yfir íbúum og kostgöngurum á Höfða – hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Þá var boðað til árlegrar sviðaveislu í mötuneytinu. Áður en sest var að snæðingi spilaði Gísli S Einarsson á harmonikku og söng með gestum í hátíðarsalnum og boðið var upp á kalt Brennivín fyrir þá sem það vildu.…Lesa meira








