
Nýir sóknaráætlanasamningar við átta landshlutasamtök sveitarfélaga voru undirritaðir í dag. Fulltrúar landshlutasamtakanna undirrituðu samningana í ráðherrabústaðnum við hlutaðeigandi ráðherra. Grunnframlag ríkisins til samninganna árið 2020 nemur 716 milljónum króna en með viðaukum og framlagi sveitarfélaga nema framlög alls 929 milljónum króna. Samningarnir byggja á lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir og gilda til fimm ára, 2020-2024.…Lesa meira








