Fréttir

true

Selja nýja gerð af dælu til Skotlands

Skoska sjávarútvegsfyrirtækið Denholm Seafoods hefur skrifað undir kaup á 16 tommu ValuePump dælu frá Skaganum 3X, eftir nokkurra mánaða rannsóknar- og þróunarvinnu sem fyrirtækin stóðu saman að. Um er að ræða dælu sem afkastar allt að 60 tonnum af uppsjávarfiski á klukkustund og getur dælt hráefni allt að tíu metra upp á við, að því…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun fyrir Faxaflóasvæðið í kvöld

Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna hvassviðris um suðvestan- og vestanvert landið í dag, en hvassast verður í kvöld. Spáð er suðaustan 18-25 m/s vindhraða síðdegis og 20-28 m/sek um tíma í kvöld á Suðurlandi og á Faxaflóasvæðinu. Rigning, jafnvel mikil úrkoma suðaustantil á landinu. Heldur hægari vindur á Norður- og Austurlandi fram á kvöld…Lesa meira

true

Tólf áhersluatriði flokksráðs Miðflokksins

Miðflokkurinn hélt flokksráðsfund sinn í Reykjanesbæ um helgina, þann fimmta frá stofnun flokksins. Þar voru samþykktar tólf ályktanir um áherslur flokksins þetta haustið. Nánar upplýsingar um þær má lesa á heimasíðu flokksins: Opinber stjórnsýsla og einföldun regulverks Við ætlum að lækka skatta, leggja áherslu á ráðdeild og skilvirkni ríkisrekstrar, draga úr umfangi íþyngjandi regluverks og…Lesa meira

true

Vanda Sigurgeirsdóttir hlaut viðurkenningu á degi gegn einelti

Dagur gegn einelti er í dag. Af því tilefni veitti Lilja D. Alfreðsdóttir mennta– og menningarmálaráðherra hvatningarverðlaun dags gegn einelti við hátíðlega athöfn í gær í Vatnsendaskóla í Kópavogi. Að þessu sinni hlaut Vanda Sigurgeirsdóttir verðlaunin fyrir mikilvægt framlag til rannsókna og forvarna gegn einelti auk úrlausna í einstökum eineltismálum. Henni var af því tilefni…Lesa meira

true

Hefja byggingu leiguhúsnæðis í Búðardal

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra og Kristján Sturluson sveitarstjóri Dalabyggðar, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um aðkomu stjórnvalda að uppbyggingu á leiguhúsnæði í Búðardal. Viljayfirlýsingin snýr að því að fjölga leiguíbúðum í sveitarfélaginu en mikill skortur hefur verið á íbúðarhúsnæði í Dalabyggð um lengri tíma. Jafnframt var tekin fyrsta skóflustungan að fimm leiguíbúðum sem byggja á…Lesa meira

true

Sáttasemjari ráðinn til að miðla málum

Sérstakur ráðgjafi og sáttasemjari hefur verið ráðinn til að miðla málum milli kennara og skólastjóra Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þetta kemur fram á vef Kennarasambands Íslands. Þar var greint frá því fyrir helgi að kennarar við FVA hafi hafnað samstarfi við núverandi skólameistara og myndu eingöngu sinna kennsluskyldum og samstarfi við nemendur þar til nýr…Lesa meira

true

Dæmdur fyrir skattsvik og peningaþvætti

Maður var í Héraðsdómi Vesturlands dæmdur til tíu mánaða fangelsisvistar, sem er skilorðsbundin til þriggja ára, fyrir brot gegn bókhaldslögum, skattalögum og peningaþvætti. Auk þess var honum gert að greiða 36,1 milljón króna í sekt innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins, ellegar sæta tólf mánaða fangelsisvist. Dómur var upp kveðinn í Héraðsdómi Vesturlands föstudaginn 1.…Lesa meira

true

Hvessir enn á sunnudag

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris um landið allt frá kl. 11:00 á sunnudagsmorgun til 11:00 á mánudag. Á vef Veðurstofu Íslands segir að gangi í suðaustan storm, jafnvel rok, 18-28 m/s, fyrst á suðvesturhorni landsins. Einnig má búast við snörpum vindhviðum við fjöll, frá 30-38 m/s. Fer að lægja suðvestan til…Lesa meira

true

Norræn bókmenntavika og Dagur íslenskrar tungu í Snorrastofu

Snorrastofa hefur um árabil tekið áskorun norrænu félaganna um að halda Norræna bókmenntaviku um miðjan nóvember og leggjast þannig á árar við að efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir. Áður fyrr var vikan á hendi bókasafna um öll Norðurlönd og vikan 11.-17. nóvember næstkomandi verður nú tileinkuð ofangreindu markmiði í 23. sinn. Um öll…Lesa meira

true

Hvassviðri eða stormur síðdegis

Búist er við hvassviðri eða stormi á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og í uppsveitum Borgarfjarðar frá kl. 15:00 í dag og þangað til í fyrramálið. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 m/s, einkum á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Gul viðvörun nær til alls Faxaflóasvæðisins og víðar. Á vef Veðurstofu Íslands segir að…Lesa meira