Fréttir

true

Mæla blóðsykurinn næsta laugardag

Laugardaginn 16. nóvember klukkan 13-16 mun verða boðið upp á fría blóðsykursmælingu í Bónushúsinu við Smiðjuvelli á Akranesi. Mælingin er í boði Apóteks Vesturlands, Lionsklúbbanna á Akranesi og Félags sykursjúkra á Vesturlandi. Fólk er hvatt til að nýta sér þetta.Lesa meira

true

Nýtt smáforrit metur hættuna á sjónskerðingu hjá sykursjúkum

Tæp 70% fólks með sykursýki fær augnbotnabreytingar sem afleiðingu af sjúkdómi sínum. Koma má í veg fyrir sjónskerðingu og blindu í yfir 90% tilvika með tímanlegri greiningu og meðferð. Lions hreyfingin á Íslandi hefur til fjölda ára beitt sér fyrir blóðsykursmælingum þannig að fólk sem komið er í áhættuhóp vegna sykursýki fái snemma greiningu og…Lesa meira

true

Styrkjum úthlutað til uppsetningar hraðhleðslustöðva

Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum að upphæð 227 milljónum króna til uppsetningar 43 nýrra hraðhleðslustöðva vítt og breitt um landið. Nýju stöðvarnar verða þrisvar sinnum aflmeiri en öflugustu stöðvarnar sem fyrir eru hérlendis og eiga að stuðla að hindrunarlausum ferðum rafbíla milli landshluta. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta…Lesa meira

true

Heitir nú Garða- og Saurbæjarprestakall

Á Kirkjuþingi í síðustu viku var ákveðið að nafn á sameinuðu prestakalli sunnan Skarðsheiðar verður Garða- og Saurbæjarprestakall. Að sögn séra Þráins Haraldssonar sóknarprests tekur breytingin gildi strax og auglýsing hefur birst í Lögbirtingablaðinu í þessari viku. Í Garða- og Saurbæjarprestakalli eru fjórar kirkjur; Akraneskirkja, Hallgrímskirkja í Saurbæ, Leirárkirkja og Innra-Hólmskirkja. Í sókninni eru ríflega…Lesa meira

true

Íslandsmeistararnir of stór biti

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Íslandsmeisturum Vals, 60-82, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna. Leikið var í Borgarnesi á laugardagskvöld. Leikurinn fór hægt af stað. Valskonur skoruðu fyrstu fimm stigin og þannig var staðan þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Skallagrímskonur jöfnuðu í 5-5 en eftir það tóku Valskonur góða rispu og leiddu með…Lesa meira

true

Sýknaður af árás á fyrrverandi kærustu

Karlmaður sem ákærður var fyrir að ráðast á fyrrverandi kærustu sína í maí í fyrra var sýknaður í Héraðsdómi Vesturlands á föstudag. Manninum var gefið að sök að hafa ýtt konunni niður stiga, rifið í hár hennar og skellt henni í vegg, skallað hana í höfuðið og tekið hana hálstaki. Konan hafi við það hlotið…Lesa meira

true

Verma botnsætið

Snæfellingar biðu lægri hlut gegn Sindra, 88-73, þegar liðin mættust í 1. deildkarla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Höfn í Hornafirði. Jafnræði var með liðunum framan af fyrsta leikhluta og þau skiptust á að leiða. Snæfellingar udnirtökunum yfirhöndinni seint í upphafsfjórðungnum og leiddu með 21 stigi gegn 16 að honum loknum. Heimamenn minnkuðu…Lesa meira

true

Karen í stjórn Samtaka smáframleiðenda matvæla

Samtök smáframleiðenda matvæla voru stofnuð á fundi sem fram fór á Hótel Sögu þriðjudaginn 5. nóvember síðastliðinn. Karen Jónsdóttir á Akranesi, eigandi Kaju organic, Matarbúrs Kaju og Café Kaja, var kjörin í stjórn en auk hennar sitja í stjórn Guðný Harðardóttir, Svava Hrönn Guðmundsdóttir, Þórhildur M. Jónsdóttir og Þröstur Heiðar Erlingsson. Markmið samtakanna er að…Lesa meira

true

Matarblað og Skessuhorn í fjöldreifingu í þessari viku

Miðvikudaginn 13. nóvember næstkomandi fylgir með Skessuhorni sérblað tileinkað Matarauð Vesturlands – vestlenskri matarmenningu. Það er Markaðsstofa Vesturlands sem gefur blaðið út í samráði við Sóknaráætlun Vesturlands og Skessuhorn. Þar verður verkefnið Veisla á Vesturlandi kynnt, matarþema sem stendur yfir allan nóvembermánuð en með sérstaka áherslu á tímabilið 13.-23. nóvember. Þétt dagskrá verður í gangi…Lesa meira

true

Þorsteinsvaka á Sögulofti Landnámssetursins

Á fyrsta degi októbermánaðar var í Iðnó haldinn stofnfundur nýs félags sem ber heitið Arfur Þorsteins frá Hamri. Markmið félagsins er að sýna arfleifð Þorsteins ræktarsemi sem og þeim menningararfi sem hann tók í fang sér. Félagið mun standa fyrir ýmsum viðburðum, einkum á ævislóðum Þorsteins í Borgarfirði, og á höfuðborgarsvæðinu. Fimmtudaginn 14. nóvember nk.…Lesa meira