Fréttir

true

Fyrirkomulag flokkunar á landsbyggðinni breytist

Íslandspóstur hefur breytt fyrirkomulagi við flokkun pósts á landsbyggðinni. Eftir breytinguna er allur póstur sem á að fara til dreifingar innan svæðis flokkaður frá á viðkomandi svæði. Fyrir breytinguna var allur póstur fluttur til Reykjavíkur þar sem hann var flokkaður saman með öðrum pósti í póstmiðstöð. Breytingin hefur það í för með sér að meiri…Lesa meira

true

Matarblað og Skessuhorn í fjöldreifingu í næstu viku

Miðvikudaginn 13. nóvember næstkomandi fylgir með Skessuhorni sérblað tileinkað Matarauði Vesturlands – vestlenskri matarmenningu. Það er Markaðsstofa Vesturlands sem gefur blaðið út í samráði við Sóknaráætlun Vesturlands og Skessuhorn. Þar verður verkefnið Veisla á Vesturlandi kynnt, matarþema sem stendur yfir allan nóvembermánuð en með sérstaka áherslu á tímabilið 13.-23. nóvember. Þétt dagskrá verður í gangi…Lesa meira

true

Mastur sett upp á Garpsdalsfjalli

Starfsmenn á vegum EM orku hafa unnið að uppsetningu masturs til veður- og vindmælinga á Garpsdalsfjalli, að því er fram kemur í frétt á vef Reykhólahrepps. Um er að ræða mastur sem er um 80 metra hátt, búið vindmælum og ýmsum öðrum búnaði og tekur við af SODAR tæki sem sett var upp þarna fyrir…Lesa meira

true

Litur kalkúna kom upp um ólöglegan innflutning

Matvælastofnun hefur sett flutningsbann á alla alifugla frá bænum Dísukoti í Þykkvabæ. „Ástæða flutningsbanns er meintur ólöglegur innflutningur kalkúnafrjóeggja frá Færeyjum á síðasta ári. Undan eggjunum eru komnir svartir kalkúnar sem voru í fréttum nýverið. Bannið miðar að því að koma í veg fyrir mögulega dreifingu smitsjúkdóma í aðra alifugla,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun.…Lesa meira

true

Ungbarnastofa opnuð á Kríubóli á Hellissandi

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum samhljóða að komið yrði á fót svokallaðri ungbarnastofu á leikskólanum Kríubóli á Hellissandi, sem er önnur tveggja starfsstöðva Leikskóla Snæfellsbæjar. „Um er að ræða tilraunaverkefni þar sem 12 til 18 mánaða börnum er boðin skólavist. Verkefnið hófst strax 14. október, mánudaginn eftir að bæjarstjórn afgreiddi málið á fundi…Lesa meira

true

Tónleikar á vegum Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar

Tónleikar á vegum Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar verða haldnir í Reykholtskirkju föstudaginn 15. nóvember klukkan 20:30. Á dagskánni veður fjölbreytt tónlist frá öflugum listamönnum. Fram koma að þessu sinni Soffía Björg Óðinsdóttir frá Einarsnesi og Guðmundur Ingi Þorvalsson frá Brekkukoti. Tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á og efla ungt tónlistarfólk á Vesturlandi í listsköpun…Lesa meira

true

Norræn bókmenntavika á Akranesi

Norræn bókmenntavika er verkefni á vegum Sambands Norrænu félaganna sem leitast við að efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir á Norðurlöndunum og í nágrannalöndum. Vikan á Akranesi hefst mánudaginn 11. nóvember og að venju verður Rökkurstund – upplestur fyrir fullorðna á Bókasafni Akraness. Dagskráin hefst kl 18:00. Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri Tónlistarskólans les úr…Lesa meira

true

Nýja mötuneytið tekið í notkun

Föstudagurinn 1. nóvember síðastliðinn var stór dagur í lífi starfsfólks og nemenda Grunnskólans í Borgarnesi. Þá var fyrsta máltíðin elduð í nýju eldhúsi skólans og borin á borð í matsalnum. Mikil leynd hvíldi yfir rétti dagsins, en nemendur höfðu fengið tækifæri til að leggja inn beiðni um fyrstu máltíðina. Þegar rétturinn var reiddur fram varð…Lesa meira

true

Styttan Jöklarar er komin að nýju á stall sinn

Styttan Jöklarar, minnisvarði um drukknaða sjómenn, hefur sett svip sinn á Sjómannagarðinn á Hellissandi frá því hún var sett upp árið 1974. Styttan sem er eftir Ragnar Kjartansson er eitt elsta verk eftir listamanninn. Var hún fyrir rúmu ári síðan send í bronsun til Þýskalands til fyrirtækis sem nefnist Kollinger þar sem hún var farin…Lesa meira

true

Smíðuðu dómsal í sýndarveruleika

Frumkvöðlakeppninni Gullegginu lauk með verðlaunaafhendingu 25. október síðastliðinn. Þar gerði teymið Statum sér lítið fyrir og hreppti verðlaun fyrir bestu stafrænu lausnina. Teymið skipa Vestlendingurinn Edit Ómarsdóttir, ásamt þeim Hafdísi Sæland og Helgu Margréti Ólafsdóttur. Þær útbjuggu dómsal í sýndarveruleika, sem ætlaður er þolendum kynferðisofbeldis. Þar geta þolendur stigið inn í sýndarveruleikann ásamt fagaðila og…Lesa meira