Fréttir

true

Ekki fengið greidd laun í tvo mánuði

Formaður VLFA segir starfsfólk Ísfisks í skelfilegri stöðu Staða starfsfólks Ísfisks á Akranesi er skelfileg að sögn Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness. Vilhjálmir ritar pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann svarar frétt mbl.is frá því í gær, þar sem haft var eftir Albert Svavarssyni, framkvæmdastjóra Ísfisks, að flestir þeirra rúmlega 40 starfsmanna sem sagt…Lesa meira

true

Ilmkjarnaolíur fyrir líkamlega og andlega heilsu

Elísa Valdís Einarsdóttir snyrtifræðinemi og Skagakona kynntist ilmkjarnaolíum fyrir tæplega ári þegar hún fór á kynningu. Í kjölfarið fór hún að nota olíurnar í daglegu lífi og fann að þær höfðu góð áhrif. „Í snyrtifræðináminu kynntst ég olíunum enn frekar og fór að hafa meiri áhuga á þeim og áhrifum þeirra. Ég keypti mér olíur…Lesa meira

true

Útafakstur við Sanddalsá

Umferðarslys varð við á Vesturlandsvegi við Sanddalsá laust eftir miðnætti í nótt. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún lenti á vegriði. Þaðan kastaðist bíllinn langt út fyrir veginn og er mikið skemmdur. Að sögn lögreglu er ökumaðurinn ekki talinn alvarlega slasaður, en hlaut þó einhver meiðsli af slysinu. Hann var…Lesa meira

true

Karaktersigur Skallagríms

Skallagrímskonur unnu góðan sigur á Breiðabliki, 60-48, þegar liðin mættust í sjöttu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Blikar byrjuðu leikinn betur en Skallagrímskonur sóttu í sig veðrið eftir því sem leið á upphafsfjórðunginn og leiddu með þremur stigum að honum loknum, 19-16. En annar fjórðungur Skallagrímskvenna var afleitur,…Lesa meira

true

Framleiðnisjóður og AVS rannsóknarsjóður lagðir niður

Ráðherra lét þung orð falla á Alþingi í garð Framleiðnisjóðs Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi sem felur í sér breytingu á ýmsum lögum á sviði matvæla. Fyrsta umræða um frumvarpið fór fram á mánudaginn og hefur málinu verið vísað til atvinnuveganefndar. Í frumvarpinu er meðal annars lagt til…Lesa meira

true

Naumt tap gegn Derby

Sameiginlegt lið ÍA/Kára/Skallagríms tapaði naumlega gegn Englandsmeisturum Derby County í hörkuleik í Unglingadeld UEFA. Leikið var á Víkingsvelli í Reykjavík í gærkvöldi. Bretarnir voru sterkari í upphafileiks og komust yfir á 16. mínútu. Louie Sibley fékk langa sendingu fram vinstri kantinn, fór upp að endalínu og sendi laglega sendingu út í vítateiginn á Festy Ebosele…Lesa meira

true

Fá jólabjórinn á nýjum stað

Þessa dagana er verið að undirbúa flutninga Vínbúðarinnar á Akranesi, frá Þjóðbraut 13 að Kalmansvöllum 1. Að sögn Sveins Víkings Árnasonar, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs, er stefnt að því að opna á nýjum stað fimmtudaginn 14. nóvember næstkomandi, sama dag og sala jólabjórs hefst í verslunum Vínbúðanna. Aðspurður segir Sveinn að afgreiðsla muni ekki falla niður neina…Lesa meira

true

Upplýsingamiðstöðinni verður lokað á næsta ári

Ákvörðun hefur verið tekin um að leggja af rekstur Upplýsingamiðstöðvar Vesturlands í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Var samningi um leigu húsnæðis sagt upp fyrir lok september síðastliðins en leigusamningur við Borgarland ehf., eiganda húsnæðisins, er með árs uppsagnarfresti.  Að sögn Páls S. Brynjarssonar, framkvæmdastjóra SSV, er með þessari ákvörðun verið að fylgja eftir stefnu Ferðamálastofu sem…Lesa meira

true

Matarblað og Skessuhorn í fjöldreifingu í næstu viku

Miðvikudaginn 13. nóvember næstkomandi fylgir með Skessuhorni sérblað tileinkað Matarauð Vesturlands – vestlenskri matarmenningu. Það er Markaðsstofa Vesturlands sem gefur blaðið út í samráði við Sóknaráætlun Vesturlands og Skessuhorn. Þar verður verkefnið Veisla á Vesturlandi kynnt, matarþema sem stendur yfir allan nóvembermánuð en með sérstaka áherslu á tímabilið 13.-23. nóvember. Þétt dagskrá verður í gangi…Lesa meira

true

Árlegur basar í Brákarhlíð á föstudaginn

Árlegur basar og kaffisala var haldin í Brákarhlíð í Borgarnesi síðastliðinn föstudag. Þar voru seldir munir sem heimilisfólk í Brákarhlíð hefur framleitt í félagsstarfinu og iðjunni. Allur ágóði af sölunni verður notaður til efnis- og búnaðarkaupa í vinnustofuna. Margir gerðu sér ferð í Brákarhlíð og heilsuðu upp á heimilisfólk og nældu sér í fallegt handverk,…Lesa meira