Fréttir

true

Frumsýningu frestað á Litlu Hryllingsbúðinni

Sýningum á Litlu Hryllingsbúðinni, í uppsetningu Skagaleikflokksins, seinkar um eina viku. Frumsýning verður því föstudaginn 15. nóvember. Áður auglýstar sýningar færast um eina viku. Seldir og pantaðir miðar hafa verið færðir til í takt við þá breytingu, nema að miðar á sýninguna fimmtudaginn 14. nóvember hafa verið færðir á sýningu föstudaginn 22. nóvember kl. 20:30,…Lesa meira

true

Undirbúningur á fullu fyrir útsendingu Útvarps Akraness

Allt frá árinu 1988 hefur Sundfélag Akraness staðið fyrir útvarpsdagskrá fyrstu helgina í aðventu undir nafninu Útvarp Akranes. Engin undantekning er á slíku í ár en útvarpað verður að þessu sinni dagana 29. nóvember til 1. desember. Í tilkynningu frá útvarpsstjórn segir að venju verði boðið upp á fjölbreytta dagskrá en undirbúningur er í fullum…Lesa meira

true

Góð stemning á Heima-Skaga tónlistarhátíðinni

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi var haldin á Akranesi síðastliðið föstudagskvöld. Hátíðin var haldin í tengslum við menningarhátíðina Vökudaga sem lauk svo á sunnudaginn. Á Heima-Skaga komu fram sex tónlistarmenn sem voru með tvenna tónleika hver á sex mismunandi stöðum í bænum. Tónleikarnir voru haldnir í heimahúsum, í Bárunni brugghúsi og Akraneskirkju. Tónleikagestir gátu þannig rölt á milli…Lesa meira

true

Hefur alltaf haft mikinn áhuga á innanhússhönnun

Þegar komið er inn á heimili þeirra Önnu Sólrúnar Kolbeinsdóttur og Friðriks Pálma Pálmasonar að Kjartansgötu 18 í Borgarnesi má strax og komið er inn um gættina sjá að þar býr fólk sem þykir vænt um heimilið sitt og þykir gaman að nostra við það. Inni er hlýlegt og smekklega innréttað. Í Skessuhorni sem kom…Lesa meira

true

Einstakur viðburður í Reykholtskirkju

Síðastliðið laugardagskvöld voru hátíðartónleikar í Reykholtskirkju til heiðurs Páli Guðmundssyni listamanni á Húsafelli. Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar og Reykholtskórinn undir stjórn Viðars Guðmundssonar fluttu þar hljóðmyndir Páls, „Hjartað í fjallinu“, auk nokkurra annarra verka. Hluti efnisskrárinnar hafði verið fluttur í Hafnarborg fyrr á þessu ári. Heiti tónleikanna var sótt í kvæði Sigurðar…Lesa meira

true

Enn lækka stýrivextir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósent. Meginvextir, vextir á sjö daga bundnum innlánum sem jafnan eru kallaðir stýrivextir, verða því 3% eftir lækkunina. Er þetta fimmta vaxtalækkunin frá því í maímánuði á þessu ári. Hagvaxtarhorfur á seinni hluta árs hafa versnað frá því sem spáð var í ágúst. Hagvöxtur…Lesa meira

true

Gestirnir sterkari í síðari hálfleik

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn KR, 57-81, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í Stykkishólmi í gær. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en í þeim síðari tóku gestirnir öll völd á vellinum og unnu að lokum sannfærandi sigur. KR skoraði fyrstu stig leiksins og leiddi framan af fyrsta leikhluta, en Snæfellskonur voru þó…Lesa meira

true

Mannbjörg á Breiðafirði

Mannbjörg varð þegar Blíða SH sökk norður af Langeyjum á Breiðafirði um hádegið í gær. Þrír voru um borð. Báturinn datt út úr tilkynningarskyldu stjórnsvöðvar Landhelgisgæslunnar á tólfta tímanum og skömmu síðar barst frá honum neyðarskeyti. Þá sást einnig neyðarblys á lofti. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út þegar í stað, sem og sjóbjörgunarsveitir. Skip og…Lesa meira

true

Menntasjóður námsmanna tekur við af Lánasjóðnum

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur nú lagt fram á Alþingi nýtt frumvarp um Menntasjóð námsmanna sem mun koma í stað Lánasjóðs íslenskra námsmanna.  Frumvarpið felur í sér grundvallarbreytingu á stuðningskerfi ríkisins við námsmenn, þar sem lánþegar fá 30% niðurfærslu af höfuðstól námsláns ef þeir ljúka námi innan ákveðins tíma og námsmenn með börn á…Lesa meira

true

Tilboði í Laugar rift

Kauptilboði í Laugar í Sælingsdal hefur verið rift af bjóðendum þar sem ekki náðist að fjármagna kaupin. Það voru félögin Rent-leigumiðlun og Celtic North ehf. sem áttu tilboðið, en það hljóðaði upp á 320 milljónir króna. RÚV greindi frá. Eignirnar á Laugum eru áfram í sölu, en ef ekki fæst tilboð mun sveitarstjórn endurskoða stöðuna…Lesa meira