Fréttir

true

Eldur í verksmiðju Elkem á Grundartanga

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var upp úr klukkan 6:45 í morgun kallað að verksmiðju Elkem Ísland á Grundartanga. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er eldur í skautum á fjórðu hæð verksmiðjunnar. Fólk er ekki í hættu. Slökkvilið er enn að störfum og verður fréttin uppfærð þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.Lesa meira

true

Magnús ráðinn verslunarstjóri N1 í Borgarnesi

Magnús Fjeldsted tók nýverið við starfi verslunarstjóra N1 í Borgarnesi, stærstu vegasjoppu landsins. Magnús er 46 ára Borgfirðingur, búsettur í Borgarnesi, giftur Margréti Ástrósu Helgadóttur, börn þeirra eru þrjú og eitt barnabarn nýlega komið í heiminn. Hann er viðskiptafræðingur og bakari að mennt og hefur m.a. starfað við Arionbanka, í Geirabakaríi, við veiðivörslu og um…Lesa meira

true

Fjölga rafhleðslustöðvum

Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum til uppsetningar hleðslustöðva við gististaði um land allt þar sem hægt verður að hlaða ríflega 110 rafbíla á hverjum tíma. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum. Alls verða veittir 26 styrkir til að setja upp 112 hleðslupunkta vítt og breitt um landið.…Lesa meira

true

Borgaraleg ferming á Akranesi næsta vor

Síðustu ár hefur orðið töluverð fjölgun unglinga sem kjósa að fermast borgaralega en síðastliðið vor voru 545 fermdir á vegum Siðmenntar, er það aukning um 200 unglinga frá árinu 2016. Borgaraleg ferming er óháð trú og snýst undirbúningur fermingarinnar fyrst og fremst um að kenna ungmennunum gagnrýna hugsun og almenna siðfræði. „Við erum með ellefu…Lesa meira

true

Æskulýðsstarfið í Snæfellsbæ í kærleiksverkefnum

Krakkar í æskulýðsstarfi kirkjunnar í Snæfellsbæ stóðu fyrir kærleiksmaraþoni um síðustu helgi. Tilgangurinn með því var að safna sér fyrir landsmóti ÆSKÞ sem fram fer hér í Ólafsvík um næstu helgi. Höfðu þau í lok september safnað áheitum og fóru svo um síðustu helgi og gerðu ýmis kærleiksverk. Skiptu krakkarnir sér í hópa og voru…Lesa meira

true

Manuel rekinn frá Skallagrími

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur sagt upp samningi sínum við Spánverjann Manuel Rodriguez. Frá þessu er greint í tilkynningu á Facebook-síðu Skallagríms. Manuel tók við þjálfun meistaraflokks karla í sumar og stýrði liðinu í fyrstu þremur leikjum vetrarins, sem allir töpuðust. Áður hafði Manuel þjálfað kvennalið Skallagríms með góðum árangri, frá 2015 til 2017. Atli Aðalsteinsson, sem…Lesa meira

true

Öflugri á lokamínútunum

Snæfellskonur unnu góðan sigur á Grindavík, 63-66, í hörkuleik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Grindavík í gærkvöldi. Heimaliðið hafði undirtökin lengi vel en í lokafjórðungnum sneru Snæfellskonur taflinu sér í vil og höfðu að lokum sigur. Snæfell hafði undirtökin í fyrsta leikhluta, komst mest níu stigum yfir en leiddi með þremur…Lesa meira

true

Creditinfo birtir lista yfir 36 fyrirmyndarfyrirtæki á Vesturlandi

Creditinfo veitti síðdegis í gær framúrskarandi fyrirtækjum hér á landi viðurkenningu fyrir góðan rekstur. Að þessu sinni verða 874 fyrirtæki verðlaunuð, en það er um 2% af öllum fyrirtækjum á Íslandi. Af þeim eru 36 fyrirtæki á Vesturlandi. Á meðfylgjandi lista eru þau fyrirtæki á Vesturlandi sem rata á lista Creditinfo að þessu sinni. Borgarverk…Lesa meira

true

Við flytjum á morgun

Á morgun, föstudaginn 25. október, verður skrifstofa Skessuhorns lokuð eftir hádegi. Þá verður starfsemin flutt á nýjum stað við Garðabraut 2A á Akranesi (áður skrifstofa Sjóvá), þar sem opnað verður mánudaginn 28. október. -fréttatilkynningLesa meira

true

Töpuðu á lokasprettinum

Skallagrímskonur máttu sætta sig við tap gegn KR, 68-83, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Gestirnir höfðu yfirhöndina í fyrsta leikhluta og leiddu með átta stigum að honum loknum, 17-25. Þær juku forskotið í ellefu stig í upphafi annars fjórðungs en þá tók Borgarnesliðið heldur betur…Lesa meira