Fréttir

true

Gististaðir fá styrki til uppsetningar hleðslustöðva

Eins og greint var frá í síðasta Skessuhorni hefur Orkusjóður úthlutað styrkjum til uppsetningar hleðslustöðva við gististaði um land allt þar sem hægt verður að hlaða ríflega 110 rafbíla á hverjum tíma. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum. Meðal þessara gististaða hér á Vesturlandi eru Farfuglar…Lesa meira

true

Útvarp Akraness hlaut menningarverðlaun

Menningarverðlaun Akraness 2019 voru veitt í 13. sinn í gær, en þau eru veitt árlega í tengslum við menningarhátíðina Vökudaga. Verðlaunin eru veitt þeim einstaklingum eða félagasamtökum sem þykja hafa skarað fram úr á sviði menningar í bæjarfélaginu á árinu. Menningarverðlaun Akraness 2019 komu að þessu sinni í hlut Útvarps Akraness, en Sundfélag Akraness á…Lesa meira

true

Hjartað í fjallinu

Hátíðartónleikar tileinkaðir Páli á Húsafelli sextugum ,,Hjartað í fjallinu“ er tónlistardagskrá sem flutt verður í Reykholtskirkju laugardaginn 2. nóvember nk. tileinkuð listamanninum Páli Guðmundssyni á Húsafelli sem fagnaði sextíu ára afmæli fyrr á þessu ári. Flytjendur eru Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar ásamt Reykholtskórnum undir stjórn Viðars Guðmundssonar. Ýmis hljóðfæraleikarar leika með. Meðal…Lesa meira

true

Ung Dalakona stofnaði veisluþjónustuna Moon veitingar

Rætt við kokkana Sóleyju Rós og Árdísi Evu   Sóley Rós Þórðardóttir er dóttir þeirra Ingibjargar Jóhannsdóttur frá Ási í Laxárdal í Dölum og Þórðar Svavarssonar frá Búðardal á Skarðsströnd. Sóley fæddist heima í stofunni í Búðardal á Skarðsströnd. „Það er pínu fyndin saga því pabbi minn og báðir afar mínir fæddust í þessari sömu…Lesa meira

true

Leitað hófanna í brunavörnum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku voru til umfjöllunar erindi tveggja nágrannasveitarfélaga um samstarf í brunavörnum. Til kynningar voru drög að samningi Borgarbyggðar við Skorradalshrepp um brunavarnir í Skorradal. „Drögin eru ítarleg og mjög frábreytt núverandi samning,“ segir í fundargerð. Byggðarráð lýsti yfir stuðningi sínum við að ljúka samningi á forsendum samningsins; „að því…Lesa meira

true

Lokað eftir hádegi – Við flytjum!

Í dag, föstudaginn 25. október, verður skrifstofa Skessuhorns lokuð eftir hádegi. Við flytjum allt okkar hafurtask og opnum á nýjum stað við Garðabraut 2A á Akranesi (áður skrifstofa Sjóvá) mánudaginn 28. október. -fréttatilkynningLesa meira

true

Tap gegn Vestra

Skallagrímur laut í lægra haldi gegn sterku liði Vestra, 90-110, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Vestramenn skoruðu fyrstu fimm stig leiksins áður en Skallagrímur breytti stöðunni í 6-5. Eftir það náðu gestirnir yfirhöndinni og leiddu með fimm stigum eftir fyrsta leikhluta, 20-15. Gestirnir höfðu yfirhöndina…Lesa meira

true

Seiðaeldisstöð Arctic Fish er stærsta bygging Vestfjarða

Síðastliðinn föstudag var ný seiðaeldisstöð Arctic Fish formlega opnuð í botni Tálknafjarðar. Gestum var boðið að skoða stöðina og kynna sér starfsemina. Sjö ár eru síðan undirbúningur að framkvæmdunum hófst, en byggingarnar sem nú eru risnar eru þær stærstu á Vestfjörðum, 10.300 fermetrar að flatarmáli, eða ríflega einn hektari. Vatnið endurnýjað á klukkustundarfresti Arctic Fish…Lesa meira

true

Eldur kviknaði í Elkem

Búið er að ná tökum á eldi sem kviknaði í verksmiðju Elkem á Grundartanga í morgun. Eldurinn kviknaði á fjórðu hæð verksmiðjunnar og var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út klukkan 6:45 í morgun. Búið var að slökkva eldinn um klukkan hálf níu og engin slys urðu á fólki en ekki er vitað um tjón.Lesa meira

true

Nýsköpunarstyrkjum úthlutað á Vesturlandi

Síðastliðinn miðvikudag var haldinn árlegur Nýsköpunardagur á Vesturlandi og fór hann fram í Landnámssetri Íslands í Borgarnesi. Það eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem standa fyrir viðburðinum, en við það tækifæri fer einnig fram árleg úthlutun styrkja til nýsköpunar- og sprotafyrirtækja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Alls fengu níu verkefni styrki að þessu sinni, alls að upphæð…Lesa meira