Fréttir

true

„Spennandi uppbygging framundan“

-segir Manuel Rodriguez, þjálfari karlaliðs Skallagríms Manuel Rodriguez er kominn í Borgarnes og mun þjálfa karlalið Skallagríms í 1. deildinni á komandi vetri. Manuel þekkja Borgnesingar vel. Hann þjálfaði kvennalið Skallagríms frá 2015-2017 með góðum árangri, kom liðinu upp í úrvalsdeild og leiddi það í úrslit bikarsins og í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn. Hann segist ánægður…Lesa meira

true

„Aðalmarkmiðið að búa til góða leikmenn“

– segir Vladimir Ivankovic, þjálfari karlaliðs Snæfells   „Ég held að við verðum betri en á síðasta ári. Við höfum bætt okkur á stöðum þar sem við vorum í vandræðum í fyrra, eins og undir körfunni, fengum leikmenn til að leysa þær stöður. Að því sögðu erum við ennþá með mjög ungt lið. Strákarnir í…Lesa meira

true

Umhverfismál sérstakt þema á haustþingi SSV

Haustþing Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi var haldið í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík síðastiðinn miðvikudag. Þar voru saman komnir fulltrúar sveitarfélaganna í landshlutanum, ásamt starfsfólki SSV, til að ræða málefni landshlutans. Blaðamaður Skessuhorns var á staðnum og verður hér stiklað á mjög stóru um það sem fram fór á þinginu. Fyrir hádegi var fjárhagsáætlun SSV fyrir…Lesa meira

true

Halda minningu Arndísar Höllu á lofti

Arndís Halla Jóhannesdóttir, markþjálfi, þroskaþjálfi og möguleikari, fæddist 8. september 1976. Hún lést 2. febrúar 2018, 41 árs að aldri eftir nokkurra ára baráttu við krabbamein. Arndís Halla bjó lengst af á Akranesi, en einnig í Stykkishólmi á unglingsárum sínum. Hún lét eftir sig stóran hóp ættingja og vina; eiginmann, tvær dætur, foreldra, systkini og…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður innleiðir markmið Heilsueflandi samfélags

Í gær undirrituðu Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi og Alma D. Möller landlæknir samning um innleiðingu Heilsueflandi samfélags á Akranesi. Með samningnum skuldbindur Akraneskaupstaður sig til að innleiða markmið Heilsueflandi samfélags á Akranesi í samráði við Embætti landlæknis og er jafnframt 29. sveitarfélag landsins sem leggur í þessa vegferð. „Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að…Lesa meira

true

Forsetinn á forvarnardegi í Borgarnesi

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sótti Borgarnes heim í morgun. Tilefnið var hinn árlegi forvarnardagur forseta, sem haldinn er á hverju hausti í flestum grunn- og framhaldsskólum landsins. Á deginum er sjónum sérstaklega beint að unglingum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskólum. Forsetinn fékk góðar móttökur unglingastigs Grunnskólans í Borgarnesi og…Lesa meira

true

Karfan að byrja

Fimm Vesturlandslið hefja leik í Íslandsmótinu í körfuknattleik í þessari viku; kvennalið Skallagríms og Snæfells leika sinn fyrsta leik í Domino‘s deildinni í kvöld, karlalið Skallagríms og Snæfells hefja leik í 1. deild á föstudaginn og þá hóf ÍA leik í 2. deild karla síðastliðinn sunnudag. Rætt er við forsvarsmenn þessara liða í Skessuhorni vikunnar…Lesa meira

true

Lærdómssamfélagið Akranes er viðfangsefni íbúaþings í dag

Síðdegis í dag hefst íbúaþing á Akranesi sem hefur fengið heitið „Lærdómssamfélagið Akranes.” Verður það haldið í húsakynnum Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á þinginum mun verða fjallað um mennta- og frístundamál í víðasta samhengi og hvað felst í því að búa í lærdómssamfélagi. Boðið verður upp á stutta fyrirlestra, málstofur og í lokin verður farið í umræður…Lesa meira

true

Aðhyllist stefnuna um þjónandi forystu í starfi

Á fundi stjórnar Höfða, dvalar- og hjúkrunarheimilis á Akranesi í síðustu viku var samþykkt að ráða Ólínu Ingibjörgu Gunnarsdóttur hjúkrunarfræðing MLM í starf hjúkrunarforstjóra. Fjórir umsækjendur voru um starfið. Ólína Ingibjörg lærði fyrst til sjúkraliða en útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri 2007. Þá lauk hún MS-MLM, meistaranámi í forystu og stjórnun með áherslu…Lesa meira

true

Stýrivextir lækkaðir í 3,25%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í dag að lækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða þá hérleiðis 3,25%. „Samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga hélt áfram að hægja á hagvexti á fyrri hluta þessa árs. Meiri vöxtur skýrist einkum af hagstæðara framlagi utanríkisviðskipta þar sem eftirspurn beinist í meira mæli að…Lesa meira