Fréttir

true

Rataði ekki að bíl sínum í Botnsdal

Félagar í Björgunarfélagi Akraness voru kallaðir út í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um að maður væri villtur á gönguleiðinni að fossinum Glymi í Hvalfirði. Rataði hann ekki til baka að bílastæðum og skollið á myrkur. Fyrsti hópur björgunarfólks var kominn á svæðið um hálftíma eftir að útkall barst. Um klukkustund síðar var maðurinn fundinn…Lesa meira

true

Hluti háskóla norðurslóða

Landbúnaðarháskóli Íslands var 18. september sl. formlega samþykktur sem hluti af Háskóla norðurslóða (University of the Arctic – UARCTIC). Var það samþykkt á aðalfundi samtakanna í Stokkhólmi. Nú er LbhÍ hluti af Háskóla norðurslóða en þá opnast spennandi nýir möguleikar til nemenda- og kennaraskipta við til dæmis Alaska, Kanada, Grænland, Færeyjar, Rússland og Norðurlönd ásamt…Lesa meira

true

Ætla að opna gistihús og kolefnisjafna allan reksturinn

Lundarreykjadalur skartaði sínu fegursta þegar blaðamaður Skessuhorns átti þar leið um á fimmtudaginn í liðinni viku. Ferðinni var heitið að Tungufelli í heimsókn til þeirra Þórarins Svavarssonar og Hjördísar Geirdal. Tungufell stendur í dal innarlega í Lundarreykjadal og var það ævintýri líkast að aka heim að bænum. Allt í kringum hús þeirra hjóna voru tré…Lesa meira

true

Vegagerðin í vetrargírinn

Á heimasíðu Vegagerðarinnar er það tekið fram að frá og með deginum í gær, 1. október, er umverðaþjónusta Vegagerðarinnar komin í vetrargírinn. Það þýðir að upplýsingasíminn 1777 er opinn frá kl. 06:30 til 22:00 alla daga. Þá er hægt að fylgjast með á heimasíðu Vegagerðarinnar, vegagerdin.is, og á Twitter síðu þeirra undir #færðin.Lesa meira

true

Þrjár Ingibjargir renna í eina á tónleikum í Stykkishólmi

Ingibjargir verða í Stykkishólmskirkju með tónleika næstkomandi sunnudag, 6. október, klukkan 16:00. Það eru þær Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir sem ætla að láta „þrjár Ingibjargir renna saman í eina konu, einn hugarheim, einn hljóm,“ eins og segir í tilkynningu. Þær ætla þær að flytja lög við ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur, sem er…Lesa meira

true

Flatey talin fallegasta eyja veraldar

Flatey á Breiðafirði er að mati álitsgjafa ferðaþjónustusíðunnar Bigseven-Travel besta eyja í heimi. Bigseven-Travel birti nýverið lista yfir þær 50 eyjar Jarðar sem fólk ætti helst að koma til, en tæplega sex þúsund manns tóku þátt í könnuninni auk starfsfólks miðilsins og fleiri álitsgjafa. Flatey á Breiðafirði lenti í fyrsta sæti á listanum og er…Lesa meira

true

Eldur kom upp í hesthúsi

Eldur kom upp í hesthúsi við Eskiholt í Borgarhreppi í morgun. Búið var að slökkva eldinn þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Útlit er fyrir að kviknað hafi í út frá blásara. Engar skepnur voru í húsinu þegar eldsins varð vart, þar sem verið er að vinna að endurbótum á því. Ekki varð heldur mikið eignatjón…Lesa meira

true

Bleika slaufan að þessu sinni hálsmen

Í dag hefst árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan, undir slagorðinu „Þú ert ekki ein“. Í átakinu er lögð áhersla á mikilvægi stuðnings og vináttu þegar kona greinist með krabbamein, þegar tilveran breytist snögglega og við tekur tími sem getur reynst afar erfiður. Stuðningur fjölskyldu og vina skiptir miklu máli í öllu ferlinu, allt…Lesa meira

true

Runólfur SH 135 kemur til heimahafnar

Útgerð Guðmundar Runólfssonar hf festu kaup á nýju skipi fyrr á árinu og í dag, þriðjudaginn 1. október kom það loks til heimahafnar. Það var blíðskaparveður er Runólfur SH 135 sigldi inn fjörðinn sem skartaði sínu fegursta. „Runólfur SH 135 er fjórða skipið með þessu nafni í eigu fjölskyldunnar,“ sagði Guðmundur Smári Guðmundsson framkvæmdastjóri í…Lesa meira

true

Kvartlaus október í Borgarbyggð

Borgarbyggð – heilsueflandi samfélag hefur sett fram áskorun á Facebook síðu sinni undir yfirskriftinni „Kvartlaus október“. Með áskoruninni eru íbúar hvattir til að hreinsa hugann af ómeðvitaðri neikvæðni með því að kvarta ekki í 31 dag samfleytt. Reglurnar snúast um að kvarta ekki, og á það við um allar neikvæðar athugasemdir í kvörtunartón eða baktal…Lesa meira