Fréttir

true

Minni veiðiráðgjöf í síld en aukin í makríl

Í dag veitti Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráðgjöf um veiðar ársins 2020 fyrir norsk-íslenska síld, makríl og kolmunna. Í norsk-íslenskri vorgotssíld leggur ICES til, í samræmi við samþykkta aflareglu strandríkja, að afli ársins 2020 verði ekki meiri en 526 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 589 þúsund tonn og er því um að ræða 11% lækkun í…Lesa meira

true

Orkuveitan fjárfestir fyrir 102 milljarða

Fjárhagsspá Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið kynnt. Þar kemur m.a. fram að næstu sex árin verði 102 milljörðum króna varið í viðhalds- og nýfjárfestingar á vegum samstæðunnar, sem nær auk móðurfyrirtækisins til Veitna, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu Reykjavíkur. Fjárhagsspá samstæðu OR fyrir árabilið 2020-2025 var samþykkt af stjórn OR síðastliðinn mánudag og fer til umfjöllunar sem…Lesa meira

true

Leitað endurfjármögnunar hjá Byggðastofnun

Frá því var greint í gær að tæplega sextíu starfsmönnum Ísfisks á Akranesi hafi verið sagt upp störfum. Uppsagnirnar eru varúðarráðstöfun fyrirtækisins ef ekki tekst að endurfjármagna fyrirtækið, en að því er stefnt fyrir miðjan þennan mánuð. Fram hefur komið að rekstur Ísfisks hefur gengið illa eftir að starfsemin fluttist á Akranes úr Kársnesinu í…Lesa meira

true

RKÍ heldur kynningarfund um viðbragðshóp í Borgarnesi

Rauði Krossinn í Borgarfirði býður til kynningar á viðbragðshópi sem nýverið tók til starfa. Hópnum er ætlað að sinna sálrænni skyndihjálp, viðurkenndu verklagi á vettvangi áfalla með það markmið að styðja einstaklinga til fyrra jafnvægis og sjálfstæðis. Einnig verður farið stuttlega yfir hvað átt er við með áfalli og hugsanlega afleiðingar áfalla, sögu áfallahjálpar á…Lesa meira

true

Leituðu á Faxaflóa að sæþotu sem saknað var

Sjóbjörgunarsveitir við Faxaflóa sem og stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust í gærkvöldi boð um að hefja leit að konu á sæþotu, sem siglt hafði frá Akranesi og áleiðis til Reykjavíkur, án þess að skila sér á áfangastað. Samferðamaður konunnar var þá kominn í land en ekkert bólaði á konunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þegar í stað send í…Lesa meira

true

Aflétting hundabanns frá Noregi

Viku af september var innflutningur hunda frá Noregi bannaður tímabundið vegna alvarlegra veikinda í hundum þar í landi af óþekktum orsökum. Norska matvælastofnunin, Mattilsynet, hefur nú upplýst að veikindin séu í rénun og að ekki sé sérstök ástæða til þess að forðast samgang á milli hunda þar sem flest bendir til þess að sjúkdómurinn smitist…Lesa meira

true

Þróttur átti lægsta boð í sjóvörn við Breiðina

Vegagerðin óskaði nýverið eftir tilboðum í hleðslu 180 metra sjóvarnar við Breiðina á Akranesi. Tilboð voru opnuð fimmtudaginn 26. september. Helstu magntölur eru útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.000 m3 og upptekt og endurröðun grjóts um 1.000 m3 og skal verkinu vera lokið 1. mars 2020. Kostnaðaráætlun í verkið hljóðaði upp á um 17,5…Lesa meira

true

Sextíu starfsmönnum Ísfisks á Akranesi sagt upp

Frá því er greint á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness fyrr í dag að upp undir 60 starfsmönnum fiskvinnslunnar Ísfisks á Akranesi hafi verið sagt upp störfum. Haldinn var fundur með starfsfólki og fulltrúum VLFA í dag. „Á þessum fundi þurfti fyrirtækið að tilkynna að öllum starfsmönnum væri sagt upp störfum frá og með mánaðamótum, en um…Lesa meira

true

Kindasögur í bók

Bókaútgáfan Sæmundur hefur gefið út bókina Kindasögur eftir þá Guðjón Ragnar Jónasson og Aðalstein Eyþórsson. Í kynningu segir: „Íslenska sauðkindin er harðger, úrræðagóð og ævintýragjörn, það vita allir sem hana þekkja. Í þessari bók eru rifjaðar upp sögur af íslenskum kindum að fornu og nýju, afrekum þeirra, uppátækjum og viðureignum við óblíða náttúru og kappsfulla…Lesa meira

true

Hrútadagur framundan á Raufarhöfn

Hrútadagur verður haldinn í Faxahöllinni á Raufarhöfn um komandi helgi, nú í fjórtánda sinn. Þá verður þessi fornfrægi síldarbær enn á ný miðja alheimsins. Margur kemur kannski til með að spyrja sig, hversvegna Raufarhöfn? En einföld og gild skýring er á því. Raufarhöfn er miðsvæðis á milli Þistilfjarðar og Öxafjarðar sem er hreint og riðulaust…Lesa meira