Fréttir

true

Mikill vöxtur í fiskeldi

Fiskeldi hefur vaxið mikið á undanförnum árum og verði vöxtur á næstu árum, einkum í laxeldi, jafnmikill og útlit er fyrir mun hann hafa teljandi áhrif í þjóðhagslegu samhengi. Það sem af er ári er vöxtur í útflutningsverðmæti milli ára um 60%. Útflutningsverðmæti fiskeldis verður líklega hátt í 20 milljarðar króna í ár eða sem…Lesa meira

true

Vesturlandsliðum spáð misjöfnu gengi

Spá þjálfara, fyrirliða og formanna vegna komandi tímabils í Domino‘s deildum karla og kvenna, sem og 1. deildum karla og kvenna var birt á kynningarfundi deildanna í hádeginu í dag. Snæfelli er spáð 5. sæti í Domino‘s deild kvenna en Skallagrímskonum 7. sæti. Í 1. deild karla er Skallagrími spáð 8. og næstneðsta sætinu en…Lesa meira

true

LbhÍ nú hluti háskóla norðurslóða

Landbúnaðarháskóli Íslands var 18. september sl. formlega samþykktur sem hluti af Háskóla norðurslóða (University of the Arctic – UARCTIC). Var það samþykkt á aðalfundi samtakanna í Stokkhólmi. Nú er LbhÍ hluti af Háskóla norðurslóða en þá opnast spennandi nýir möguleikar til nemenda- og kennaraskipta við til dæmis Alaska, Kanada, Grænland, Færeyjar, Rússland og Norðurlönd ásamt…Lesa meira

true

Steinlágu í lokaleiknum

Skagamenn steinlágu gegn Víkingi R., 1-5, þegar liðin mættust í lokaleik Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi á laugardaginn. Það var hvorki barist við fall né um titla í leiknum á Akranesvelli, en það kom þó ekki í veg fyrir að bæði lið mættu ákveðin til leiks. Skagamenn voru ákafir í…Lesa meira

true

Borgarverk bauð lægst í Norðurgarð í Grundarfirði

Síðastliðinn föstudag voru opnuð tilboð í lengingu Norðurgarðs í Grundarfjarðarhöfn. Það er Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar sem óskaði eftir tilboðum í verkið en í því felst m.a. 90 m langur bermugarður, rekstur 122 stálþilsplatna, steypa ankerisplatna auk uppsetningar staga og festinga, jarðvinna og festing polla og fríholta. Bygging bermugarðs skal lokið eigi síðar en 15. janúar 2020,…Lesa meira

true

Stofnfundur félagsins Arfur Þorsteins frá Hamri

Annað kvöld, þriðjudaginn 1. október, verður haldinn stofnfundur félags sem lagður hefur verið grunnur að undir heitinu Arfur Þorsteins frá Hamri.  Stofnfundurinn verður haldinn í Iðnó í Reykjavík – í sal á annarri hæð. Húsið verður opnað kl. 19:30. Fundurinn hefst klukkan 20 og stendur í um klukkustund. Fundarstörf verða krydduð með ljóðum skáldsins. Allir eru…Lesa meira

true

Beljur í búð verðlaunaverkefni Plastaþons

Hugmyndin „Beljur í búð“ stóð uppi sem sigurvegari í Plastaþoni Umhverfisstofnunar og Plastlauss septembers sem fram fór um liðna helgi. Sjö teymi unnu að lausnum á plastvandanum en fjölbreyttur hópur fólks tók þátt í viðburðinum. Hugmyndin á bak við Beljur í búð er sú að setja upp sjálfsafgreiðsluvélar fyrir mjólkurvörur í verslunum þannig að kaupandinn…Lesa meira

true

Tímabilið hafið hjá blakliði Grundarfjarðar

Meistaraflokkur kvenna í blaki í Grundarfirði hóf tímabilið með heimaleik fimmtudaginn 26. september síðastliðinn. Liðið vann sér þátttökurétt í næstefstu deild eftir góðan árangur í annarri deildinni í fyrra. UMFG tók á móti b-liði Aftureldingar í sínum fyrsta leik og fyrsta hrinan var jöfn og spennandi. Liðin skiptust á að taka forystu í hrinunni en…Lesa meira

true

Söguskilti sett upp við Lambhúsasund

Í dag var afhjúpað nýtt söguskilti við Lambhúsasund á Akranesi. Það sem einkum heyrir til tíðinda við það er að um leið var 700. myndinni komið á framfæri á skiltum sem er nú að fínna víðsvegar um bæjarfélagið, en Haraldur Sturlaugsson hefur haft þetta áhugamál um 14 ára skeið. „Að þessum 700 uppsetningum hafa komið,…Lesa meira

true

Tvö ný skip komin til Grundarfjarðar

Í gær, laugardaginn 28. september, komu tvö ný skip til heimahafnar í Grundarfirði. Þarna voru útgerðirnar FISK Seafood og Soffanías Cecilsson að endurnýja Farsæl og Sigurborgu en nýju skipin munu bera sömu nöfn. Farsæll SH 30 og Sigurborg SH 12 verða gerð út frá Grundarfirði og er þeim fyrst og fremst ætlað að sinna því…Lesa meira