
Aurskriða lokaði veginum yst á Skarðsströnd á fimmtudag. Skriðan féll undir Melahlíð, milli Ballarár og Klofnings. „Það er ofboðslegt vatnsveður búið að vera hérna, allar ár alveg kolmórauðar við alla bakka,“ sagði Trausti Bjarnason, bóndi á Á, í samtali við Skessuhorn. Hann var á ferðinni þennan dag og kvaðst einnig hafa séð spýju úr hlíðinni…Lesa meira








