Fréttir

true

Skellur í síðasta leiknum

Skallagrímsmenn fengu skell í lokaleik 3. deildar karla í knattspyrnu þegar þeir töpuðu 5-0 gegn Reyni S. á útivelli síðastliðinn laugardag. Elfar Máni Bragason kom Suðurnesjaliðinu yfir á 16. mínútu og Gauti Þorvarðarson bætti öðru marki við á 24. mínútu. Magnús Magnússon skoraði þriðja mark Reynis á 36. mínútu og heimamenn leiddu 3-0 í hálfleik.…Lesa meira

true

Frístundamiðstöð fær nafn

Bæjarráð Akraness hafði nafngift frístundamiðstöðvarinnar við Garðavöll til umræðu á fundi sínum nýverið. Ákveðið hefur verið að henni skuli gefið formlegt nafn, en hingað til hefur aðeins verið talað um Frístundamiðstöðina við Garðavöll. Bæjarstjóra var falið að setja saman hugmyndir í tengslum við formlega nafngift miðstöðvarinnar.Lesa meira

true

Breskur leikmaður og þrjár ungar í Skallagrím

Breska körfuknattleikskonan Charlotte Thomas-Rowe mun leika með Skallagrími í Domino‘s deildinni á komandi vetri. Charlotte er 24 ára að aldri og leikur stöðu bakvarðar. Hún lék með Skólaliði Grande Prairie Regional Collage í Alberta fylki í Kanada árið 2016 og hefur síðan þá leikið með félagsliðum bæði á Ítalíu og í Danmörku. Síðasta keppnistímabil lék…Lesa meira

true

Fálka komið til bjargar

Síðastliðin fimmtudag fór Rebecca C.K. Ostenfeld í björgunarferð í Dölum eftir að hafa fengið tilkynningu um fálka sem virtist þurfa aðhlynningar. Fálkinn dvaldi fyrst um sinn hjá Rebeccu á Hólum þar sem hún rekur húsdýragarðinn Hólar Farm en Rebecca var í stöðugu sambandi við Náttúrufræðistofnun vegna ummönnunar fuglsins. Á sunnudag var fálkinn fluttur í Húsdýragarðinn…Lesa meira

true

Ejub kveður Víking Ó.

Knattspyrnuþjálfarinn Ejub Purisevic er hættur sem þjálfari Víkings Ó. eftir að hafa starfað hjá félaginu og þjálfað meistaraflokk karla nær samfellt í 17 ár. „Knattspyrnudeild Víkings Ó. og Ejub Purisevic hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að ljúka 17 ára farsælu samstarfi sínu,“ segir í tilkynningu frá Víkingi Ó. Ejub kom fyrst til Víkings árið 2003…Lesa meira

true

Kaupfélag Borgfirðinga opnar nýjan veitingastað í dag

Kaupfélag Borgfirðinga opnar klukkan 11 í dag nýjan veitingastað og dagvöruverslun við Digranesgötu í Borgarnesi. Hefur staðurinn fengið nafnð Food Station. Þær Guðrún Sigurjónsdóttir formaður stjórnar KB og Margrét Katrín Guðnadóttir kaupfélagsstjóri munu klippa á borða og opna staðinn formlega. Í boði verður kaffi og kaka í tilefni dagsins og þá verður hægt að kaupa…Lesa meira

true

Landlæknir birtir ábendingar vegna rafrettunotkunar

Nýverið greindist lungnasjúkdómur hjá unglingi hér á landi þar sem grunur leikur á að veikindin tengist notkun á rafrettum. Birtingarmynd sjúkdómsins svipar til þess sem lýst hefur verið í Bandaríkjunum. Viðkomandi er nú á batavegi. Frá þessu er greint í tilkynningu frá landlækni þar sem birtar eru ábendingar til almennings, skólastjórnenda og lækna vegna gruns…Lesa meira

true

Tillögur um hvernig auka megi félagsþátttöku ungmenna

Skýrslan „NABO-social inclusion of youth in Iceland“ var birt fyrir skemmstu en þar er gerð grein fyrir félagslegri þátttöku ungmenna á Íslandi. Við gerð hennar var rætt við 38 íslensk ungmenni á aldrinum 18-24 ára með það að markmiði að finna leiðir til að stuðla að aukinni félagslegri þátttöku þeirra. Verkefnið miðar að því að…Lesa meira

true

Árni Snær áfram hjá ÍA

Árni Snær Ólafsson, markvörður og fyrirliði ÍA, hefur endurnýjað samning sinn við liðið til tveggja ára. Mun hann því leika með Skagamönnum út keppnistímabilið 2021. Árni Snær er fæddur árið 1991 og á að baki 150 leiki með meistaraflokki ÍA í deild og bikar. Hann hefur leikið veigamikið hlutverk í liði ÍA um langa hríð…Lesa meira

true

Lilja endurkjörin formaður SUF

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir hlaut endurkjör sem formaður Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF) sem fram fór um helgina. Verður þetta annað starfsárið hennar sem formaður. Lilja er varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi ásamt því að hafa sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Lilja er 23 ára háskólanemi, búsett í Bakkakoti í Stafholtstungum ásamt Ólafi Daða Birgissyni unnusta sínum og…Lesa meira