Fréttir

true

Jarðskrið á Skarðsstrandarvegi

Aurskriða lokaði veginum yst á Skarðsströnd á fimmtudag. Skriðan féll undir Melahlíð, milli Ballarár og Klofnings. „Það er ofboðslegt vatnsveður búið að vera hérna, allar ár alveg kolmórauðar við alla bakka,“ sagði Trausti Bjarnason, bóndi á Á, í samtali við Skessuhorn. Hann var á ferðinni þennan dag og kvaðst einnig hafa séð spýju úr hlíðinni…Lesa meira

true

Kepptu í línuklifri á Akranesi

Íslansdsmeistaramótið í línuklifri var haldið í klifuraðstöðu Smiðjuloftsins á Akranesi síðastliðinn laugardag. Sjö klifrarar frá ÍA tóku þátt í mótinu og tveir þeirra unnu til verðlauna. Sylvía Þórðarsdóttir hafnaði í öðru sæti í flokki C eftir mikla baráttu. Það var ekki fyrr en eftir fjóra bráðabana að Sylvía náði að tryggja sér silfurverðlaunin. Brimrún Eir…Lesa meira

true

Ýmis verkefni til að sporna gegn matarsóun

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að hrinda af stað verkefnum sem ætlað er að vinna gegn matarsóun hér á landi. Verkefnin eru liður í aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum og verða í umsjón Umhverfisstofnunar. Meðal aðgerða er könnun á viðhorfi Íslendinga til matarsóunar en sambærilegar kannanir voru gerðar árin 2015 og 2017. Þá…Lesa meira

true

Sneri við taflinu í Frakklandi

Valdís Þóra Jónsdóttir hafnaði í 19. sæti á opna Lacoste Ladies mótinu í golfi sem fram fór í Frakklandi um helgina. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð kvenna í Evrópu. Valdís byrjaði mótið illa, fór fyrsta hringinn á 79 höggum, eða átta yfir pari. Hún náði heldur betur að snúavið taflinu á öðrum…Lesa meira

true

Tap í lokaleiknum

Skagakonur máttu játa sig sigraðar gegn Tindastóli, 4-1, í lokaleik Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Sauðárkróki á föstudagskvöld. Fyrir leikinn hafði Tindastóll möguleika á að tryggja sér sæti í efstu deild, að því gefnu að úrslit annarra leikja yrðu liðinu hagstæð. Skagakonur sigldu hins vegar lygnan sjó, búnar að bjarga sér frá…Lesa meira

true

Ráðinn til að bæta þjónustuupplifun viðskiptavina

Brynjar Smári Rúnarsson hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns Þjónustuupplifunar hjá Íslandspósti. „Um er að ræða nýja stöðu innan fyrirtækisins en eitt helsta markmið Póstsins er nú að bæta þjónustu við viðskiptavini. Í starfinu mun hann nálgast öll verkefni út frá sjónarmiði viðskiptavina og tryggja að rödd þeirra heyrist inn í fyrirtækið við allar ákvarðanir.…Lesa meira

true

Kvöddu mótið með stæl

Víkingur Ó. sigraði Njarðvík í lokaleik Inkasso deildar karla í knattspyru á Ólafsvíkurvelli á laugardag. Leikurinn var mikill markaleikur og þegar lokaflautan gall höfðu Ólafsvíkingar skorað fjögur mörk gegn tveimur mörkum gestanna. Heimamenn voru mun sterkari í fyrri hálfleik. Þeir komust yfir strax á 5. mínútu leiksins þegar Vignir Snær Stefánsson skoraði eftir hornspyrnu Grétars…Lesa meira

true

Landinn á sólarhrings flakki um landið

Frá því klukkan 20:15 í gærkveldi hefur Ríkissjónvarpið verið með beina útsendingu á sólarhrings löngum hátíðarþætti Landans. Fimm teymi dagskrárgerðarfólks eru á ferð víðsvegar um landið og er sent út beint frá völdum stöðum. Komið er við hjá fólki í leik og starfi. Hér á Vesturlandi kom dagskrárgerðarfólk í gærkvöldi t.d. við á Hellissandi, í…Lesa meira

true

Jöfnuðu á ögurstundu

Skagamenn gerðu jafntefli við HK, 1-1, þegar liðin mættust í næstsíðustu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Kópavogi í gær. Leikurinn byrjaði fjörlega og HK-ingar voru heilt yfir frískari framan af fyrri hálfleik. Emil Atlason komst einn í gegn eftir mistök í vörn ÍA eftir rúmlega korters leik en skaut beint…Lesa meira

true

Samdráttur í afþreyingaferðum í ágúst

Kortavelta erlendra ferðamanna án flugsamgangna í ágúst síðastliðnum nam 30,6 milljörðum króna og lækkaði um 2,4% á milli ára. Í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að velta í flokknum „ýmis ferðaþjónusta,“ sem inniheldur afþreyingafyrirtæki, ferðaskipuleggjendur og ferðaskrifstofur dróst í ágúst saman um 13,1% frá sama mánuði í fyrra eða um ríflega 600 milljónir króna. Í…Lesa meira