Fréttir

true

Fyrirlestur um fuglaskoðunarskýli og stígagerð

„Arkitektúr og náttúra – jákvæð áhrif hönnunar á náttúruna,“ er yfirskrift opins fyrirlestrar sem fluttur verður við LbhÍ á Hvanneyri mánudagskvöldið 23. september nk. kl. 20:30 Hann er haldinn af tilefni heimsóknar gestakennarans Tormod Amundsen. Fyrirlesturinn tekur um 40 mínútur og fer fram á ensku. Á eftir verða umræður um efnið. Þá mun Sigurjón Einarsson…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á kjúklingum merktum vörumerkjum Holta, Kjörfugls eða Krónunnar með rekjanleikanúmerunum 003-19-31-201 og 001-19-31-302. Fyrirtækið Reykjagarður ehf. hefur stöðvað dreifingu og hafið innköllun eftir greiningu salmonellu í tveimur sláturhópum í innra eftirliti fyrirtækisins. Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur: Vöruheiti: Holta, Kjörfugl eða Krónan Rekjanleikanúmer: 003-19-31-201 og 001-19-31-302 Dreifing: Birtur verður…Lesa meira

true

Framlög til framhaldsskólanna verða aukin

Framlög á hvern framhaldsskólanemenda í fullu námi hækka úr 1.732.000 kr. árið 2019 í 1.819.800 kr. árið 2020. Framlög til framhaldsskóla hafa hækkað töluvert undanfarin ár en sú hækkun mun halda sér samkvæmt fjármálaáætlun fyrir árin 2020-2024. Frá árinu 2017 hafa heildarframlög til framhaldsskólastigsins aukist um 1,3 milljarða kr. að raunvirði. Fjárlagafrumvarpið sem kynnt var…Lesa meira

true

Tap í fallbaráttuslag

Skagakonur urðu af mikilvægum stigum í botnbaráttu Inkasso deildar kvenna í knattsyrnu á föstudag. Þær töpuðu 2-0 í hörkuleik og fallbaráttuslag gegn Augnabliki á útivelli. Leikurinn bar þess merki að bæði liðin eru að berjast fyrir veru sinni í deildinni. Barátan var mikil og ljóst að hvorugt liðið ætlaði að gefa tommu eftir. Augnablikskonur fengu…Lesa meira

true

Heppnin ekki með Ólafsvíkingum

Víkingur Ó. beið lægri hlut gegn liði Magna á heimavelli, 1-2, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Sigurinn var gestunum frá Grenivík mikilvægur, en þeir eru í harðri fallbaráttu nú í lok mótsins. Víkingur siglir hins vegar lygnan sjó um miðja deildina. Ólafsvíkingar voru nálægt því að komast yfir strax…Lesa meira

true

Fyrsta haustlægðin yfirstaðin

Eftir langvarandi veðurblíðu í allt sumar um mestallt land kom loks að því að haustlægðirnar færu á kreik. Aðfararnótt laugardagsins 7. september blés hressilega að sunnan í Grundarfirði eins og víða annarsstaðar. Engar stórvægilegar skemmdir urðu fyrir utan að eitt lítið tré þoldi ekki álagið og eitt eða tvö trampólín hófu sig til flugs og…Lesa meira

true

Neyðarhnappar styrkhæfir

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð um styrki vegna hjálpartækja sem tryggir íbúum í leiguíbúðum á vegum sveitarfélaga sama rétt til greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna kaupa á neyðarhnappi og aðrir. Með reglugerðarbreytingunni er brugðist við áliti umboðsmanns Alþingis. Álitið fjallaði um kvörtun einstaklings sem var leigjandi í íbúð sveitarfélags og var synjað um styrk…Lesa meira

true

Miðstigsleikar grunnskóla á Vesturlandi

Skólaíþróttamótið Miðstigsleikar voru haldnir í Borgarnesi í síðuastu viku. Mótið er haldið í skólabyrjun ár hvert og hefur þannig verið undanfarin í 13 ár. Á mótinu kepptu nemendur frá sex skólum; Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar, Heiðarskóla, Auðarskóla, Reykhólaskóla og Laugargerðisskóla. Í ár voru um 200 nemendur sem tóku þátt í einni eða fleiri greinum.…Lesa meira

true

Ofhitnun í hænsnaskít á kjúklingabúi

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var í kvöld kallað út að kjúklingabúinu á Hurðarbaki í Svínadal. Þar rauk úr safnhaug af skít sem geymdur er í gamalli hlöðu á bænum, fjarri sjálfum uppeldishúsunum. Kjúklingar eða fólk voru því ekki í hættu. Reykköfunarmenn fóru inn í húsið og sprautuðu froðu yfir hauginn og kæfðu þannig eldinn. Að…Lesa meira

true

Lengja fæðingarorlof í áföngum upp í tólf mánuði

Til stendur að lengja fæðingarorlof foreldra og hyggst Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof nú á haustþingi. Þar verður lagt til að lengdur verði sameiginlegur réttur foreldra til fæðingarorlofs úr níu mánuðum í tólf í tveimur áföngum á árunum 2020 og 2021.…Lesa meira