Fréttir

true

Samið um gatnagerð í Bjargslandi

Í sumar bauð Borgarbyggð út gatnagerð í Bjargslandi í Borgarnesi. Tilboð voru opnuð 22. ágúst síðastliðinn. Eitt tilboð barst og var ákveðið að ganga til samninga við Borgarverk ehf. á forsendum þess. Framkvæmdirnar hefjast í haust og áætlað að þeim verði lokið 1. desember næstkomandi.Lesa meira

true

Helga Rósa er nýr verslunarstjóri KB

Í byrjun júlímánaðar tók Helga Rósa Pálsdóttir til starfa sem nýr verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Borgfirðinga við Egilsgötu í Borgarnesi. Helga Rósa er fædd í Reykjavík en ólst upp frá átta ára aldri í Neskaupstað þar sem hún bjó til ársins 2009 þegar hún flutti í Skagafjörðinn og fór til náms við Háskólann á Hólum. Eftir…Lesa meira

true

Slátrun er hafin í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey

Dilkaslátrun hófst í smáum stíl um mánaðamótin í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Nú er beðið eftir að fé heimtist af fjalli og mun aukinn þungi færast í dilkaslátrun á næstu dögum. Sem fyrr er það rekstrarfélagið Sláturhús Vesturlands ehf. sem tekur húsið á leigu en Guðjón Kristjánsson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Þá hefur Anna…Lesa meira

true

Rafmagnslaust á Skarðsströnd

Vegna spennaskipta og línuvinnu er rafmagnslaust á Skarðsströnd í Dölum milli kl. 13:00 og 16:00 í dag. Einnig verður rafmagnslaust á sama tíma á morgun og fimmtudag vegna vinnu við spenna og línur. Mögulega kemst rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Dalabyggðar.…Lesa meira

true

Lýst eftir athugasemdum vegna breikkunar Vesturlandsvegar

Vegagerðin, í samráði við Reykjavíkurborg, hefur undanfarið unnið að undirbúningi vegna breikkunar Vesturlandsvegar á um 9 km kafla milli Varmhóla og vegamóta Hvalfjarðarvegar. Um er að ræða breikkun Vesturlandvegar í 2+1 veg ásamt gerð þriggja hringtorga, þ.e. við Móa, Grundarhverfi og Hvalfjarðarveg. Samhliða breikkuninni verður vegtengingum fækkað og í staðinn gerðir hliðarvegir ásamt reiðstígum og…Lesa meira

true

Björgunarfélag Akraness með nýliðafræðslu

Í kvöld, þriðjudag klukkan 20, verður kynning á starfsemi Björgunarfélags Akraness í húsnæði félagsins að Kalmansvöllum 2. Kynningin er fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa með félaginu og allir velkomnir sem fæddir eru 2003 eða fyrr.Lesa meira

true

Hringgerði sett í miðjan almenninginn

Næstkomandi mánudag verður réttað fé af Holtavörðuheiði og Tvídægru í Þverárrétt í Borgarfirði, fjárflestu rétt landsins. Fyrr í vikunni var komið fyrir nýju mannvirki í hinni tæplega 60 ára gömlu rétt, eða hringgerði í miðju almenningsins. Kallað hefur verið eftir þessari framkvæmd, en hringgerði sem þetta á að fá féð til að renna betur um…Lesa meira

true

Bát rak upp í fjöru í Aðalvík

Björgunarskipin Kobbi Láka frá Bolungarvík og Gísli Jóns frá Ísafirði fóru í Aðalvík á Hornströndum í nótt vegna mannlauss báts sem rekið hafði upp í fjöru. Legufæri bátsins hafði losnað fyrr um daginn. Þegar báturinn var dreginn á flot lagðist hann á hliðina og lak mikið af sjó um borð. Dæla þurfti sjó úr bátnum…Lesa meira

true

Mannbjörg þegar bátur strandaði við Langanes

Klukkan 00:12 í nótt barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar neyðarkall frá 12 metra handfærabáti sem var strandaður rétt utan við Skála á sunnanverðu Langanesi. Tveir menn voru um borð. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þegar send á staðinn ásamt björgunarbátum frá Þórshöfn og Bakkafirði og nærstöddum skipum. Þá voru björgunarsveitir frá Raufarhöfn, Þórshöfn og Húsavík sendar landleiðina á vettvang.…Lesa meira

true

Ætisveppir eða eitraðir?

Nú er tími sveppatínslu. Ætisveppir hafa lengi vel verið ræktaðir eða tíndir villtir og hefur áhugi á neyslu þeirra aukist á Norðurlöndunum undanfarna áratugi. Nauðsynlegt er fyrir þá sem stunda sveppatínslu eða -ræktun að búa yfir nægjanlegri þekkingu á ætisveppum til geta greint ætisveppi frá þeim óætu. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að Norræna…Lesa meira