
Einar Eylert Gíslason fyrrverandi bóndi, ráðunautur og bústjóri, er látinn 86 ára að aldri. Einar var fæddur 5. apríl 1933 á Akranesi. Foreldrar hans voru Gísli Eylert Eðvaldsson hárskerameistari og Hulda Einarsdóttir kaupkona. Einar lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri, var síðan í verklegu búfræðinámi í Danmörku og Svíþjóð en útskrifaðist sem búfræðikandídat frá Hvanneyri 1955. Einar…Lesa meira








