Fréttir

true

Ýmist fjölgun eða fækkun í vestlenskum golfklúbbum

Breytingar í félagatali golfklúbbanna á Vesturlandi eru afar mismunandi samkvæmt samantekt sem Golfsamband Íslands hefur nýverið gert. Mest fjölgun var hjá Gkl. Jökli í Snæfellsbæ, eða 37%. Þá fjölgaði félögum um 17% í Gkl. Glanna í Norðurárdal, 15% í Gkl. Staðarsveitar og 14% í Gkl. Borgarness á Hamri. Félagafjöldi stóð í stað hjá Golfklúbbnum Leyni…Lesa meira

true

Reykhóladagar verða um helgina

Hinir árlegu Reykhóladagar verða haldnir hátíðlegir dagana 26. til 28. júlí. Dagskráin hefst á kassabílarallýi á Reykhólum kl. 15:00 á föstudag. Því næst verður keppt í þarabolta, en sá viðburður hefur rækilega fest sig í sessi á hátíðinni. Íbúar bjóða heim í þemapartí og/eða súpu um kvöldið áður en blásið verður til viðburðar í Sjávarsmiðjunni.…Lesa meira

true

Brennan hefur gefið vel í sumar

„Já, við erum í Brennunni og það gengur frekar rólega í laxinum, en þess betur í sjóbirtingnum,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir en Brennan hafði þá gefið 130 laxa í sumar og fjöldan allan af sjóbirtingi. „Brennan er svakalega lituð þessa dagana í hlýindunum, en laxinn er að sýna sig en hefur ekki veiðst síðustu daga.…Lesa meira

true

Markaðsbrestur víða um land

Fyrirhugað að ÍLS bjóði nýjar tegundir lána   Fyrirhugað er að gera Íbúðalánasjóði kleift að bjóða nýjar tegundir lána til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur birt minnisblað þess efnis í samráðsgátt stjórnvalda. Þar eru kynntar þær aðgerðir sem fyrirhugað er að ráðast í til að svo megi verða. „Fyrirhugaðar…Lesa meira

true

Hét á sjálfa sig að hlaupa Laugaveginn á fimmtugsárinu

Í síðustu viku sagði Skessuhorn frá því þegar hátt í tuttugu manna hópur Flandra úr Borgarnesi tók þátt í Laugavegshlaupinu 13. júlí. Hlaupið er 55 km utanvegarhlaup þar sem lagt er af stað frá Landmannalaugum og hlaupið áleiðis í Þórsmörk þar sem marklínan eftirsóknarverða bíður hlaupagarpa. Sumir hlauparanna úr Borgarfirði voru að fara í fyrsta…Lesa meira

true

Aldís og Huginn sigruðu Álmanninn

Aldís Róbertsdóttir og Huginn Hilmarsson fögnuðu sigri í einstaklingskeppni í Álmanninum sem haldinn var á Akranesi á miðvikudagskvöld. Liðið Hrikalegir bar sigur úr býtum í liðakeppni. Álmaðurinn er þríþraut sem samanstendur af hjólreiðum, fjallahlaupi og sjósundi. Hjólað er frá íþróttahúsinu við Jaðarsbakka að Akrafjalli og hlaupið upp á Háahnjúk og niður aftur. Þaðan er hjólað…Lesa meira

true

Reykholtshátíð hefst á morgun

Hin árlega Reykholtshátíð verður haldin 23. sinni um helgina, dagana 26. til 28. júlí. Dagskrá hátíðarinnar nær yfir vítt svið og að vanda kemur fram fjöldi einstakra listamanna. Má þar nefna nokkra einsöngvara af yngri kynslóðinni sem þó hafa unnið sér sess sem listamenn, svo sem Odd Arnþór Jónsson sem opnar hátíðina kl. 20:00 á…Lesa meira

true

Malbikað í blíðunni í Snæfellsbæ

Starfsmenn Malbikunar Akureyrar ehf. hafa verið við malbikun á Hellissandi, í Rifi og Ólafsvík í blíðviðrinu undanfarna viku. Þar hafa þeir malbikað bæði fyrir Snæfellsbæ og Vegagerðina. „Við létum taka íbúagötur og göngustíga á Hellissandi, íbúagötu í Rifi sem og hafnarsvæðið þar. Síðan var malbikað í Ólafsvík, bæði íbúagötur og göngustígar ásamt hafnarsvæðinu þar. Að…Lesa meira

true

Setti sér markmið að hanna eitt bókamerki á viku í heilt ár

Handverksmaðurinn Philippe Ricart, sem rekur handverksstofuna sína að Háholti 11 á Akranesi, situr sjaldan auðum höndum. Hann hefur verið iðinn við vefnað í nær 40 ár. Á þessu ári gerði hann sér lítið fyrir og setti sér það markmið að hanna og spjaldvefa nýtt bókamerki í hverri viku allt árið og byrjaði samviskusamlega í janúar.…Lesa meira

true

Hnúðlax veiddist í Hvítá

Það sem af er veiðitímanum hafa veiðst nokkrir hnúðlaxar á nokkrum stöðum á landinu. Einn slíkur kom á land úr Hvítá í Borgarfirði um helgina, nánar tiltekið á Flóðatangasvæðinu skammt frá ármótum Norðurár og Hvítár. Úlfar Reynisson var við veiðar í Hvítá þegar fiskurinn tók. „Við fengum fiskinn á Flóðatanganunum í Hvítá, neðst við ármótin,“…Lesa meira