Fréttir

true

Mótmælir ákvörðun um að breikkun Vesturlandsvegar fari í umhverfismat

Eins og kunnugt er hefur Skipulagsstofnun ákveðið að breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli sæta mati á umhverfisáhrifum. Það mun eðli máls samkvæmt þýða verulegar tafir á að vegabætur geti hafist á Kjalarnesi. Halldór Jónsson, íbúi á Akranesi, skrifar kjarnmikla grein um málið í Skessuhorn í dag, þar sem hann mótmælir harðlega þessari ráðagerð. Segir hann…Lesa meira

true

Bauð staðarbörnum á ljósmyndanámskeið

Séra Flóki Kristinsson sóknarprestur á Hvanneyri tók sig til fyrr í sumar og hélt ljósmyndanámskeið fyrir 11-12 ára börn. Afrakstur sýningarinnar mátti skoða á veggjum í stofu gamla skólastjórabústaðarins á Hvanneyrarhátíð síðastliðinn laugardag. Flóki sagði það hafa verið skemmtilegt að fræða börnin um sitthvað sem tengist ljósmyndun og það hafi sannarlega kveikt áhuga hjá þeim.…Lesa meira

true

Rannsókn hafin á viðhorfi almennings til torfhúsa

Til stendur að hefja víðtæka rannsókn hér á landi sem hefur það markmið að leiða í ljós hvaða sess torfhús skipa í hversdagslífi þjóðarinnar, fræðslu og ferðaþjónustu og hvort Íslendingar vilji vernda og nýta þannig hús með öðrum hætti en nú er gert. Fyrsti áfangi þessa verkefnis er útsending á spurningaskrá. Að rannsókninni standa Þjóðminjasafn…Lesa meira

true

Fleiri greinast með sýkingu að völdum E.coli bakteríu

Þann 4. júlí síðastliðinn var greint frá því, að fjögur börn hafi greinst með alvarlega sýkingu af völdum E. coli bakteríu. Nú hafa sex börn á aldrinum 20 mánaða–12 ára greinst til viðbótar og eru tilfellin því alls tíu. Þessi sex börn eru ekki alvarlega veik en verða undir eftirliti á Barnaspítala Hringsins næstu daga.…Lesa meira

true

Fjárréttir haustsins í Borgarbyggð

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur birt lista yfir helstu fjárréttir í haust. Fyrsta rétt haustsins er Nesmelsrétt í Hvítársíðu laugardaginn 7. september og þá verður réttað í Kaldárbakkarétt sunnudaginn 8. september. Oddsstaðarétt verður miðvikudaginn 11. september. Réttað verður í Brekkurétt í Norðurárdal sunnudaginn 15. september og sama dag í Fljótstungurétt (réttarhald hefst væntanlega að kvöldi 14.). Mánudaginn…Lesa meira

true

Blóðskortur í landinu

Mikill skortur er á blóði til blóðgjafar í Blóðbankanum. Fréttavefur RUV greindi frá því í dag. Að sögn Helgu Jóhannsdóttur, hjúkrunarfræðings hjá Blóðbankanum, er lagerstaðan sérlega slæm og eru landsmenn hvattir til þess að koma við í bankanum og gefa blóð. Starfsmenn hringja nú í velunnara bankans og biðja um hjálp, að sögn Helgu. Sérstakur…Lesa meira

true

Annir á hálendisvakt björgunarsveitanna

Nokkuð hefur verið um verkefni hjá þeim björgunarsveitahópum Landsbjargar sem manna hálendisvakt sumarsins. Töluvert um slys og minnniháttar óhöpp. Á sunnudagskvöld var leitað að konu sem villst hafði í þoku  á gönguleiðinni inn að Öskjuvatni á hálendinu norðan Vatnajökuls. Á svæðinu var snjókoma og einnar gráðu frost en í slíku veðri kólnar fólk hratt sé…Lesa meira

true

Stútar undir stýri

Nokkuð var um ölvunarakstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Ellefu bókanir um ölvaða ökumenn er að finna í dagbókum lögreglunnar eftir vikuna og flest málin eru frá því um helgina. Eitthvað var um að fólk hafi einfaldlega farið of snemma af stað eftir drykkju kvöldið áður og vill lögreglan minna ökumenn á…Lesa meira

true

Lánlausir Skallar

Skallagrímur þurfti að sætta sig við eins marks tap gegn Vængjum Júpiters þegar liðin mættust á gervigrasvellinum í Grafarvogi á föstudaginn. Var þessi leikur liður í tíðundu umferð þriðju deildar karla. Segja má að einbeitingin hafi verið víðs fjarri hjá gestunum úr Borgarnesi í upphafi leiks því heimamenn skoruðu strax á 3. mínútu þegar Sigurjón…Lesa meira

true

Tónleikar Páls og Kammerkórs fengu lofsamlega dóma

Jónas Sen skrifar í Fréttablaðinu um helgina afar fallega um tónleika Kammerkórs Suðurlands og Páls á Húsafelli sem haldnir voru nýverið í Hafnarborg. Gefur hann tónleikunum fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögulegum. Dagskrá Sönghátíðarinnar var tvíþætt. Fyrir hlé voru fjölmörg mjög stutt verk eftir Atla Ingólfsson, Huga Guðmundsson, Benna Hemm Hemm, Elínu Gunnlaugsdóttur og…Lesa meira