Fréttir

true

Samantekt um lax- og silungsveiðina 2018

Hafrannsóknastofnun hefur gefið út yfirlit yfir lax- og silungsveiði sumarið 2018. Þá var skráð stangveiði á laxi í ám á Íslandi 45.291 lax. Af þeim var 19.409 (42,9%) sleppt aftur og var heildarfjöldi landaðra laxa því 25.882 laxar, eða 57,1%. Af veiddum löxum voru 36.044 laxar, eða 79,6%, með eins árs sjávardvöl og 9.247 stórlaxar…Lesa meira

true

Segir enn vera eldhættu jafnvel þótt óvissustigi hafi verið aflétt

Á vef RUV fyrr í dag er haft eftir Árna Hjörleifssyni oddvita Skorradalshrepps að sveitarfélagið hafi sent erindi til Vegagerðarinnar til að knýja á um bættar samgöngur í Skorradal. Fyrst og fremst til að tryggja flóttaleiðir. Árni segir að eldhættan sé ekki liðin hjá jafnvel þótt óvissustigi hafi verið aflétt. „Fólk áttar sig ekki alveg…Lesa meira

true

Vestlendingar taka yfir stjórn Arionbanka

Um nýliðin mánaðamót tók Benedikt Gíslason við starfi bankastjóra Arionbanka. Í dag var svo tilkynnt að Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason hafi verið ráðinn í nýtt starf aðstoðarbankastjóra. Hefur hann störf með haustinu. Gaman er að geta þess að báðir slitu þeir Benedikt og Ásgeir barnsskónum á Vesturlandi; Benedikt á Hvanneyri en Ásgeir Helgi á Akranesi.Lesa meira

true

Víkingur Ó. færir sig upp um þrjú sæti

Víkingur Ó. sigraði Aftureldingu 2-0 í tíundu umferð fyrstu deildar karla á föstudag. Leikið var á Ólafsvíkurvelli. Mosfellingar byrjuðu leikinn ákafir og voru meira með boltann á upphafsmínútunum. Ólsarar voru þó hvergi að gefa eftir og mættu gestunum á pari í baráttunni. Hvorugt liðið náði að skila boltanum í netið og voru þau jöfn þegar…Lesa meira

true

Telur að verið sé að brjóta lög um dýravelferð

Halla Signý Kristjánsdóttir alþingismaður vekur athygli á því að nú sé dýralæknalaust í fimm sveitarfélögum á Vestfjörðum; Súðavík, Ísafjarðarbæ, Bolungarvík, Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð. Dýralæknir sá er hefur sinnt þessu svæði hefur sagt upp eftir farsælt starf um árabil oft við erfiðar aðstæður. Þetta kemur fram í grein sem Halla Signý skrifaði í BB 4. júlí…Lesa meira

true

Samningur um skógrækt við Starfsmannafélag Norðuráls

Nýlega var skrifað undir samning milli Faxaflóahafna og Stafsmannafélags Norðuráls á Grundartanga um að Faxaflóahafnir láti félaginu í té landspildu til skógræktar. Spildan er milli núverandi skógræktar norðan við Launaflsvirki Landnets og Eiðisvatns. Þarna stefnir Starfsmannafélagið að því að útbúa notalegan lund sem fellur vel að núverandi skógræktaráformum Faxaflóahafna. Frá þessu er greint á vef…Lesa meira

true

Fjölmenn Hvanneyrarhátíð í einmuna veðurblíðu

Það var margt um manninn þegar Hvanneyrarhátíð var haldin á laugardaginn. Ýmissa tímamóta var minnst. Meðal annars að 130 ár eru frá upphafi skólastarfs á Hvanneyri en auk þess var með veglegum hætti haldið upp á 70 ára afmæli Ferguson dráttarvélanna hér á landi. Af því tilefni var fjöldi eldri véla hafður til sýnis en…Lesa meira

true

Náttúrubarnahátíð á Ströndum

Fjölskylduhátíðin Náttúrubarnahátíð á Ströndum verður haldin í þriðja skiptið helgina 19.-21. júlí næstkomandi. „Á hátíðinni fá allir gestir, bæði börn og fullorðnir, kjörið tækifæri til að finna eða rækta sitt innra náttúrubarn,“ segir í tilkynningu. Það er Náttúrubarnaskólinn sem stendur fyrir hátíðinni. „Náttúrubarnaskólinn stendur fyrir fjölbreyttum námskeiðum yfir sumartímann og miðar að því að fræða…Lesa meira

true

Bókasafnskassi kominn upp í Grundarfirði

Leshópurinn Köttur úti í mýri, sem nýverið opnaði bókamarkað í Grundarfirði, hefur nú sett upp skiptibókakassa fyrir utan Bókamarkaðinn á Snæfellsnesi. Þar er hægt að setja bækur í kassann og fá aðrar að láni. Víðsvegar um heiminn eru aðrir sambærilegir bókakassar en hægt er að fræðast um það á vefsíðunni littlefreelibrary.org. Einungis einn svona kassi…Lesa meira

true

Þriðjungs fjölgun nemenda við LbhÍ

Við upphaf Hvanneyrarhátíðar á laugardaginn flutti Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands ávarp og setti því næst hátíðina. Gat hún þess að í ár er fagnað 130 ára afmæli búnaðarfræðslu á Hvanneyri. „En það eru fleiri merk tímamót sem við höldum upp á í ár. Það eru 15 ár frá því að Landbúnaðarháskóli Íslands tók…Lesa meira