Fréttir

true

Fleiri vilja í HÍ

Háskóla Íslands bárust nærri 5.600 umsóknir um grunnám fyrir skólaárið 2019-2020, sem er tæplega 13% fleiri umsóknir en í fyrra. Umsóknarfjöldinn er umtalsvert meiri en sem nemur fjölda þeirra sem lýkur stúdentsprófi í ár. Heildarfjöldi umsókna í grunn- og framhaldsnám er tæplega níu þúsund, þar af eru um 1.200 umsóknir frá erlendum nemendum. Aðsókn í…Lesa meira

true

Miklar annir í sjúkraflutningum um helgina

Talsvert miklar annir voru í sjúkraflutningum í umdæmi Heilbrigðisstofnununar Vesturlands um liðna helgi. Að sögn Gísla Björnssonar yfirmanns sjúkraflutninga hjá HVE á það við um allar starfsstöðvar, en alls voru útköllin 50 talsins. Flest þeirra voru á Akranesi, 20 talsins og 19 í Borgarnesi. „Útköllin voru fjölbreytt; umferðarslys, vélhjólaslys, fólk að slasa sig í fjallgöngum…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn!

Í dag er 17. júní, þjóðhátíðardagur Íslendinga. Þess er jafnframt minnst að nú eru 75 ár liðin frá stofnun lýðveldisins. Vegleg dagskrá er af því tilefni víðsvegar um landið sem fólk er hvatt til þátttöku í. Spáð er blíðviðri í dag um vestanvert landið. Skessuhorn óskar landsmönnum til hamingju með daginn!Lesa meira

true

Bílvelta á Snæfellsnesi í gær

Bílvelta varð á Snæfellsnesvegi á sjöunda tímanum í gærkvöldi, nálægt bænum Gröf í Eyja- og Miklaholtshreppi. Fimm voru í bílnum og virtist enginn þeirra alvarlega slasaður, að því er fram kemur á vef Vísis. Vegfarendur, þar af einn eða tveir læknar, komu fólkinu til hjálpar á meðan beðið var eftir sjúkrabílum sem sendir voru frá…Lesa meira

true

Fimmtugasta heimsóknin til Íslands

Akranesviti fékk góða heimsókn miðvikudaginn 5. júní síðastliðinn, þegar Gerri nokkur Griswold sótti vitann heim. „Hún kom ásamt tveimur vinkonumsínum. Það sem er merkilegt við þessa heimsókn er að þetta er í fimmtugasta skiptið sem Gerri Griswold heimsækir Ísland,“ segir Hilmar Sigvaldason vitavörður. „Fyrsta skiptið sem gErri heimsótti Ísland var í maí 2002 þannig að…Lesa meira

true

Tap gegn erkifjendunum

Skagamenn riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn erkifjendunum í KR í dag. Liðin mættust á Akranesi í áttundu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. KR-ingar voru sterkari allan leikinn og sigruðu að lokum með þremur mörkum gegn einu. Skagamenn byrjuðu af krafti og fengu aukaspyrnu rétt við vinstra vítateigshornið strax á fyrstu…Lesa meira

true

Eldur á Hýrumel

Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út rétt fyrir kl. 15:00 í dag vegna elds á svínabúinu að Hýrumel í Hálsasveit í Borgarfirði. Upp kom eldur í inntaksmannvirki, gámi þar sem rafmagnsinntak og varaaflsstöð svínabúsins er staðsett. Gámurinn stendur við enda eins hússins en er ekki sambyggður því og eldurinn aðeins bundinn við hann. Slökkviliðsmenn voru snöggir…Lesa meira

true

Með aukabíl á eftirvagni

Húsbílar þykja mörgum hentugir í ferðalögin en þeir verða seint taldir hentugir til stuttra skreppitúra eða skoðunarferða. Þýsku ferðamennirnir sem Skessuhorn rakst á fyrir utan Geirabakarí í Borgarnesi laust eftir hádegi í gær kunnu þó ráð við þessu. Þeir höfðu einfaldlega tekið með sér lítinn jeppa og drógu hann á kerru aftan í húsbílnum. Þegar…Lesa meira

true

Kvennahlaupið í þrítugasta sinn á morgun

Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í þrítugastas inn á morgun, laugardaginn 15. júní. Hlaupið er stærsti almenningsíþróttaviðburður sem haldinn er hér á landi á ári hverju. „Konur á öllum aldri koma saman á hlaupadegi og eiga skemmtilega stund þar sem sumir hlaupa en aðrar ganga. Í 30 ár ahfa þúsundir kvenna um allt land notið þess…Lesa meira

true

Ragna Árnadóttir ráðin skrifstofustjóri Alþingis

Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, var í dag ráðin skrifstofustjóri Alþingis, að fenginni tillögu hæfnisnefndar. Hún var valin úr hópi tólf umsækjenda og er fyrsta konan til að gegna embættinu. Hún tekur við 1. september næstkomandi, þegar Helgi Bernódusson, núverandi skrifstofustjóri, lætur af embættinu. Ragna er lögfræðingur að mennt, með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands,…Lesa meira