Fréttir

true

Átak í rafbílavæðingu á Akranesi

Síðastliðinn föstudag var undirritað samkomulag milli Akraneskaupstaðar, Orkuveitu Reykjavíkur og Veitna um uppbyggingu innviða fyrir rafbíla á Akranesi. Hleðslustöðvum verður komið upp á allt að sex stöðum í bænum. „Íbúar og fyrirtæki á Akranesi hafa verið öflug við að taka þátt í orkuskiptum í samgöngum. Um síðustu mánaðamót voru skráðir 211 tengjanlegir rafbílar í sveitarfélaginu.…Lesa meira

true

Velta byggingavöruverslana eykst í blíðunni

Velta byggingavöruverslana var 13,7% meiri í maí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Þá var hún 29.9% hærri í maí en í apríl. Er aukin sala á byggingavörum rakin til góðrar tíðar. „Veðrið lék við bróðurpart landsmanna í maí og virðast margir hafa tekið forskot á sæluna í útiverkunum,“ segir í tilkynningu frá Rannsóknarsetri…Lesa meira

true

Ólafsvíkingar tylltu sér á toppinn

Víkingur Ó. tyllti sér á topp 1. deildar karla í knattspyrnu eftir góðan útisigur á Fjölni í gærkvöldi, 1-3. Ólafsvíkingar byrjuðu af miklum krafti og sköpuðu strax hættu upp við mark heimamanna. Þeir héldu áfram að sækja og komust yfir á 14. mínútu leiksins. Sallieu Tarawallie fékk boltann fyrir utan teig Fjölnismanna. Hann var ekkert…Lesa meira

true

Búið að sjósetja nýja Bárð

Nýr Bárður SH var sjósettur í Danmörku fimmtudaginn 6. júní en hann hefur verið í smíðum hjá Bredgaard Bådeværft í Rødbyhavn þar í landi. Pétur Pétursson útgerðarmaður var viðstaddur sjósetninguna ásamt eiginkonu sinni Lovísu Sævarsdóttur og Pétri syni þeirra. Nýr Bárður er 26,9 metra langur og sjö metra breiður með 2,5 djúpristu. „Mér er sagt…Lesa meira

true

Ofkældist í sjónum á Langasandi

Fimmtán ára stúlka ofkældist í sjósundi við Langasand að morgni miðvikudagsins 5. júní. Hún var stödd á sandinum ásamt hópi nemenda úr Vogaskóla og hafði verið í sjónum í 20-25 mínútur. Þegar hún kom upp úr var hún orðin köld og kvartaði yfir ógleði. Hún var flutt með sjúkrabíl til aðhlynningar á HVE á Akranesi…Lesa meira

true

Bygging þjóðgarðsmiðstöðvar í útboð

Ríkiskaup hafa auglýst byggingarútboð vegna framkvæmda við Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Verkið nær til byggingar nýrrar þjónustumiðstöðvar Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls. Húsgrunnur nýbyggingar samanstendur af tveimur byggingum sem munu tengjast með miðrými. Hluti byggingarinnar skagar út fyrir grunn, þar sem ekki má valda yfirborðsskemmdum á landi umfram það sem telst óhjákvæmilegt. Húsið er á einni hæð, staðsteypt stálvirki…Lesa meira

true

Lekaleit í Stykkishólmi á þriðjudaginn

Þriðjudaginn 18. júní næstkomandi munu Veitur gera lekaleit í lokuðu kerfi hitaveitu í Stykkishólmi. Leitin fer þannig fram að skaðlausu litarefni verður dælt inn á kerfið og í framhaldi reynt að staðsetja leka og rangar tengingar. „Markmiðið er að auka rekstraröryggi kerfisins og tryggja sem besta nýtingu þess, öllum til hagsbóta,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Gaskútum hnuplað

Gaskútum var stolið úr húsi við Ólafsbraut í Ólafsvík á mánudaginn. Kútarnir voru tengdir við gasgrill sem stóð við innganginn að neðri hæð hússins þegar einhver kom og skrúfaði þá frá grillinu og hnuplaði þeim. Engin vitni voru að þjófnaðinum.Lesa meira

true

Bergþór semur við Skallagrím

Skallagrímur hefur endurnýjað samning sinn við Bergþór Ægir Ríkharðsson til tveggja ára. Bergþór kom til Skallagríms fyrir ári síðan og lék með liðinu í Domino‘s deildinni þar sem hann var með 2,1 stig að meðaltali í leik. Bergþór er 21 árs gamall og leikur stöðu framherja. Áður en hann kom í herbúðir Skallagrímsmanna fyrir ári…Lesa meira

true

Slökkviliðsmenn á aukavakt um helgina

„Aukavakt hefur verið mönnuð á bakvakt um helgina. Það eru allir á tánum,“ segir Þórður Sigurðsson, varaslökkviliðsstjóri slökkviliðs Borgarbyggðar, í samtali við Skessuhorn. Hann er einn þeirra sem fylgist náið með stöðu mála eftir að óvissustigi vegna hættu á gróðureldum var lýst yfir á þriðjudag og viðbragðsáætlun virkjuð fyrir Skorradal. „Slökkviliðsmenn hafa verið að ræða…Lesa meira