Fréttir

true

Blíða laus af skerinu

Um klukkan hálf eitt í dag voru björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi kallaðar út þegar fjölveiðiskipið Blíða SH steytti á skeri hálfa aðra sjómílu frá Stykkishólmi, skammt frá Hvítbjarnarey. Björgunarbátur frá Stykkishólmi var kominn á vettvang skömmu síðar og þá kom björgunarskipið Björg frá Rifi einnig á vettvang, sem og eftirlits- og sjómælingaskipið Baldur. Aðgerðum á…Lesa meira

true

Veður er gott á strandstað

Eins og fyrr segir strandaði bátur skammt frá Stykkishólmi í hádeginu í dag. Landhelgisgæslan var að senda svohljóðandi tilkynningu: „Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning klukkan 12:36 um 24 metra langt fiskiskip sem hafði steytt á skeri á Breiðafirði um 1,3 sjómílur ANA af Stykkishólmi. Berserkir, Björgunarsveit Slysvarnafélagsins Landsbjargar ásamt björgunarskipinu Björg í Rifi voru kölluð út…Lesa meira

true

Skip strandað skammt frá Stykkishólmi

Um klukkan hálf eitt í dag voru björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi kallaðar út vegna skips sem strandað hafði rétt utan við Stykkishólm. Samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu er skipið staðsett um 1,5 sjómílu frá bænum, nærri Hvítabjarnarey. Um er að ræða 22 tonna fjölveiðiskip. „Björgunarbátur frá Stykkishólmi var komin á vettvang stuttu síðar, staðan um borð…Lesa meira

true

Vera opnaði myndlistarsýningu

Vera Líndal Guðnadóttir opnaði myndlistarsýningu sem hún nefnir Óþekkt landslag, að Stillholti 16-18 á Akranesi síðastliðinn laugardag. Í dag og fram á föstudag verður sýningin opin frá klukkan 17 til 19, en um helgina frá kl. 14-17.Lesa meira

true

Baski er bæjarlistamaður Akraness

Myndlistarmaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, eða Baski eins og hann er jafnan kallaður, er bæjarlistamaður Akraness 2019. Tilkynnt var um valið við á hátíðardagskrá á Akratorgi á þjóðhátíðardaginn í gær, venju samkvæmt. Baski er fæddur á Akranesi 5. september 1966. Hann tók snemma upp pensilinn og var farinn að tjá sig með myndlist strax á barnaskólaárum…Lesa meira

true

Allir í golf á Hamri – leiðsögn og grill á laugardaginn

Laugardaginn 22. júní kl. 10.00-12.00 mun Golfklúbbur Borgarness verða með dagskrá á Hamarsvelli. Þá verða kennarar og aðstoðarfólk á staðnum og leiðbeina í slaghamri, á æfingasvæði og setja upp æfingar. Gullhamar, 8 holu stuttur völlur verður leikinn en dagskránni lýkur svo með pylsupartýi klukkan 12.Lesa meira

true

Stöngin út og stöngin inn

Víkingur Ó. tapaði gegn Keflavík með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gær, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Leikið var í Ólafsvík. Liðin mættu ákveðin inn á völlinn og nokkur harka var í leiknum í upphafi. Ólafsvíkingar voru meira með boltann í fyrri hálfleik en tókst ekki að skapa…Lesa meira

true

Tap hjá Skallagrími

Skallagrímur tapaði gegn toppliði KA er liðin mættustu í sjöundu umferð í 3. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Borgarnesi á föstudagskvöld. Heimamenn byrjuðu betur og áræðni einkenndi leik þeirra. Fyrsta mark leiksins kom á 31. mínútu þegar Marteinn Theódórsson kom Borgnesingum yfir og leiddu Skallagrímsmenn með einu marki þegar gengið var til búningsklefanna.…Lesa meira

true

Geta keypt tölvur við útskrift

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á síðasta fundi sínum breytt verklag um notkun spjaldtölva í Heiðarskóla, sem snýr að endurnýjun tækjanna. Jafnframt var samþykkt að veita skólastjóra heimild til að selja útskriftarnemum fjögurra ára gömul tæki fyrir lágmarksgjald. Greiðslan verður innheimt af skrifstofu sveitarfélagsins og færist sem tekjur á Heiðarskóla. Þær tekjur verði nýttar til kaupa á…Lesa meira

true

Magnús skipaður framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Magnús Guðmundsson í embætti framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs. Magnús er skipaður frá 11. júní síðastliðinum, en hann hefur verið settur framkvæmdastjóri undanfarið ár. Magnús var áður forstjóri Landmælinga Íslands á Akranesi, frá 1. janúar 1999 og þar til hann tók við núverandi embætti. Hann hfeur verið virkur í alþjóðlegu samstarfi sem forstjóri…Lesa meira