Fréttir

true

Ellefu þúsund hafa farið í Guðlaugu frá opnun

Mjög mikil aðsókn var í heita pottinn Guðlaugu við Langasand á Akranesi um hvítasunnuhelgina, en á annað þúsund manns nutu þess þá að fara í laugina og sjóinn og börn voru að leik á Langasandi. Mest voru þetta Íslendingar á ferðinni, fjölmargir af höfuðborgarsvæðinu og frá Reykjanesi að sögn starfsfólks. Þær Jill Syrstad og Írena…Lesa meira

true

Varúð í ljósi sögunnar

Umfangsmestu sinu- og gróðureldar í sögunni urðu á Mýrum í lok mars og byrjun apríl 2006 þegar um 70 hektarar lands brunnu. Í ljósi þess að nú er búið að lýsa yfir viðbúnaðarstigi vegna þurrka á öllu Vesturlandi, er rétt að rifja það upp að Mýraeldarnir 2006 urðu vegna þess að sígarettu var kastað út…Lesa meira

true

„Þarf að stilla tíu þúsund píanó til að teljast góður“

Borgnesingurinn Magnús Daníel Budai Einarsson hóf nám við North Bennet Street School í Boston í Bandaríkjunum síðasta haust þar sem hann lærði listina að stilla píanó og flygla. Nú er Magnús staddur heima á Íslandi og ætlar að nýta sumarfríið sitt til þess að safna peningum fyrir næstu önn og starfar sem umsjónarmaður tjaldsvæðis í…Lesa meira

true

Samþykktu breytingu á lögum um helgidagafrið

Alþingi samþykkti í gær frumvarp Sigríðar Á. Andersen alþingismanns og fv. dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um helgidagafrið. Var það samþykkt með 44 atkvæðum en níu þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpnu. Það kveður á um að felld verði niður ákvæði í lögum um helgidagafrið sem banna tiltekna þjónustu, skemmtanir og afþreyingu á tilgreindum helgidögum…Lesa meira

true

Sýslumaður hafnaði lögbannskröfu SVFK á sölu veiðileyfa

Sýslumaðurinn á Vesturlandi hafnaði í morgun lögbannskröfu sem Stangveiðifélag Keflavíkur vildi að gerð yrði á sölu veiðileyfa í Reykjadalsá í Borgarfirði. Það er Veiðifélag Reykjadalsár sem hyggst sjálft selja veiðileyfi í ána í sumar. Skessuhorn fjallaði ítarlega um málið í frétt hér á vefnum í morgun og í Skessuhorni sem kom út í dag. Veiðiréttareigendur…Lesa meira

true

Helstu niðurstöður fyrirtækjakönnunar á Vesturlandi

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa birt niðurstöður fyrirtækjakönnunar sem unnin var fyrir landbyggðina og birtist í nýju vefriti sem nefnist Deiglan. Höfundur skýrslunnar er Vífill Karlsson hagfræðingur. Niðurstöðurnar byggja á spurningakönnun sem var lögð fyrir fyrirtæki í öllum landshlutum, utan höfuðborgarsvæðisins, frá nóvember til loka janúar á þessu ári. Nokkuð mörg fyrirtæki af höfuðborgarsvæðinu voru…Lesa meira

true

Gamli leikfimisalurinn horfinn af sjónarsviðinu

Gamli leikfimisalurinn við Grunnskóla Borgarness hefur nú verið rifinn. Ráðist var í niðurrif á þeim hluta skólahúsanna í gær, þriðjudag, og er verkefnið hluti breytingum eldra húsnæðis, viðbyggingu og lóðarframkvæmdum. Nokkrir Borgnesingar fylgdust með niðurrifinu í gær og bærðust blendnar tilfinningar í hugum sumra að sjá gamla leikfimisalinn hverfa af sjónarsviðinu. Með niðurrifinu opnast skólalóðin…Lesa meira

true

Ökumenn hafi í huga að búfé getur verið á ferð

Ekið var á lömb við Stafholtstungur í Borgarfirði á mánudaginn. Eigandanum var ekki gert viðvart. Hafði hann því samband við lögreglu og tilkynnti um málið. Þá var tilkynnt um kindur og lömb á Snæfellsnesvegi við Borg á Mýrum í gærmorgun. Lögregla hvetur ökumenn til að sýna aðgát við aksturinn og að láta vita ef slys…Lesa meira

true

Vargurinn getur verið hvimleiður í æðarvarpinu á Mýrum

Á hverju vori fara æðarbændur á Mýrum að undirbúa varpið og bjóða fuglana velkomna heim. Varpið og dúnvertíð er nú í fullum gangi og hjónin Sigurbjörg Helgadóttir og Óskar Þór Óskarsson á Tröðum á Mýrum verja flestum sínum stundum til dúntínslu á milli þess að halda varginum frá æðarvarpinu sem vissulega getur orðið ágengur. Blaðamaður…Lesa meira

true

Áframhaldandi veðurblíða í kortunum

Í dag er spáð hægu veðri, sól og blíðu. Þá er spáð 23 stiga hita um landið vestanvert á morgun, fimmtudag. Útlit er fyrir að hitinn verði allt að 20 stig víða á landinu næstu daga og fram yfir helgi. Hægum vindi er spáð víðast hvar á landinu. Fyrir norðan og austan má búast við…Lesa meira