Fréttir

true

Gaskútum hnuplað

Gaskútum var stolið úr húsi við Ólafsbraut í Ólafsvík á mánudaginn. Kútarnir voru tengdir við gasgrill sem stóð við innganginn að neðri hæð hússins þegar einhver kom og skrúfaði þá frá grillinu og hnuplaði þeim. Engin vitni voru að þjófnaðinum.Lesa meira

true

Bergþór semur við Skallagrím

Skallagrímur hefur endurnýjað samning sinn við Bergþór Ægir Ríkharðsson til tveggja ára. Bergþór kom til Skallagríms fyrir ári síðan og lék með liðinu í Domino‘s deildinni þar sem hann var með 2,1 stig að meðaltali í leik. Bergþór er 21 árs gamall og leikur stöðu framherja. Áður en hann kom í herbúðir Skallagrímsmanna fyrir ári…Lesa meira

true

Slökkviliðsmenn á aukavakt um helgina

„Aukavakt hefur verið mönnuð á bakvakt um helgina. Það eru allir á tánum,“ segir Þórður Sigurðsson, varaslökkviliðsstjóri slökkviliðs Borgarbyggðar, í samtali við Skessuhorn. Hann er einn þeirra sem fylgist náið með stöðu mála eftir að óvissustigi vegna hættu á gróðureldum var lýst yfir á þriðjudag og viðbragðsáætlun virkjuð fyrir Skorradal. „Slökkviliðsmenn hafa verið að ræða…Lesa meira

true

Í heimsókn á Hjúkrunarheimilinu á Fellsenda

Hjúkrunarheimilið Fellsenda í Dölum er heimili fyrir geðfatlaða og þar búa nú 26 einstaklingar frá 50 ára aldri. Heimilið var upphaflega byggt til minningar um hjón sem bjuggu á Fellsenda. Þau eignuðust þrjú börn, tvær dætur og einn son. Dæturnar tvær menntuðu sig báðar í hannyrðum en létust úr spænsku veikinni, ókvæntar og barnlausar. Sonur…Lesa meira

true

Stærsti trefjaplastbáturinn sjósettur

Nýr Bárður SH var sjósettur síðastliðinn fimmtudag hjá Bredgaard Bådeværft í Rødbyhavn í Danmörku. Báturinn er 26,9 metra langur og sjö metra breiður með 2,5 djúpristu. Stærð hans gerir hann því að stærsta trefjaplastbáti sem smíðaður hefur verið fyrir íslenska útgerð, að sögn Péturs Péturssonar, útgerðarmanns í Snæfellsbæ. Nýr Bárður er væntanlegur til landsins fyrir…Lesa meira

true

Töluvert um hraðakstur um liðna helgi

Hraðakstur var mjög áberandi í verkefnum Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Einkum kom mikið um hraðakstursbrot um hvítasunnuhelgina. Að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns var mjög algengt að ökumenn væru stöðvaðir á milli 110 og 120 km/klst. og töluvert margir óku enn hraðar. Sá sem hraðast ók í vikunni var stöðvaður á Snæfellsnesvegi kl. 7:35 á…Lesa meira

true

Brottförum hefur fækkað um 11% frá áramótum

Brottfarir erlendra farþega frá Keflavíkurflugvelli voru 126 þúsund í maí, eða um 39 þúsund færri en í sama mánuði í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkunin milli ára nemur 23,6%. „Fækkun hefur verið alla mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7% og í apríl…Lesa meira

true

Veiði hefst á laugardaginn á Arnarvatnsheiði

Opnað verður fyrir sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði næstkomandi laugardag, 15. júní, venju samkvæmt. Að sögn Snorra Jóhannessonar veiðivarðar er heiðin óvenjuþurr miðað við árstíma og því er lág vatnsstaða í Norðlingafljóti. Veiðileyfi er hægt að nálgast í veitingastaðnum við Hraunfossa.Lesa meira

true

Datt í Baldri

Erlend kona á sextugsaldri varð fyrir því óláni að hrasa þegar hún var að ganga upp stiga í ferjunni Baldri á mánudaginn. Hún rann til í stiganum, féll og gat ekki staðið upp aftur. Hún hafði dottið daginn áður í Reykjavík, farið á bráðamóttöku en verið send þaðan aftur. Eftir að konan hrasaði í Baldri…Lesa meira

true

„Viðbragðsaðilar að setja sig í stellingar“

Eins og áður hefur verið greint frá lýsti ríkislögreglustjóri á þriðjudag, í samráði við lögreglustjórann á Vesturlandi, yfir óvissustigi almannavarna á Vesturlandi vegna hættu á gróðureldum. Þá var sömuleiðis virkjuð viðbragðsáætlun vegna hættu á gróðureldum í Skorradal. Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum sem…Lesa meira