Fréttir

true

„Raunveruleg auðlind okkar í umhverfismálum er fólkið“

Guðrún Magnea Magnúsdóttir ólst upp í Stykkishólmi, lauk námi við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði og hélt svo í höfuðborgina þar sem hún lærði mannfræði við Háskóla Íslands. Að því loknu var Danmörk næsti viðkomustaður þar sem Guðrún Magnea lauk mastersnámi í þróunarfræði og alþjóðatengslum. Fyrir nærri tveimur árum flutti hún aftur heim í Hólminn þar…Lesa meira

true

Skemmtiferðaskipi var siglt utan í Stykkið

Skemmtiferðaskipið Ocean Diamond rakst harkalega utan í Stykkið, trébryggjuna í Stykkishólmshöfn, þegar það lagðist að bryggju á laugardagsmorgun. Að sögn Hrannars Péturssonar hafnarvarðar átti óhappið sér stað kl. 6:20 að morgni. Hann kveðst ekki geta sagt til um tildrög óhappsins. Allar aðstæður hafi verið mjög góðar og menn viti hreinlega ekki hvers vegna þetta gerðist.…Lesa meira

true

Tekist á um lögmæti samnings um leigu Reykjadalsár

Stjórn Veiðifélags Reykjadalsár í Borgarfirði auglýsti nýverið til sölu veiðileyfi í ánni í sumar. Þar er veitt á tvær stangir á tímabilinu 20. júní til 30. september. Sú óvenjulega staða er nú komin upp að tveir aðilar eru að selja sömu veiðileyfin; annars vegar landeigendur í Veiðifélagi Reykjadalsár en hins vegar Stangveiðifélag Keflavíkur. Komin er…Lesa meira

true

Óvissustigi lýst yfir vegna hættu á gróðureldum á Vesturlandi

„Vegna langvarandi þurrka á Vesturlandi hefur ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Vesturlandi, lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum,“ segir í tilkynningu frá almannavarnanefnd ríkislögreglustjóra sem send var í gær stjórnendum sveitarfélaganna í landshlutanum og viðbragðsaðilum. „Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, almannavarnir í héraði, ásamt viðbragðsaðilum, hafa áhyggjur af hættu á gróðureldum á Vesturlandi, sérstaklega í…Lesa meira

true

Ákvörðun Fiskistofu vegna Kleifabergs felld úr gildi

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur fellt úr gildi ákvörðun Fiskistofu að svipta skipið Kleifaberg RE-70 leyfi til veiða í atvinnuskyni í 12 vikur vegna meints brottkasts afla. „Fiskistofa byggði ákvörðun sína á grundvelli þess sem sást á fimm innsendum myndskeiðum. Fjögur myndskeiðanna voru frá árinu 2008 og 2010 og eitt frá árinu 2016. Í ljósi þess…Lesa meira

true

ASÍ brýnir fyrir sveitarfélögum að halda álögum í hófi

„Í tilefni þess að nú liggur fyrir fasteignamat fyrir næsta ár ætlast Alþýðusamband Íslands til þess að sveitarfélög standi við yfirlýsingar gefnar í tengslum við kjarasamninga í apríl og lækki álagsprósentur fasteignaskattsins vegna ársins 2020. Þannig má koma í veg fyrir að hækkun fasteignamats skili sér sjálfkrafa í skattahækkun til almennings í gegnum hærri álagningu,“…Lesa meira

true

Háskóli unga fólksins hófst í morgun

Það lifnaði heldur betur yfir háskólasvæðinu við HÍ í morgun þegar um 370 krakkar á aldrinum 12-16 ára mættu á hinn árlega Háskóla unga fólksins. Skólinn stendur til næstkomandi föstudags. Í Háskóla unga fólksins búa nemendur til sína eigin stundaskrá en þeir geta valið á milli rúmlega 50 námskeiða af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands. Nemendur…Lesa meira

true

Hringvegurinn lokaður við Akrafjall

Þjóðvegi 1 var lokað meðfram Akrafjalli í morgun og verður vegurinn lokaður þangað til fimmtudaginn vegna malbikunarframkvæmda. Byrjað verður að malbika á vegarkaflanum norðan við afleggjarann niður að Grundartanga, að því er fram kemur á Twitter-síðu Vegagerðarinnar. Hjáleið verður um Akrafjallsveg, gegnum Akranes, á framkvæmdatímanum.Lesa meira

true

Ferðamenn hvattir til að drekka kranavatn

Inspired by Iceland hefur í samstarfi við Umhverfisstofnun hrundið af stað herferð þar sem erlendir ferðamenn eru hvattir til að drekka kranavatn, frekar en að kaupa vatn í plastflöskum. Áhersla er lögð á að kynna íslenskt vatn sem lúxusvöru sem finna má endurgjaldslaust í krönum um allt land. „Markmiðið er að draga úr óþarfa plastnotkun…Lesa meira

true

Brottförum fækkar

Brottfarir erlendra farþega frá Keflavíkurflugvelli voru um 126 þúsund í maí, eða um 39 þúsund færri en í sama mánuði í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkunin milli ára nemur 23,6%. „Fækkun hefur verið alla mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7% og í…Lesa meira