Fréttir

true

Akraneskaupstaðar mun lækka fasteignaskatta

Eins og greint var frá á vef Skessuhorns í gær hækkar fasteignamat hvergi meira en á Akranesi, þar sem heildarfasteignamat hækkar um 19,1% en fasteignamat íbúða um 21,8%. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir að Akraneskaupstaður muni lækka álagningaprósentu fasteignaskatta til að tryggja að staðið verði við yfirlýsingu sem gefin var út við gerð…Lesa meira

true

Kristján og Almar sömdu við Skallagrím

Þeir Kristján Örn Ómarsson og Almar Örn Björnsson hafa endurnýjað samninga sína við Körfuknattleiksdeild Skallagríms. Munu þeir leika með meistaraflokki í 1. deildinni næsta vetur. „Báðir eru þeir uppaldir Skallagrímsmenn og hafa tekið góðum framförum á liðnum árum,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu Skallagríms. Kristján og Almar leika báðir stöðu framherja og sömdu báðir til…Lesa meira

true

Hefur róið á móti straumnum allt sitt líf

Veiga Grétarsdóttir, transkona frá Ísafirði, er um þessar mundir að róa á móti straumnum í kringum Ísland á kajak og safnar um leið áheitum fyrir Píeta samtökin. Veiga er fyrsta íslenska konan til að róa kringum Ísland á kajak auk þess sem hún er fyrst allra til að fara hringinn rangsælis. „Ég held að ég…Lesa meira

true

Kaffihúsastemning í Brákarhlíð

Á þriðjudaginn var opnað kaffihús á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Íbúum Brákarhlíðar ásamt gestum og gangandi bauðst að koma á kaffihúsið og eiga huggulega stund í góðum félagsskap og gæða sér á nýuppáhelltu kaffi og dýrindis kræsingum. Í boði voru rjómatertur, bollakökur og vöfflur með sultu og rjóma og var ekki annað að…Lesa meira

true

Leynistaðurinn í Sáinu í Ólafsvík

TheSecretspot eða Leynistaðurinn er matvagn sem staðsettur er á Sáinu í Ólafsvík. Eigendur hans eru þau Kolbrún Þóra Ólafsdóttir og Víðir Haraldsson. Matarvagninn keyptu þau síðasta sumar af vini Víðis sem vantaði að losna við hann. Ákváðu þau að slá til og prófa slíkan rekstur. Þau voru með vagninn á Breiðabliki síðasta sumar og opnuðu…Lesa meira

true

Lagt til að Kaja selji veitingar við Guðlaugu

Bæjarráð Akraneskaupstaðar leggur til að samið verði við Kaju Organic ehf. um veitingasölu í þjónustuhúsi við Guðlaugu við Langasand í sumar. Ráðið samþykkti samstarfssamning milli Akraneskaupstaðar og Kaju organic þess efnis á fundi sínum 31. maí. Um er að ræða tilraunaverkefni sem gildir til 31. ágúst næstkomandi.Lesa meira

true

Margir óku of hratt í umdæminu

Lögreglan á Vesturlandi var við umferðarvöktun í umdæminu síðastliðinn fimmtudag. Farið var með myndavélabíl embættisins á þrjá staði þann daginn. Milli klukkan 15:30 og 16:30 mældi lögregla ökuhraða á Vesturlandsvegi við Breiðavík. Alls fóru 135 ökutæki um svæðið þessa klukkustund og tólf reyndust yfir hámarkshraða eða 9%. Tveir voru kærðir fyrir of hraðan akstur, sá…Lesa meira

true

Þjóðlagatónleikar í Hallgrímskirkju á sunnudag

Tónleikaröð til styrktar Hallgrímskirkju í Saurbæ heldur áfram á sunnudag með tónleikunum Funa. Þar munu Bára Grímsdóttir og Chris Foster flytja þjóðlög frá Íslandi og Englandi. Allur ágóðinn af tónleikunum rennur til viðhalds kirkjunnar og uppbyggingar á staðnum. „Bára Grímsdóttir og Chris Foster hófu samstarf sitt árið 2001. Síðan hafa þau keppst við að blása…Lesa meira

true

Fasteignamat hækkar mest á Akranesi

Mest hækkun á Vesturlandi sé litið til landshlutanna   Fasteignamat íbúða hækkar hvergi meira frá yfirstanandi ári en á Akranesi, eða um 21,8%, samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2020 sem Þjóðskrá Íslands kynnti á miðvikudag. Næstmest hækkar matið í sameinuðu sveitarfélagi Sandgerðis og Garðs (Suðurnesjabæ), eða um 17,7% en um 16,6% í Vestmannaeyjum. Sé litið…Lesa meira

true

Leggja til að nýr leikskóli verði byggður á Akranesi

Skóla- og frístundasvið Akraneskaupstaðar leggur til að byggður verði nýr leikskóli á Akranesi. Tillaga ráðsins byggir á niðurstöðum starfshóps um framtíðarþörf á leikskólaplássi á Akranesi. Skýrsla starfshópsins var lögð fram á fundi skóla- og frístundaráðs í gær. Ráðið leggur einnig til að skoðað verði hvernig bæta megi starfsaðstæður barna og starfsfólk í eldri leikskólabyggingum. „Með…Lesa meira