Fréttir

true

Nýtt Garðasel mun rísa í Skógahverfi fyrir næsta haust

Leikskólinn Garðasel á Akranesi birti í gær tölvugerða mynd af nýjum leikskóla á Facebook síðu sinni. Leikskólinn er hannaður sem sex deilda skóli en með möguleika á stækkun í átta deildir ef þarf. Í tilkynningu með myndinni segir m.a.: „Sérstaklega mikil og góð vinna hefur farið fram um stærð og fyrirkomulag rýma og metnaður í…Lesa meira

true

Norðurál selur Samherja eignir í Helguvík

Norðurál og Samherji fiskeldi, sem er hluti af samstæðu Samherja, hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup Samherja á eignum Norðuráls í Helguvík. Þar stóð sem kunnugt er lengi til að reisa og starfrækja álver. Í Helguvík hyggst Samherji nú kanna möguleika á því að byggja landeldisstöð við eignirnar sem nú standa í víkinni, að því er…Lesa meira

true

Starfsstöð Veitna í byggingu við Lækjarflóa á Akranesi

Framkvæmdir við nýja húsbyggingu Veitna við Lækjarflóa á Akranesi ganga vel. Húsbyggingin sem um ræðir mun hýsa nýja starfsstöð Veitna á Vesturlandi og er hún hluti af svokölluðum viðspyrnuverkefnum fyrirtækisins. „Á stjórnarfundi Veitna 8. apríl síðastliðinn voru samþykktar aðgerðir til að bregðast við þeim afleiðingum sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á atvinnulíf landsins. Veitur ætla…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit hefur ráðið eigin félagsmálafulltrúa

Hún er rótgróin Skagamær sem á rætur að rekja til Hvalfjarðarsveitar. Eftir tæplega sex ára dvöl í Svíþjóð er Sólveig Sigurðardóttir snúin aftur heim til Íslands, nú sem nýr félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar. Sólveig hefur mikla reynslu af störfum í félagsþjónustu og barnavernd. Hún er með MA próf í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og hefur starfað í…Lesa meira

true

88 smit og nýgengi aldrei hærra

Alls greindust 88 ný innanlandssmit kórónuveirunnar í gær, þrátt fyrir að mun færri sýni hafi verið tekin í gær en í fyrradag. Í gær voru tekin 1.815 sýni en þau voru 3.129 á mánudaginn. Helmingur þeirra sem greindist með Covid-19 smit í gær var í sóttkví við greiningu. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smita undanfarna 14…Lesa meira

true

Breyta í átta tíma vaktakerfi í álverinu eigi síðar 1. janúar 2022

Ákveðið hefur verið að koma á átta stunda vaktakerfi í álveri Norðuráls á Grundartanga. Kerfið verður tekið upp eigi síðar en 1. janúar 2022. Verður breyting vaktakerfisins tilkynnt með minnst sex mánaða fyrirvara. Kveðið er á um breytt vaktakerfi í nýjum kjarasamningi starfsmanna Norðuráls sem undirritaður var í gærkveldi. Að sögn Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags…Lesa meira

true

Bjargráðasjóði komið til bjargar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt til að Bjargráðasjóð verði tryggt aukið fjármagni á þessu ári vegna óvenju mikils kals- og girðingatjóns veturinn 2019-2020. Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu ráðherra en vísar málefnum sjóðsins til vinnslu frumvarps til fjáraukalaga 2020.Lesa meira

true

Holufylla og yfirfara vegstikur

Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa nýtt góða veðrið að undanförnu til að skipta um þær stikur sem eru óhreinar eða glitið farið af og rétta við skakkar stikur. Um 13 þúsund vegstikur eru á svæði Vegagerðarinnar á Snæfellsnesi, sem fylgjast þarf með enda mikilvægt að þær sjáist vel þegar skammdegið færist yfir. Þetta eru þó ekki einu…Lesa meira

true

Skrifað undir kjarasamning starfsmanna Norðuráls

Skrifað var undir nýjan kjarasamning milli Verkalýðsfélags Akraness og Norðuráls í gærkvöldi, eftir tíu mánaða samningaviðræður. Nýr kjarasamningur er afturvirkur til ársbyrjunar og munu vaktmenn eiga rétt á greiðslu vegna afturvirkninnar sem nemur 6,9% af heildarlaunum frá 1. janúar síðastliðnum. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir á Facebook-síðu sinni að hann sé afar sáttur með…Lesa meira

true

Uppbygging að hefjast af krafti í Dalbrautarreit

Í lok ágúst voru fyrstu íbúðir við Dalbraut 4 á Akranesi afhendar nýjum eigendum. Húsið er fimm hæða íbúða- og þjónustuhús fyrir eldri borgar og í kjallara eru bílastæði fyrir hverja íbúð. Sala á íbúðum hefur gengið mjög vel, 22 íbúðir eru seldar og aðeins tvær óseldar.  Nú þegar hafa nýir íbúar flutt inn í…Lesa meira