Fréttir

true

Aðeins verði skotið upp í 22 stundir á ári

Sala flugelda verður einungis heimil 30. og 31. desember og 6. janúar ár hvert, samkvæmt drögum að reglugerðarbreytingu sem lögð hafa verið fram í samráðsgátt stjórnvalda. Einungis verður heimilt að skjóta upp flugeldum frá 16:00 á gamlársdag til 02:00 á nýársnótt og á nýársdag og þrettándanum milli 16:00 og 22:00. Þannig yrði heimilt að skjóta…Lesa meira

true

Tvö störf án staðsetningar auglýst í nýju skólaþróunarteymi

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur auglýst eftir tveimur sérfræðingum til starfa í nýju skólaþróunarteymi sem starfa mun þvert á fagskrifstofur menntamála og er einkum ætlað að fylgja eftir áherslum í nýrri menntastefnu til ársins 2030. Athygli vekur að bæði þessi störf eru skilgreind án staðsetningar sem gefur möguleika á því að þau geti verið unnin hvar…Lesa meira

true

Forritaði vefsíðu sem hjálpar prjónafólki með algenga útreikninga

Borgnesingurinn Nanna Einarsdóttir er rafmagnsverkfræðingur að mennt, en er einnig prjónakona. Á meðan samkomubannið var í vor forritaði Nanna vefinn lykkjustund.is. Um er að ræða reiknivél sem Nanna forritaði til að aðstoða prjónafólk með algenga útreikninga tengda prjónaskapnum. Nafn síðunnar kemur frá máltækinu „Drjúg er lykkjustundin“ en það er einmitt tilgangurinn með síðunni – að…Lesa meira

true

81 smit í gær

Alls greindist 81 með kórónuveiruna innanlands í gær, skv. uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim voru aðeins 16 utan sóttkvíar. Alls eru nú 1.170 í einangrun með veiruna og hafa aldrei verið fleiri. 26 liggja á spítala, þrír á gjörgæslu og tveir í öndunarvél. 3.035 manns eru í sóttkví. 18 smit greindust á landamærunum, en…Lesa meira

true

Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar er stofnun ársins

Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar er stofnun ársins 2020 í flokki minni stofnana bæjarfélaga, sem telja 50 starfsmenn eða færri. Valið á stofnun ársins var tilkynnt í gegnum streymi í gær, miðvikudaginn 14. október, en viðurkenningarnar eru veittar stofnunum sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna í könnun Sameykis. Könnunin náði til um tólf þúsund starfsmanna í…Lesa meira

true

Góður frágangur eftir framkvæmdir við hitaveituæð

Undanfarin ár hafa Veitur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, staðið í stórræðum á Vesturlandi. Verið er að endurnýja hitaveituæðina á milli Deildartungu í Reykholtsdal og dælustöðvanna fyrir þéttbýliskarnana Hvanneyri, Borgarnes og Akranes. Alls er lagnaleiðin um 74 kílómetrar. Nú er lokið við endurnýjun á 46,5 km og gert ráð fyrir að framkvæmdirnar standi yfir fram á árið…Lesa meira

true

Vilja friðlýsa leirur Borgarvogs

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt þá tillögu umhverfis- og landbúnaðarnefndar að hafin verði undirbúningur að friðlýsingu leiranna í Borgarvogi vegna mikilvægi svæðisins fyrir fuglalíf. Borgarvogur er allur, ásamt fjörum, á B-hluta náttúruminjaskrár en þar eru leirur og fitjar með miklu fuglalífi. Geta sveitarfélög átt forgöngu um friðlýsingu svæða og hefur sveitarstjórn Borgarbyggðar falið stjórnsýslu- og þjónustusviði…Lesa meira

true

Stefnir að lokun Rifssaums

Rifssaumur í Ólafsvík er í eigu Katrínar Gísladóttur og hefur hún rekið fyrirtækið í ríflega tólf ár. Í verslun sinni selur Katrín garn ásamt flestu sem fylgir prjónaskap. Hún hefur einnig merkt handklæði, sængurföt og ýmislegt fleira ásamt því að bjóða til sölu ýmsa smávöru sem og handverk sem unnið er af heimafólki. Verslunin var…Lesa meira

true

Landsmenn leggja áherslu á aukna velferð umfram skattalækkanir

Íslendingar vilja áfram að Alþingi forgangsraði fjármunum til heilbrigðismála í kórónuveirufaraldrinum sem nú geisar. Þá eykst áhersla landsmanna á að ríkissjóður verji auknu fjármagni í almannatryggingar og velferðarmál, löggæslu og öryggismál. Yfirgnæfandi stuðningur er við að hið opinbera auki útgjöld fremur en að lækka skatta. Þetta er meðal niðurstaðna viðhorfskönnunar sem Gallup framkvæmdi fyrir þingflokk…Lesa meira

true

Jól í skókassa til barna í Úkraínu

Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður með jólagjöfum. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt er með að fari í hvern kassa. Gjafirnar eru sendar til…Lesa meira