Fréttir

true

Aldarminning Guðmundar Runólfssonar birt í Skessuhorni í dag

Síðastliðinn föstudag voru 100 ár frá fæðingu Guðmundar Runólfssonar (f. 9.10.1920 – d. 1.2.2011) skipstjóra og útgerðarmanns í Grundarfirði. Guðmundur er einn af frumkvöðlum Grundarfjarðar og er ævistarf hans samofið uppbyggingu byggðarinnar þar sem stendur með miklum blóma í dag. Guðmundur var gerður að heiðursborgara Grundarfjarðar árið 2010 en með því vildi bæjarstjórn Grundarfjarðar sýna…Lesa meira

true

Nýjar keiluvélar í keilusalinn við Vesturgötu

Guðmundur Sigurðsson hjá Keilufélagi Akraness var önnum kafinn í dag við að koma nýjum keiluvélum fyrir í sal félagsins við Vesturgötu í gær.  Að sögn Guðmundar eru vélarnar frá framleiðandanum AMF og eru samskonar og vélarnar sem eru í Egilshöll.  Þær eru þó heldur færri á Akranesi eða þrjár á móti 22 í Egilshöll en…Lesa meira

true

Fjöregg hlutskarpast um hönnun útsýnisstaðar á Súgandisey

Dómnefnd hefur nú valið og kynnt vinningstillögu í samkeppni um útsýnisstað á Súgandisey við Stykkishólm. Vinningstillagan var unnin af Glámu-Kím og Landslagi í samstarfi við Ólöfu Nordal og Gunnar Karlsson. Tillagan er óhefðbundin útsýnisstaður sem ber heitið Fjöregg. Fjöreggið er útsýnisskúlptúr, útsýnispallur, upplifunar- og áningarstaður allt í senn. Fjöreggið verður sýnilegt frá bænum og því…Lesa meira

true

Ætla að tryggja að slys sem þetta geti ekki komið fyrir aftur

Vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu vill Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, koma því á framfæri að starfsmenn eru harmi slegnir yfir banaslysi sem varð á Kjalarnesi í júnílok – og því að slíkar aðstæður hafi getað skapast við venjubundið viðhald á vegum. „Vegagerðin vinnur nú að umfangsmikilli endurskoðun á öllum ferlum sem lúta…Lesa meira

true

Fækkar í sóttkví og einangrun á Vesturlandi

Í dag, þriðjudaginn 13. október, eru 18 manns í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi og fækkar um tvo frá því sólarhringnum áður. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti nú rétt í þessu. Flestir eru í einangrun á Akranesi eða tíu manns, fjórir í Grundarfirði, þrír í Stykkishólmi og einn í…Lesa meira

true

83 innanlandssmit

Í gær greindust 83 með kórónaveiruna hér innanlands. Af þeim voru 49 í sóttkví við greiningu en 34 ekki. Þrjú smit greindust á landamærunum. Í dag eru 1.071 í einangrun með Covid-19 og hefur fjölgað um 49 frá því í gær. Þá eru 3.436 manns í sóttkví, en voru 4.296 í gær. 22 liggja inni…Lesa meira

true

Búist við minnst 50 milljóna tekjutapi

Gróflega er áætlað að tekjur Grundarfjarðarbæjar á árinu verði að minnsta kosti rúmum 50 milljónum króna lægri en reiknað var með í fjárhagsáætlun, gróflega áætlað. Mestu munar þar um lækkun á áætluðum tekjum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, eða rúmar 30 milljónir króna. Bæjarráð ítrekaði fyrri bókanir sínar og bæjarstjórnar og lýsti yfir vonbrigðum með lækkun tekna…Lesa meira

true

Varað við stormi á Snæfellsnesi

Gefin hefur verið út gul viðvörun á Breiðafirði vegna hvassviðris seinna í dag, milli 14:00 og 19:00. Spáð er suðaustan 15-23 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, með hviðum allt að 40 m/s. Hættuleg akstursskilyrði geta skapast. Annars staðar vaxandi suðaustlæg átt, 8-15 m/s, en hægari vindur og bjart fyrir norðan. Seint í kvöld fer að rigna…Lesa meira

true

Líflegur fasteignamarkaður

Enn er mikið líf á fasteignamarkaðnum á Íslandi og meðalsölutími íbúðarhúsnæðis er stuttur, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þar er litið til fjölda íbúða sem teknar hafa verið úr birtingu hjá fasteignasölum, en það gefur góða vísbendingu um sölu fasteigna nánast í rauntíma. Í september síðastliðnum var metfjöldi eigna…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Dalabyggð seinna í dag

Rafmagnslaust verður frá Hólum í Hvammssveit í Dalabyggð, að og með Langeyjarnesi seinna í dag, þriðjudaginn 13. október. Áætlað er að rafmagn verði úti á þessu svæði í eina klukkustundi, milli 13:30 og 14:30, vegna vinnu við háspennudreifikerfið.Lesa meira