Fréttir

true

Tökur á Vitjunum hefjast brátt í Grundarfirði

Tökur á þáttaröðinni Vitjanir, sem fyrirtækið Glassriver framleiðir, eru að hefjast og munu að miklu leyti fara fram í Grundarfirði á næstu mánuðum. Íbúar í Grundarfirði mega því búast við að sjá kvikmyndagerðarfólk að störfum enda er þetta nokkuð umfangsmikil þáttagerð. Vitjanir, eða Fractures, eru dramaþættir í leikstjórn Evu Sigurðardóttur. Gerast þeir í litlu sjávarþorpi…Lesa meira

true

Sigraðir í höllinni

Káramenn máttu játa sig sigraða gegn Haukum, 1-2, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Akraneshöllinni og öll mörk leiksins litu dagsins ljós í fyrri hálfleik. Gestirnir úr Hafnarfirði voru öflugri í upphafi, pressuðu á Káraliðið og stjórnuðu ferðinni í leiknum. Þeir komust yfir á 24. mínútu þegar…Lesa meira

true

Kynningarátak um að velja íslenskt

„Frá bakara til forritara. Frá forritara til hönnunar. Frá hönnun til bænda. Frá bónda til bakara. Frá þér til þín. Þannig gengur þetta – frá þér til þín í stöðugri hringrás.“ Þetta er á meðal þess sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi,…Lesa meira

true

Norskri skútu komið til bjargar í gærkvöldi

Á níunda tímanum í gærkvöldi fékk sjóbjörgunarhópur Björgunarfélags Akraness útkallsboð. Fara þurfti til aðstoðar áhöfn á norskri skútu sem var í hremmingum á Faxaflóa, um sex sjómílur norðvestur af Akranesi. Það tók einungis tíu mínútur að fullmanna áhöfn á Jóni Gunnlaugssyni, björgunarbáti félagsins, og halda til móts við skútuna. Skútan hafði lent í mótbyr og…Lesa meira

true

Land lögmenn opna lögmannsstofu í Borgarnesi

Lögmennirnir Sverrir Sigurjónsson og Sigurður Jónsson hafa tekið yfir rekstur lögmannsstofu Inga Tryggvasonar, LIT, í Borgarnesi. Munu þeir reka þar lögmannsstofu undir merkinu Land lögmenn. Tóku þeir yfir húsnæði Inga að Borgarbraut 61 í Borgarnesi og mun því skrifstofa þeirra verða á sama stað og skrifstofa Inga var áður. Jafnframt munu þeir sjá um rekstur…Lesa meira

true

Meistaramót FEBBN í pútti 2020

Pútthópur Borgarbyggðar æfði af kappi síðastliðinn vetur og sumar og var vel undirbúinn fyrir keppnistímabilið. En tvö stór mót, Landsmót UMFÍ 50+ sem fara átti fram í Borgarnesi og Íslandsmót 60+ sem vera átti á Ísafirði, voru bæði felld niðir. Því var ákveðið að efna til meistaramóts í fyrsta skipti nú í lok sumars. Leiknar…Lesa meira

true

Netráðstefna um nýtingu félagsheimila á Vesturlandi

Fimmtudaginn 17. september nk. gangast Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fyrir ráðstefnu á netinu þar sem fjallað verður um „aukna nýtingu félagsheimila og menningarhúsa á Vesturlandi fyrir blómlega menningu“. Viðburðinum verður streymt á Facebook og Youtube síðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Á heimasíðu samtakanna verður jafnframt að finna úttekt á öllum félagsheimilum í eigu sveitarfélaga í…Lesa meira

true

Í sveppamó í Laugargerðisskóla

Nú við upphaf skólaársins má segja að blásið hafi verið til sveppahátíðar í Laugargerðisskóla. Veðrið hefur almennt verið gott eftir að skóli var settur í Laugargerði undir lok ágúst og veðrið því verið nýtt til útivistar og sveppaferða. „Við erum búin að vera mikið að sveppast, fórum í eina stóra ferð og svo hafa krakkarnir…Lesa meira

true

Lýsa yfir óvissustigi fjarskiptageirans vegna netárása

CERT-IS netöryggissveitin hefur birt viðvörun vegna yfirstandandi RDoS netáraása á íslensk fyrirtæki. Í frétt Póst- og fjarskiptastofnunar vegna málsins kemur fram að DDoS (Distributed Denial-of-Service) sé tegund af netárás þar sem einstaklingur eða hópur beinir mikilli netumferð inn á netlæga innviði fyrirtækis til að skerða afkastagetu. Umferðin er þá það mikil að netbúnaður hefur ekki…Lesa meira

true

Göngur og réttir fara í hönd

Nú er hafinn sá tími sem bændur og búalið þeirra halda til fjalla, smala og reka fé til rétta. Fyrstu réttir á Vesturlandi voru um síðustu helgi, þegar m.a. var réttað í Hvítársíðu og Kolbeinsstaðarhreppi. Í morgun var réttað í Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal og næstu daga verður víða réttað. Sú breyting er nú, ólíkt öllum…Lesa meira