Fréttir

true

Kennir nú brasilískt jiu-jitsu á Akranesi

Valentin Fels Camilleri kemur frá Frakklandi en flutti til Íslands fyrir fjórum árum til að kenna brasilískt jiu-jitsu hjá Mjölni í Reykjavík. Nú hefur hann flutt á Akranes og byrjaður að þjálfa bæði unglinga og fullorðna. Brasilískt jiu-jitsu er bardagaíþrótt sem á rætur að rekja til brasilísku bræðranna Carlos, Oswaldo, Gastão Jr, George og Hélio…Lesa meira

true

Leikur sér með óljós mörk höggmynda og málverka

Borgnesingurinn og myndlistarmaðurinn Logi Bjarnason opnaði á laugardaginn sýninguna Takk, Vigdís. Sýnt er í galleríinu Midpunkt í Kópavogi. Logi er alinn upp í Borgarnesi og er einn af skipuleggjendum og upphafsmönnum Plan B listahátíðarinanr, sem haldin er þar í bæ ár hvert. Hann flutti heim til Íslands frá Þýskalandi árið 2015 og settist að í…Lesa meira

true

Samþykktu breytingar á skipuriti Borgarbyggðar

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hélt fjarfund síðastliðinn fimmtudag. Þar var á dagskrá umræða um stjórnskipulag sveitarfélagsins. Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri fór á fundinum yfir breytingartillögur að nýju skipuriti sveitarfélagsins. „Skipuritsbreytingarnar eiga að efla starfsemi Ráðhússins og sveitarfélagsins í heild. Breytingarnar fela í megindráttum í sér fjölgun á starfsfólki, þær munu auka ábyrgð starfsfólks, stuðla að meiri gæðum…Lesa meira

true

Kófið og menntakerfið: Opið málþing 10. september

Opið málþing um nám og kennslu á tímum samkomubanns vegna COVID-19 fer fram á morgun, fimmtudaginn fimmtudag, 10. september milli kl. 15-16.30. Að málþinginu standa mennta- og menningarmálaráðuneyti, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga. Málþingið er hið fyrsta í röð viðburða sem haldnir verða haustið 2020 til þess að ræða áskoranir og…Lesa meira

true

Samið um hönnun íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum

Síðastliðinn fimmtudag var skrifað undir samning milli Akraneskaupstaðar og Ask arkitekta um hönnun nýrra íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum. Það voru Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi og Páll Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Ask arktitekta, sem undirrituðu samninginn. Í honum felst hönnun nýrra íþróttamannvirkja að Jaðarsbökkum, sem byggð er á vinnu starfshóps sem hefur unnið að málinu frá 2016.…Lesa meira

true

Skella Hólabúð og 380 Restaurant í lás

Hólabúð og 380 Restaurant á Reykhólum verður lokað varanlega um næstu mánaðamót. Ekki verður mikið um vörupantanir fram að þeim tíma og má því gera ráð fyrir að vöruúrvalið minnki hægt og rólega fram að lokun. „Við munum þó reyna að passa uppá að eiga alltaf þessar helstu nauðsynjavörur þar til við lokum,“ segir Ása…Lesa meira

true

Reykjagarður innkallar kjúkling vegna gruns um salmonellu

Matvælastofnun varar við neyslu á ferskum kjúklingum frá Reykjagarði vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið er að innkalla kjúklinginn. Innköllunin nær eingöngu til eftirfarandi rekjanleikanúmera: 001-20-31-3-07 & 001-20-31-1-13 (Holta-, Kjörfugl og Krónu-kjúklingur) 001-20-31-3-07 & 001-20-31-1-13 (Heill fugl, bringur, lundir, bitar) Dreifing: Iceland verslanir, Hagkaupsverslanir, Krónan, KR Vík, Kjarval, Nettó, Costco, Extra24, Heimkaup, Kf. Skagfirðinga, Bjarnabúð, Kjörbúðin,…Lesa meira

true

Tólf ljóðabækur með nafni sem síðar kemur í ljós

Bókaútgáfan Hólar hefur ákveðið að ráðast í útgáfu á tólf ljóðabókum eftir Bjarna Stefán Konráðsson frá Frostastöðum í Skagafirði. Bjarni segir í samtali við Skessuhorn að bækurnar komi út í tvennu lagi, sex í hvort sinn. „Sex fyrri bækurnar eru komnar út en hinar koma út á næsta ári. Þær heita allar einu orði sem…Lesa meira

true

Ólympíuhlaup ÍSÍ hlaupið í Grundarfirði

Ólympíuhlaup ÍSÍ fór fram í morgun í ágætis veðri í Grundarfirði. Starfsmenn ÍSÍ komu færandi hendi með gjafir fyrir skólann. Þar mátti finna ýmislegt dót sem hvetur til hreyfingar. Lukkudýrið Blossi sá um upphitun fyrir krakkana áður en fulltrúar ÍSÍ ræstu nemendur út. Boðið var upp á fimm og tíu kílómetra hlaupaleiðir fyrir iðkendur í…Lesa meira

true

Tónleikar í Akranesvita á síðum bresks rokktímarits

„Á þessu vírus-slegna sumri frestaðra tónleika og aflýstra hátíða eru fáir staðir í heiminum þar sem enn er flutt lifandi tónlist. En einn þeirra er Akranesviti á vesturströnd Íslands.“ Þannig hefst góður dómur breska rokktímaritsins Classic Rock Magazine um tónleika enska tónlistarmannsins Will Carruthers í Akranesvita í júlí síðastliðnum. Carruthers spilaði þar í tengslum við…Lesa meira