Fréttir

true

Skagamenn töpuðu gegn Stjörnunni

Liðsmenn ÍA máttu sætta sig við tap 1-2 gegn Stjörnunni þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesvelli í gærkvöldi. Eftir jafnan baráttuleik framan af fyrri hálfleik komust Stjörnumenn yfir á 23. mínútu. Þeir áttu hornspyrnu frá vinstir sem Skagamenn skölluðu frá markinu. Boltinn barst utarlega í vítateiginn, hægra…Lesa meira

true

Takk veggjum fjölgað á Vesturlandi

Hvatningarátakið „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar,“ er eins og kunnugt er tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Fyrir 40 árum stigu Íslendingar framfaraskref á heimsvísu og voru til fyrirmyndar með því að verða fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum. Í tilefni þess að Vigdís varð níutíu ára á…Lesa meira

true

Útgáfa Skessuhorns næstu vikurnar

Skessuhorn verður gefið út næstkomandi miðvikudag, 29. júlí. Eftir það fer starfsfólk í viku sumarleyfi og verður skrifstofan lokuð til og með þriðjudeginum 4. ágúst. Ekkert blað kemur því út miðvikudaginn 5. ágúst. Fyrsta tölublað eftir frí kemur út miðvikudaginn 12. ágúst. Ábendingar um fréttir, auglýsingar og aðsendar greinar óskast sem fyrst fyrir útgáfu blaðsins…Lesa meira

true

Brennugjörningur við Norska húsið á morgun

Brennuvargar er félag leirlistarmanna sem sérhæfir sig í brennslu keramiks með lifandi eldi. Á morgun, laugardaginn 25. júlí, ætlar félagið að verða með Skeljahátíð, brennugjörning við Norska húsið í Stykkishólmi frá klukkan 13:00 – 16:00. „Á gjörningnum verður brennt í Rakúofni sem kynntur er með gasi og gefst gestum kostur á að sjá með eigin…Lesa meira

true

Blað brotið í upplýsingagjöf til ferðalanga um Ísland

Vefurinn upplifdu.is opnaður Markaðsstofur landshlutanna ýta í gær úr vör langstærsta samstarfsverkefni sem samtökin hafa ráðist í. „Verkefnið er mikilvægur hlekkur í enduruppbyggingu ferðaþjónustunnar í kjölfar heimsfaraldurs,“ segir í tilkynningu. Samstarfsverkefnið miðar að því að auðvelda og hvetja enn frekar til ferðalaga innanlands. Verkefnið er liður í að auka á dreifingu ferðamanna um landið sem…Lesa meira

true

Fíkniefnaframleiðsla stöðvuð

Lögregla gerði húsleit í húsi í Borgarfirði morgun einn í liðinni viku vegna gruns um framleiðslu fíkniefna. Að sögn lögreglu fundust þar ýmis merki um virka ræktun í húsinu, svo sem afskorningar af kannabisplöntum, spennar fyrir ræktunarlampa, þurrktjöld, áburðarbrúsar, tölvur og ýmislegt fleira. Allt var haldlagt í þágu rannsóknar, að sögn lögreglu. Þrír menn eru…Lesa meira

true

Atvinnuleysi í júní var svipað og undanfarin ár

Hlutfall atvinnulausra í júnímánuði var 3,5% samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Mælt atvinnuleysi lækkaði frá því í maí um 6,4 prósentustig, þegar það mældist 9,9%. „Ef mælingar á atvinnuleysi í júní 2020 eru bornar saman við mælingar í júní frá fyrri árum má sjá að atvinnuleysi nú er svipuð því sem var fyrir ári síðan…Lesa meira

true

Umferðartafir fyrir ofan Borgarnes

Töluverðar umferðartafir eru nú á þjóðvegi 1 fyrir ofan Borgarnes, þar sem hann liggur um gamla Borgarhrepp. Framkvæmdir standa yfir veginum, þar sem unnið er við yfirlögn. Mikil umferð er á þjóðveginum í báðar áttir, fólk á leið í frí með ferðavagna og aðrir vegfarendur. Umferð um framkvæmdasvæðið er stýrt með umferðarljósum.Lesa meira

true

Collective var valin besta heimildamyndin á IceDoc

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Iceland Documentary Film Festival var haldin á Akranesi 15.-19. júlí. Þetta var í annað sinn sem hátíðin er haldin en til hennar var stofnað af þeim Ingibjörgu Halldórsdóttur, Heiðari Mar Björnssyni og Halli Erni Árnasyni. Boðið var upp á fjöldan allan af fjölbreyttum heimildamyndum en auk þess voru kvöldvökur, barnadagskrá, tónlistardagskrá, jóga og…Lesa meira

true

Fastir í á

Franskir ferðamenn lentu í vanda þegar þeir festu bíl sinn í á á Arnarvatnsvegi síðdegis á sunnudag. Kallað var eftir aðstoð frá Björgunarsveitinni Oki til að komast til fólksins. Mikilla tungumálaörðugleika gætti, að sögn lögreglu, og þurfti aðstoð túlks til að halda uppi samskiptum við fólkið. Fólkinu varð ekki meint af og lítið tjón varð…Lesa meira