Fréttir

true

Höfðu ekki þak yfir höfðinu

Undanfarið hafa staðið yfir framkvæmdir á hafnarskúrnum í Grundarfirði en þar var þakið orðið ansi lúið og kominn tími á nauðsynlegar endurbætur. Það er því alveg tilvalið að nota flygildi til að taka mynd af herlegheitunum en ef vel er að gáð má sjá ljósmyndara Skessuhorns og Hafstein Garðarsson hafnarstjóra veifa í átt að flygildinu.…Lesa meira

true

Tilraunaveiðar hafnar í Andakílsá eftir þriggja ára hlé

Nú í vikunni hófust tilraunaveiðar í Andakílsá í Borgarfirði eftir þriggja ára hlé. Ekkert hefur verið veitt í ánni eftir að ríflega 20 þúsund rúmmetrar af aur úr miðlunarlóni Andakílsárvirkjunar var fyrir mistök veitt í ána í maí 2017. Stjórn Veiðifélags Andakílsár hefur í samráði við fiskifræðinga og helstu ráðgjafa tekið ákvörðun um að veitt…Lesa meira

true

Guðmunda verður nýr framkvæmdastjóri ÍA

Guðmunda Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness í stað Hildar Karenar Aðalsteinsdóttur sem hverfur til annarra starfa. Guðmunda kemur til starfa frá Íþróttafélagi Reykjavíkur þar sem hún var verkefnastjóri / framkvæmdastjóri tímabundið en áður starfaði hún sem fjármálastjóri hjá Iðnvélum og sem framkvæmdastjóri Next á Íslandi. Guðmunda hefur lokið MBA gráðu frá Háskóla Íslands…Lesa meira

true

Fimm leikja bann og sekt fyrir rasísk ummæli

Aga- og útskurðarnefnd KSÍ birti í gær úrskurð sinn sinn vegna rasískra ummæla leikmanns Skallagríms í garð leikmanns Berserkja. Féllu þau 10. júlí þegar liðin áttust við í 4. deild karla. Samkvæmt úrskurðinum fær Atli Steinar Ingason, leikmaður Skallagríms, fimm leikja bann sem tekur gildi strax auk þess sem hann verður í banni frá leikvelli…Lesa meira

true

Fólk svari ekki spurningum í svikasímtölum

Lögreglunni á Vesturlandi barst tilkynning skömmu eftir miðnætti þriðjudaginn 14. júlí sl. um svikasímtöl. Hringt hafði verið í tilkynnandann úr leyninúmeri og hann spurður allskyns spurninga. Segir lögreglan mikilvægt að ef fólk fái slík símtöl að svara ekki spurningunum.Lesa meira

true

ÍA konur tapa fyrir toppliðinu

Kvennalið ÍA þurfti að lúta í lægra haldi gegn sterku liði Keflavík þegar liðin mættust í Reykjanesbæ í fimmtu umferð fyrstu deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Skagakonur hafa átt erfitt uppdráttar með að sigla sigrum í höfn það sem af er móti. Fyrir viðureignina voru þær með þrjú jafntefli og einungis einn sigur að…Lesa meira

true

Kynningarmyndband fyrir Hvalfjarðarsveit

Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur í samstarfi við Hrafn Art unnið að gerð kynningarmyndbanda fyrir sveitarfélagið. Fyrra myndbandið var kynningarmyndband fyrir þá sem eru á ferðalagi um Hvalfjarðarsveit og var birt um síðustu mánaðamót. Nú er búið að birta seinna myndbandið sem er kynningarmyndband um hvernig sé að búa í Hvalfjarðarsveit. Sjá myndbandið hér.Lesa meira

true

„Það fer sko enginn óspjallaður frá okkur“

Grundfirðingar hafa í sumar verið duglegir að spjalla og eru fimmtudagskvöld alveg sérstök spjallkvöld þar í bæ. Í byrjun sumars funduðu fjórir spjallarar, þau Olga Aðalsteinsdóttir, Kristín Halla Haraldsdóttir, Lúðvík Karlsson, eða Liston eins og hann er kallaður, og Gunnar Garðarson, með Björgu Ágústsdóttur bæjarstjóra þar sem hún skipaði spjallarana í svokallaða spjallnefnd og hefur…Lesa meira

true

Stefna á að bæta þjóðveginn að Kalmanstungu

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur veitt Vegagerðinni heimild til að undirbúa framkvæmdir við endurbætur þriggja kílómetra vegarkafla á þjóðveginum frá Hvítá ofan við Húsafell og að Kalmanstungu. Vegagerðin áformar að endurbyggja, lagfæra og leggja bundið slitlag á veginn. Verður hann breikkaður í 6,5 metra, styrktur og lagður bundnu slitlagi eins og gert er samkvæmt verklagi við umferðarlitla…Lesa meira