Fréttir

true

Bjóða upp á námskeið í notkun sjókayaka

Síðustu misseri hafa fjölmargir íbúar á Akranesi fjárfest í svokölluðum „sit on top“ kayökum. „Þessir bátar eru mjög hentugir til veiða og styttri ferða á góðum dögum. Okkur finnst við hins vegar ekki sjá notkun á þessum bátum í samræmi við fjölda þeirra. Við viljum fá sem flesta á sjó en grunar að einhverjir séu…Lesa meira

true

Jarðskjálftar á Reykjanesi

Jarðskjálfti að stærð 5,0 á Richterkvarða varð við Fagradalsfjall á Reykjanesi kl. 23:36 í gærkvöldi. Fannst hann mjög víða á suðvestanverðu landinu; á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu, Akranesi og einnig í Borgarnesi. Í kjölfar skjálftans mældust margir eftirskjálftar. Sá stærsti þeirra var 4,6 að stærð, sem mældist korteri fyrir sex í morgun og skömmu fyrir hálf…Lesa meira

true

Stórsigur Kára

Káramenn unnu stórsigur á Víði, 5-0, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var í Akraneshöllinni. Strax á 11. mínútu áttu Káramenn laglega sókn upp vinstri kantinn sem endaði með því að brotið var á Andra Júlíussyni í vítateignum, í þann mund sem hann var að komast í upplagt marktækifæri.…Lesa meira

true

Snæfellingar burstaðir

Snæfellingar fóru enga skemmtireisu til Stokkseyrar síðastliðið föstudagskvöld, þegar þeir mættu liði heimamanna í 4. deild karla í knattspyrnu. Skemmst er frá því að segja að Stokkseyringar burstuðu lið Hólmara og sigruðu með sjö mörkum gegn engu. Jón Jöull Þráinsson kom heimamönnum yfir á 14. mínútu leiksins og Þórhallur Aron Másson bætti öðru marki þeirra…Lesa meira

true

Töpuðu á heimavelli

Víkingur Ó. mátti sætta sig við tap gegn Aftureldingu, 1-3, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var á Ólafsvíkurvelli. Brynjar Kristmundsson stýrði liðinu í leiknum en Guðjón Þórðarson, nýráðinn þjálfari Ólafsvíkinga, fylgdist með úr stúkunni. Hann mun síðan stýra liðinu frá og með næsta leik. En aftur að leik…Lesa meira

true

Skagamenn fengu skell á Víkingsvelli

Skagamenn máttu sækja knöttinn sex sinnum í netið þegar þeir heimsóttu Víking R. í Pepsi Max deildinni í gærkvöldi. Staðan var 2-1 í hálfleik og leikurinn galopinn, en í þeim síðari tóku heimamenn öll völd á vellinum og sigruðu að lokum 6-2. Fyrst dró til tíðinda á 23. mínútu leiksins þegar Víkingur fékk vítaspyrnu eftir…Lesa meira

true

Breytingar hjá réttindagæslu fatlaðs fólks

Halldór Gunnarsson lét af störfum sem yfirmaður réttindagæslumanna 1. júlí síðastliðinn. Hann kom til starfa í velferðarráðuneytinu sem réttindagæslumaður í Reykjavík og á Seltjarnarnesi árið 2011. Það sama ár voru sett lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Í nóvember 2012 tók Halldór við starfi sérfræðings fyrir réttindavakt ráðuneytisins og starfi yfirmanns réttindagæslumanna. „Halldóri er þakkað…Lesa meira

true

Þjóðminjasafn Íslands safnar frásögnum um ísbirni

„Ísbjarnarsögur“ er heiti á nýrri spurningaskrá sem Þjóðminjasafn Íslands sendir út um þessar mundir. Tilgangurinn með henni er að safna minningum fólks um ísbirni með áherslu á að rannsaka ferðir þeirra til Íslands í sögulegu og samtímalegu samhengi. Spurningaskráin er hluti af þriggja ára rannsóknarverkefni sem unnið er í samstarfi íslenskra og alþjóðlegra háskóla og…Lesa meira

true

Guðjón Þórðarson tekinn við þjálfun Víkings Ó.

Guðjón Þórðarson hefur verið ráðinn nýr þjálfari Víkings Ólafsvík. Hann tekur við starfinu af Jóni Páli Pálmasyni sem  vikið var frá störfum í síðustu viku. Guðjón tók formlega við liðinu eftir leik Ólafsvíkinga gegn Aftureldingu á föstudaginn, en Brynjar Kristmundsson stýrði liðinu í þeim leik, sem reyndar fór illa fyrir Víking sem tapaði 3-1 á…Lesa meira

true

Ökumaður tilkynntur til barnaverndar

Að morgni síðasta sunnudags var ökumaður stöðvaður við Baulu. Sá var ekki með ökuskírteini, hvorki hefðbundið eða rafrænt. Má hann búast við 20 þúsund króna sekt fyrir þennan bíltúr. Um er að ræða ökumann undir 18 ára aldri og sendi Lögreglan á Vesturlandi því tilkynningu til barnaverndar vegna málsins.Lesa meira