Fréttir

true

Team Rynkeby hefur ferð sína um landið

Team Rynkeby á Íslandi mun hjóla 850 km í kringum landið á tímabilinu 4.-11. júlí til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna, SKB. Hópurinn mun hjóla fallegar hjólaleiðir í öllum landshlutum. Team Rynkeby er stærsta evrópska góðgerðarverkefnið þar sem þátttakendur hjóla á hverju ári 1200 km leið frá Danmörku til Parísar til styrktar langveikum börnum og fjölskyldum…Lesa meira

true

Eygló Lind 70 ára

Hinn síungi Borgnesingur, Eygló Lind Egilsdóttir, fagnaði 70 árunum síðastliðinn laugardag. Sló hún til heljarinnar veislu í tilefni dagsins. Haldið var opið hús um miðjan dag í Stöðulsholtinu í Borgarnesi hjá dóttur hennar, Sonju Lind, þar sem vinum og fjölskyldu Eyglóar var boðið að þiggja veitingar og samgleðjast með Eygló sem hefur varið stórum hluta…Lesa meira

true

Hleyptu af stað hringferð um landið

Verkefninu Upplifðu Ísland! var nýlega hleypt af stað, en verkefnið er átak sem á að hvetja landsmenn til að ferðast innanlands. Farið verður í fjögurra daga hringferðir umhverfis Ísland í þægilegri smárútu. Gist verður á hótelum Icelandair á Höfn í Hornafirði, Egilsstöðum og á Akureyri. Leiðsögumaður verður með í för og stoppað verður á fjölmörgum…Lesa meira

true

Aldís og Stefán fyrst í mark í Álmanninum

Keppt var í Álmanninum 2020 á Akranesi í gærkvöldi og þau Aldís Birna Róbertsdóttir og Stefán Karl Sævarsson fögnuðu sigri í einstaklingskeppni. Í liðakeppni bar liðið Hrepparar sigur úr býtum. Álmaðurinn er þríþraut þar sem keppt er í hjólreiðum, fjallahlaupi og sjósundi. Hjóluðu keppendur af stað frá íþróttahúsinu við Jaðarsbakka að Akrafjalli. Þá hlupu þau…Lesa meira

true

Nám til stúdentsprófs og garðyrkjufræði

Í síðustu viku var undirritaður endurnýjaður samningur milli Menntaskóla Borgarfjarðar (MB) og Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ). Eldri samningurinn byggði á samstarfi um sameiginlega náttúrufræðibraut með búfræðisviði til stúdentsprófs þar sem nemendur taka fyrstu tvö árin í Menntaskóla Borgarfjarðar og síðari tvö árin á Hvanneyri til búfræðiprófs. Nemendur útskrifast þá eftir fjögurra ára nám með sameiginlega gráðu…Lesa meira

true

Gerðu fýluferð norður

Káramenn þurftu að sætta sig við eins marks tap er þeir heimsóttu Ólafsfirðinga í KF í gærkvöldi í 3. umferð annarrar deildar karla í knattspyrnu. Skagamenn byrjuðu hins vegar betur í leiknum. Þeir skoruðu eina mark fyrri hálfleilks á 17. mínútu. Þar var á ferðinni Jón Vilhelm Ákason. Síðari hálfleikur var áhugaverður en engu líkara…Lesa meira

true

Samdráttur var í útflutningi sjávarafurða í maí

Útflutningsverðmæti sjávarafurða var rúmir 23,7 milljarðar króna í maí, sem er í samræmi við bráðabirgðatölur Hagstofunnar. Þetta er tæplega 16% samdráttur í krónum talið miðað við útflutningsverðmæti sjávarafurða í maí í fyrra. Samdrátturinn er ívið meiri í erlendri mynt, eða rúm 25%, þar sem gengi krónunnar var um 12% veikara nú í maí en í…Lesa meira

true

Ekið á dreng á Akranesi

Ekið var á sjö ára dreng á reiðhjóli á Innnesvegi á Akranesi laust eftir klukkan 18 í gærkvöldi. Drengurinn lenti undir bílnum, en að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi fór betur en á horfðist. Vegfarendur brugðust skjótt við og sá sem kom fyrstur að vettvangi var fljótur að tjakka upp bílinn og ná drengnum undan. Drengurinn…Lesa meira

true

Gera ráð fyrir blæðingum í slitlagi

Einmuna veðurblíða hefur verið síðustu daga og veðurspáin áfram góð. Nú stefnir í stóra ferðahelgi. „Tími framkvæmda á vegakerfinu stendur sem hæst og víða er nýlögð klæðing. Vegna mikilla hita síðustu daga hefur orðið vart við blæðingar í slitlagi en af því getur skapast hætta. Til að bregðast við hafa verið settar upp viðvaranir víða…Lesa meira

true

Gaf fánastöng við Sólmundarhöfða 7

Á þjóðhátíðardaginn var ný fánastöng vígð við fjölbýlishúsið að Sólmundarhöfða 7 við Langasand á Akranesi að viðstöddum íbúum hússins. Fánastöngin er gjöf frá einum íbúa hússins, Guðnýju Jónsdóttur (Níný), til minningar um ömmu hennar sem bjó á einu býlanna sem eitt sinn voru á Sólmundarhöfðanum. Sungin voru viðeigandi ættjarðarlög við þetta tilefni við undirleik Gísla…Lesa meira