Fréttir

true

Þriðja jafnteflið í röð hjá Skagakonum

Kvennalið ÍA í fótbolta gerði jafntefli gegn Hafnarfjarðarliðinu Haukum þegar liðin áttust við í 3. umferð 1. deildar kvenna á Ásvöllum í gærkvöldi. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur. Skagakonur komu beittar til leiks og gáfu tóninn strax á 6. mínútu. ÍA fékk hornspyrnu sem Haukastúlkum mistókst að hreinsa frá með þeim afleiðingum að knötturinn fór…Lesa meira

true

Barinn Útgerðin hefur verið opnaður á Akranesi

Barinn Útgerðin var opnaður á Akranesi í gær. Hann er til húsa við Stillholt 16-18, þar sem Svarti Pétur var áður. Búið er að taka húsnæðið allt í gegn og setja upp nýjar innréttingar og stækka staðinn. Eva Maren Guðmundsdóttir er rekstrarstjóri Útgerðarinnar og í forsvari fyrir lítinn hóp innfæddra Skagamanna sem fjárfest hafa í…Lesa meira

true

Þróunarfélag stofnað á Breiðinni á Akranesi

Í gær var skrifað undir tímamóta samkomulag sautján fyrirtækja og stofnana um stofnun sameiginlegs þróunarfélags á Breiðinni á Akranesi. Svæðið sem um ræðir nær yfir tíu hektara að flatarmáli, allt frá fyrrum fiskvinnsluhúsi og skrifstofum HB Granda, síðar Brims, við Bárugötu og vestur um að Akranesvita sem stendur yst á Breiðinni. Verkefnið er að forgöngu…Lesa meira

true

Hefur gert nokkrar lokagreiðslur

Ingileif Aðalheiður Gunnarsdóttir hárgreiðslukona í Borgnarnesi er í viðtali í Skessuhorni vikunnar. Þar segir hún meðal annars frá því að hún hafi átt suma viðskiptavinina í fjölmörg ár og jafnvel fylgt þeim til hinstu hvílu. „Ég man þegar ég var stödd eitt sinn á Spáni í fríi og fékk símhringingu. „Heyrðu, mamma er dáin, hún…Lesa meira

true

Soffía III hefur nú hitt að nýju eldri systur sína

Nýverið fóru fjórir Borgfirðingar norður í Skagafjörð og sóttu tæplega fimmtíu ára rútu sem þar hefur lengi verið staðsett í suðurhlíðum Öxnadalsheiðar. Upphaflega var byggt yfir þennan bíl á Bifreiðaverkstæði Guðmundar Kjerúlf veturinn 1972-73 og fékk nafnið Soffía III, tók 35 farþega og bar skrásetningarnúmerið M-719. Lengi framan af þjónaði bíllinn sem skólabíll fyrir Barnaskólann…Lesa meira

true

Hafa enduropnað tjaldsvæðið í Fossatúni og aukið fjölbreytni í rekstri

Tjaldsvæðið í Fossatúni í Borgarfirði hefur nú verið enduropnað eftir að því var lokað fyrir fimm árum. Þá hefur Tröllagarðurinn verið lagfærður mikið og byrjað að selja aðgang í hann. Að sögn Steinars Berg er þessi viðbót tjaldsvæðisins og Tröllagarðsins við veitingahúsið og hina fjölbreyttu gistiaðstöðu á svæðinu, þ.e. svefnpokagisting, gistiheimili, smáhýsi og hótelgisting að…Lesa meira

true

Skógarbændur á Vesturlandi komu saman í Ferstikluskógi

Áralöng hefð er fyrir því að félagsmenn í Félagi skógarbænda á Vesturlandi komi saman einu sinni að sumri. Valinn er ræktarlegur skógur á starfssvæðinu og gestgjafi leiðir síðan áhugasama ræktendur um skóginn sinn. Að þessu sinni var komið að heimsókn að Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd og var skógargangan þar á þriðjudaginn í liðinni viku. Þar hefur…Lesa meira

true

Landbúnaðarháskóli Íslands hlýtur jafnlaunavottun

Landbúnaðarháskóli Íslands hlaut nýverið formlega vottun um að háskólinn starfræki launakerfi sem stenst kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST-85. Jafnlaunakerfi Landbúnaðarháskóla Íslands nær til allra starfsmanna skólans. Kerfið er samansafn af ferlum, launaviðmiðum, skjölun, verklagi og fleiru til að tryggja að málsmeðferð og ákvarðanataka í launamálum feli ekki í sér kynbundna mismunun. Ragnheiður I Þórarinsdottir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands…Lesa meira

true

Írskir dagar hafnir

Írskir dagar eru hafnir á Akranesi en fyrsti viðburðurinn var kyrrðar- og slökunarflot í Guðlaugu í gærkvöldi. Þar tók Hildur Karen Aðalsteinsdóttir á móti fólki í slökun. Formleg setningarathöfn hefst nú innan skamms, klukkan 14, í skrúðgarðinum við Suðurgötu. Þar verða leikskólabörn á Akranesi auk þeirra Gunni og Felix sem ætla að skemmta gestum. Eftir…Lesa meira

true

Fiskeldisafurðir vaxandi í útflutningi

Útflutningsverðmæti fiskeldisafurða var 11,6 milljarðar króna á fyrstu fimm mánuðum ársins. Hefur það aldrei áður verið meira, í krónum talið, á þessu tímabili. Á sama tímabili í fyrra höfðu verið fluttar út eldisafurðir fyrir rúma 10,9 milljarða króna, sem þá var met. Er því um að ræða tæplega 6% aukningu í krónum talið. Sömu sögu…Lesa meira