Fréttir

true

Kattakvef að ganga

Undanfarið hefur nokkuð borið á umræðu um smit af svokölluðu kattarcaliciveiru í hreinræktuðum köttum. Matvælastofnun vill af því tilefni koma á framfæri upplýsingum um þennan veirusjúkdóm, sem stundum kallast á íslensku kattakvef: “Kattarcaliciveiran (Feline Calici Virus, FCV) hefur verið þekkt í tugi ára, m.a. á Íslandi. Bólusett hefur verið hér á landi frá 1986 gegn…Lesa meira

true

Atvinnuleysi var 9,9% í maí

Samkvæmt vinnumarkaðsrannskókn Hagstofu Íslands var atvinnuleysi hér á landi 9,9% í maí. Það er 3,9 prósentustigum hærra hlutfall en í sama mánuði 2019 og 6,9% hærra en í maí 2018. Fara þarf allt aftur til 2009-2011 til að finna svipað mánaðarlegt atvinnuleysi að vori. Aukið atvinnuleysi á vormánuðum er einkennandi fyrir íslenskan vinnumarkað og er…Lesa meira

true

Skimunargjald á landamærum ákveðið

Miðvikudaginn 1. júlí hefst gjaldtaka af komufarþegum vegna skimunar fyrir COVID-19 á landamærum. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gjaldið verði 11.000 kr. ef greitt er á staðnum en 9.000 kr. ef greitt er fyrirfram. Þetta er nokkru lægra gjald en upphaflega var áætlað samkvæmt kostnaðarmati. „Nýtt mat byggt á fenginni reynslu og breyttum forsendum leiðir í…Lesa meira

true

Skotthúfan 2020 verður í Stykkishólmi 4. júlí

Laugardaginn 4. júlí n.k. fer fram þjóðbúningahátíðin Skotthúfan í Stykkishólmi. Hátíðin hefur fest sig í sessi og setur hún fagran brag á annars fallegan bæ þegar áhugafólk af öllu landinu heimsækir Stykkishólm í sínu fínasta pússi. Byggðasafn Snæfellinga- og Hnappdæla hefur veg og vanda að hátíðinni og hefur fóstrað hana frá fyrstu tíð í Norska…Lesa meira

true

Metþátttaka var í Snæfellsjökulshlaupinu

Snæfellsjökulshlaupið fór fram í tíunda skiptið í gær. Var hlaupið frá Arnarstapa yfir Jökulháls til Ólafsvíkur. Þetta er um 22 kílómetrar og er erfið hlaupaleið á köflum, þar sem hlaupið er upp brekkur og um snjóalög. Keppendur voru að þessu sinni 270 sem er metþátttaka. Hjónin Fannar Baldursson og Rán Kristinsdóttir hafa haldið utan um…Lesa meira

true

Guðni Th Jóhannesson endurkjörinn forseti Íslands

Þjóðin gekk til kosinga í gær og kaus sér forseta lýðveldisins næstu fjögur árin. Einmuna veðurblíða einkenndi kosningadaginn og margir því í hátíðarskapi þegar þeir nýttu sér hinn æðsta rétt sem þegnum í lýðræðisríki er veittur. Niðurstaða kosninganna var afgerandi. Guðni Th Jóhannesson var endurkjörinn forseti Íslands. Hlaut hann 92,2% greiddra atkvæða, en áskorandinn Guðmundur…Lesa meira

true

Þjóðin kýs í dag

Í dag kýs íslenska þjóðin forseta lýðveldisins til næstu fjögurra ára. Tveir eru í kjöri; Guðmundur Franklín Jónsson viðskiptafræðingur og Guðni Th Jóhannesson sagnfræðingur og forseti. Líkt og ætíð í kosningum í lýðræðissamfélagi eru landsmenn hvattir til að nýta sér kosningaréttinn. Gleðilegan kjördag!Lesa meira

true

Borgfirðingabók er komin út

Í síðustu viku kom út Borgfirðingabók, ársrit Sögufélags Borgarfjarðar, og vinna félagar nú að dreifingu hennar til áskrifenda. Meðfylgjandi texti er formáli bókarinnar: „Segja má að okkur Íslendingum sé mikil og sérstæð ábyrgð á hendur falin um allt það, er lýtur að gæzlu þjóðlegra fræða,” ritar Guðmundur Böðvarsson í formála að Borgfirzkum æviskrám. Hefur þetta…Lesa meira

true

Þrjátíu þúsund hafa sótt Ferðagjöfina

Nú hafa yfir þrjátíu þúsund einstaklingar sótt Ferðagjöfina sína, 5000 krónur, sem hægt er að nota hjá um 600 ferðaþjónustufyrirtækjum hér á landi. Allir einstaklingar 18 ára og eldri með lögheimili á Íslandi fá Ferðagjöfina. „Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar kórónuveirufaraldurs og efla þannig íslenska ferðaþjónustu…Lesa meira

true

Styrkja undirstöður Kolgrafafjarðarbrúar

Verktakar vinna nú hörðum höndum við að flytja efni úr malarnámunni í Gröf í Grundarfirði og inneftir í Kolgrafafjörð. Þar er efninu svo sturtað niður með brúarstöplunum til að styrkja undirstöðurnar. Svipuð framkvæmd var árið 2017 en nú virðist töluvert grófara efni vera sett niður. Stefnt er á að setja rúmlega þrjú þúsund rúmmetra af…Lesa meira