Fréttir

true

Sjö í sóttkví á Vesturlandi

Nú hefur smituðum af Covid-19 fjölgað að nýju eftir að landið var opnað að nýju 15. júní síðastliðinn. 12 virk smit eru í landinu og 443 í sóttkví af þeim sökum. Hér á Vesturlandi eru nú sjö manns í sóttkví samkvæmt nýjum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Fimm þeirra eru á svæði Heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi,…Lesa meira

true

Púttað í veðurblíðunni

Í dag er fyrsta af þremur mótum sumarsins haldið sem félag eldri borgara á Akranesi og í Borgarbyggð spila sín á milli í sumar. Seinni mótsdagarnir verða í Nesi í júlí og Borgarnesi í ágúst. Fimmtíu manna hópur kom saman eftir hádegið á púttvellinum við Garðavöll. Lýkur keppni síðdegis. Veðrið lék við fólkið, en 23…Lesa meira

true

Spilar í Einkunnum og á Hvanneyri í tónleikaferð sinni

Reynir Hauksson gítarleikari verður með tónleika í Einkunnum við Borgarnes fimmtudaginn 2. júlí klukkan 17 og svo aðra tónleika á Hvanneyri Pub föstudaginn 17. júlí klukkan 21. Tónleikar þessir marka upphaf og endi ellefu tónleika ferðar sem Reynir fer um landið í þessari ferð sinni. Á tónleikunum spilar hann lög af nýútkominni plötu sinni og…Lesa meira

true

Vesturlandsvegi lokað um tíma í dag vegna framhaldsrannsóknar

Hluta Vesturlandsvegar verður lokað klukkan 13 í dag, mánudaginn 29. júní, í þágu framhaldsrannsóknar vegna banaslyss, sem varð norðan Grundarhverfis í gær. Áætlar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að rannsóknin taki 1-2 klukkustundir. Um er að ræða vegarkaflann á milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarvegar. Lokunin hefur ekki áhrif á umferð til og frá Grundarhverfi frá höfuðborgarsvæðinu, en vegna…Lesa meira

true

Sumarmót eldri borgara í pútti að hefjast

Baráttan milli Akurnesinga og Borgarbyggðar í pútti eldri borgara hefst í dag. Um er að ræða þriggja daga mót félaganna, sem fer milli golfvalla á svæðinu. Í dag klukkan 13.30 hefst keppni á Akranesi. Annar keppnisdagur verður á Reykholtsdalsvelli í Nesi 21. júlí en mótið endar síðan á Hamri við Borgarnesi 13. ágúst.Lesa meira

true

Hlýindi um suðvestanvert landið í dag

Veðurstofan reiknar með sólríku og hlýju veðri á suðvestanverðu landinu í dag. Hitinn gæti farið á þriðja tug gráða hér um vestanvert landið. Á meðfylgjandi hitamynd frá Veðurstofunni táknar fjölublái liturinn hita yfir 20 stig. Spáð er norðaustan 5-15 m/s vindi í dag, en hvassst verður við suðausturströndina og norðvestanlands. Víða bjart veður á vesturhelmingi…Lesa meira

true

Jafntefli í fyrsta heimaleik Skagakvenna

Kvennalið ÍA spilaði sinn fyrsta heimaleik í Lengjudeildinni, fyrstu deild kvenna, á tímabilinu síðastliðinn föstudag. Liðið tók á móti Gróttu frá Seltjarnarnesi í annarri umferð. Liðin skildu jöfn. Fyrsta markið kom snemma leiks, eða á 16. mínútu og áttu gestirnir það. Þar var á ferðinni Rakel Lóa Brynjarsdóttir fyrir Gróttu sem leiddu með einu marki…Lesa meira

true

Tveir létust í umferðarslysi á Kjalarnesi

Banaslys varð á Kjalarnesi laust eftir klukkan þrjú í gær. Tveir létust þegar bifhjól og húsbíll sem komu úr gagnstæðri átt rákust saman. Þeir sem létust voru báðir á bifhjólinu; ökumaður og farþegi. Ökumaður annars bifhjóls sem kom aðvífandi missti stjórn á hjóli sínu og féll af því. Sá var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar…Lesa meira

true

Kjöldregnir á heimavelli

Víkingur Ó. þurfti að játa sig sigraðan þegar Keflvíkingar unnu sannfærandi sigur á Ólafsvíkurvelli í 2. umferð fyrstu deildar karla í knattspyrnu í gærkveldi. Bæði lið höfðu unnið sína leiki í fyrstu umferð og mátti því búast við hörku leik. Leikurinn fór hægt af stað en það voru gestirnir sem reyndust sprækari á upphafs mínútunum.…Lesa meira

true

Íslandsmeistararnir höfðu betur

Íslandsmeistararnir í KR gerðu góða ferð á Skagann þegar þeir unnu ÍA í 3. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi í fjörugum leik á Akranesvelli. Öll mörkin komu snemma í seinni hálfleik þrátt fyrir góð færi frá báðum liðum í þeim fyrri. Fyrsta markið kom frá heimamönnum á 48. mínútu. Þeir gulklæddu áttu skyndisókn…Lesa meira