Fréttir

true

Útskrift úr Leikskólanum í Stykkishólmi

Það er stór stund bæði fyrir foreldra og nemendur þegar einu skólastigi lýkur og spennublandin tilhlökkun fyrir því sem tekur við í nýjum skóla. Á dögunum fór fram formleg útskrift úr Leikskólanum í Stykkishólmi. Vegna samkomubanns og tilmæla um að halda fjarlægð var útskriftin að þessu sinni í Stykkishólmskirkju þar sem hátt er til lofts…Lesa meira

true

Ræða aukið samstarf safnafólks á Vesturlandi

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa á föstudaginn fyrir vefráðstefnu um aukið samstarf safna í landshlutanum. Ráðstefnan hefst á fræðsluerindum um safnastarf og starf safna á landsbyggðinni, en seinni hluti ráðstefnunnar er málþing safnafólks, starfsmanna menningarverkefna sveitarfélaganna og nefndarmanna menningarmálanefnda á Vesturlandi. Fræðsluerindin eru öllum opin og verða streymt á Facebook síðu SSV úr Safnahúsi Borgarfjarðar.…Lesa meira

true

Breytingar á reglum um komur ferðamanna til Íslands

Breytingar verða á reglum um komur ferðamanna til Íslands frá og með 15. júní næstkomandi. Er það í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Katrín Jakobsdóttir og þríeykið svokallaða kynntu væntanlegar breytingar á blaðamannafundi í dag. Fram kom að farið verður af stað með ýtrustu aðgát. Meginbreytingin er sú að farþegum, bæði þeim sem hér eru búsettir,…Lesa meira

true

Vegagerð fjárfesta þriðjungi dýrari en hjá ríkissjóði

Samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiðaeigenda er 33% dýrara að fela fjárfestum að sjá um vegaframkvæmdir heldur en ríkinu. Munurinn felst í hærri fjármagnskostnaði einkafjárfesta og kostnaði við innheimtu vegtolla. „Vegna þessa hærri kostnaðar hefur FÍB lýst sig andsnúið frumvarpi samgönguráðherra um samvinnuverkefni í vegaframkvæmdum. Þar er gert ráð fyrir að einkaaðilar annist flýtiframkvæmdir í vegagerð…Lesa meira

true

ASÍ krefst hækkunar atvinnuleysisbóta

Alþýðusambandið hefur um nokkurra missera skeið lagt áherslu á að lögin um atvinnuleysistryggingar verði endurskoðuð í heild sinni. „Sú afstaða byggir annars vegar á þeim breytingum sem orðið hafa og eru að verða á vinnumarkaði og skipulagi vinnunnar og hins vegar á þeirri skoðun að mikilvægt sé að fólk í atvinnuleit hafi geti nýtt þann…Lesa meira

true

Bikarkeppni Vesturlands framundan

Bikarkeppni Vesturlands – gæðingakeppni, verður haldin á félagssvæði Borgfirðings dagana 13.-14. júní næstkomandi. Er keppnin lokuð öðrum en félögum í hestamannafélögum á Vesturlandi; Dreyra, Borgfirðingi, Glaði og Snæfellingi. Mótið er jafnframt gæðingakeppni Borgfirðings, Snæfellings og Dreyra. Keppt verður í eftirtöldum greinum og flokkum: A flokkur gæðinga – 1. flokkur A flokkur gæðinga – 2. flokkur…Lesa meira

true

Settist að í Ólafsvík og líkar vel að búa á Íslandi

Andrzej Kowalcyk er einn þeirra fjölmörgu Pólverja sem setja svip sinn á Snæfellsbæ. Hann er frá bænum Dudki sem er norðuraustarlega í heimalandi hans. Aðspurður um hvernig hafi staðið á því að hann ákvað að koma til Íslands segir hann að einn af hans vinum hafi verið að vinna á Íslandi og að það hafi…Lesa meira

true

Stórsigur í bikarnum

Skagakonur unnu stórsigur á Hamri, 0-8, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Hveragerði í gær. Þess má geta að leikurinn var fyrsti formlegi keppnisleikurinn sem Hamar leikur í meistaraflokki kvenna. Eins og lokatölurnar benda til voru yfirburðir ÍA algjörir í leiknum. Skagakonur réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og…Lesa meira

true

„Mikilvægt að bera virðingu fyrir sjónum“

Eskey ÓF er 27 brúttótonna króaaaflamarksbátur sem gerður er út frá Akranesi á vorvertíðinni og eitthvað fram á sumarið. EskeyÓF er í eigu Bjarna Bragasonar útgerðarmanns frá Hornafirði en Þráinn Þór Þórarinsson er skipstjóri á bátnum árið um kring. „Pabbi var sjómaður alla sína tíð og ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að ég…Lesa meira

true

Stofnvísitala þorsks lækkar lítillega

Stofnvísitala þorsks er um 6% lægri en síðastliðin þrjú ár, en hún hefur verið há frá árinu 2011 eftir að hafa verið í lágmarki frá 2002-2006. Rekja má lækkun stofnvísitölunnar til þess að árgangur sjö ára þorsks er lítill og minna fékkst af átta ára fiski, að því er fram kemur í niðurstöðum netaralls Hafró.…Lesa meira