
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur sett Þórunni Önnu Árnadóttur í embætti forstjóra Neytendastofu. Setning Þórunnar í embætti gildir frá 1. júlí næstkomandi til áramóta. Þórunn er lögfræðingur að mennt og hefur starfað hjá Neytendastofu um 13 ára skeið, þar sem hún gegnir starfi sviðsstjóra neytendaréttarsviðs auk þess að vera staðgengill forstjóra.…Lesa meira








