Fréttir

true

Hreinsuðu umhverfi Hyrnutorgs í Borgarnesi

Starfsmenn í Hyrnutorgi í Borgarnesi tóku sig saman í gærkvöldi eftir lokun verslana og hreinsuðu umhverfi verslanamiðstöðvarinnar. Alls voru 17 vaskir starfsmenn sem íbúar þekkja best bakvið búðarborðið t.d. í apótekinu, tískuverslunum eða Nettó sem fegruðu nærumhverfi Hyrnutorgs. Það var tínt rusl, gróður var fjarlægður og stéttar og bílastæði sópuð. Starfsfólkið tók þetta upp að…Lesa meira

true

Rætt um menntunarþörf fyrir störf framtíðarinnar

Menntaskóli Borgarfjarðar, með stuðningi frá Sóknaráætlun Vesturlands, hélt í gærmorgun stafræna ráðstefnu með yfirskriftinni Menntun fyrir störf framtíðarinnar. Tilgangur ráðstefnunnar var að undirbúa skóla, fyrirtæki, nemendur og atvinnumarkaðinn fyrir þær breytingar sem eiga sér stað í samfélaginu samhliða tækniþróun sem er að eiga sér stað. „Menntaskóli Borgarfjarðar hefur frá upphafi viljað fara ótroðnar slóðir og…Lesa meira

true

ASÍ sendir frá sér yfirlýsingu vegna frétta um Icelandair

Alþýðusamband Íslands mótmælir í yfirlýsingu harðlega því sem lýst er í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í dag sem hugsanlegum viðbrögðum Icelandair í kjaradeilu félagsins við Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ). Í báðum tilvikum er vísað til heimilda innan Icelandair. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins skoðar Icelandair möguleika á að stofna nýtt stéttarfélag flugfreyja og samkvæmt Fréttablaðinu hyggst Icelandair láta reyna…Lesa meira

true

Bláfáninn blaktir við Langasand

Nú í morgun var Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á Akranesi. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að verndun á lífríki haf- og starndsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er þannig tákn um…Lesa meira

true

Brauð laust í Borgarfirði

Töluverðar mannabreytingar eru nú framundan í stétt presta í Borgarfirði. Biskup Íslands auglýsti nýverið laust til umsóknar embætti sóknarprests í Stafholtsprestakalli. Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir var fyrir réttu ári ráðin sóknarprestur Stafholtsprestakalls tímabundið til eins árs. Umsóknarfrestur um starfið er til og með 2. júní næstkomandi. En það er víðar en í Stafholti sem breytingar…Lesa meira

true

Byrjað er að sekta fyrir nagladekk

Eins og kunnugt er mega bílar ekki vera búnir nagnadekkjum í umferðinni frá 14. apríl til 1. nóvember ár hvert. Þó hefur lögregla horft í gegnum fingur sér með notkun þeirra á vorin, einkum á landsbyggðinni þar sem allrar færðar er von eftir miðjan apríl. Nú hefur Lögreglan á Vesturlandi gefið það út að frá…Lesa meira

true

Stigamótaröð GSÍ hefst á Garðavelli um helgina – bestu kylfingar landsins væntanlegir

Fyrsta mótið á stigamótaröð Golfsambands Íslands þetta sumarið verður leikið á Garðavelli á Akranesi dagana 22.-24. maí næstkomandi. Keppt verður í höggleik flokki karla og kvenna, 18 holur leiknar hvern dag en niðurskurður eftir annan hring. Það er Golfklúbburinn Leynir sem er mótshaldari. Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri klúbbsins, á von á sterku móti um helgina. „Allir…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við golfvöllinn í Rifi

Félagar í Golfklúbbnum Jökli hófust handa við gerð nýs níu golfvallar í Rifi í síðustu viku. Byrjað var á að móta flatir og sá í þær. Jón Bjarki Jónatansson, formaður golfklúbbsins, segir að framkvæmdir fari vel af stað. „Við erum búnir að móta þrjár flatir og verðum í því í sumar að móta flatir og…Lesa meira

true

Breyttur afgreiðslutími Arion banka í landshlutanum

Nýlega var auglýstur breyttur afgreiðslutími í útibúum Arion banka á Vesturlandi, sem tók gildi 12. maí síðastliðinn. Þar kemur fram að í Búðardal verði opið frá 10-14 þriðjudaga og miðvikudaga og en alla virka daga frá 12:30-16 í Borgarnesi og Stykkishólmi. Áður en samkomubann tók gildi var opið alla virka daga frá kl. 9-16 í…Lesa meira

true

Kaldavatnslaust í hluta Búðardals á morgun

Vegna tengivinnu er áformað að loka fyrir kalt vatn tímabundið í suðurhluta Búðardals á morgun, miðvikudaginn 20. maí. Hefur þetta áhrif á öll íbúðarhús við Brekku-, Bakka- og Lækjarhvamm, auk húsa 1-9 við Stekkjarhvamm. Skrúfað verður fyrir vatnið um kl. 9:30 og vonast er til þess að þrýstingur komist á að nýju um hádegið, að…Lesa meira