Fréttir

true

Endurnýjun leigusamnings um Mið-Fossa og skoða kaup

Undanfarin fjórtán ár hefur Landbúnaðarháskóli Íslands leigt reiðhöll og tengda aðstöðu að Mið-Fossum í Andakíl til kennslu í reiðmennsku og umhirðu hrossa. Mannvirkin eru öll í eigu Ingimundar hf., fjölskyldu Ármanns Ármannssonar heitins. „Aðstaðan á Mið-Fossum hentar Landbúnaðarháskólanum einstaklega vel og staðsetningin er ákjósanleg. Umgjörðin er góð og býður upp á einstaka möguleika til útrásar…Lesa meira

true

Fimm daga vefkönnun um hönnun ferðaleiðar um Borgarfjörð

Vinna er hafin á vegum Markaðsstofu Vesturlands við gerð ferðaleiðar um Borgarfjörð. „Nú köllum við eftir þátttöku íbúa, fyrirtækja og velunnara svæðisins í þessari fyrstu spurningakönnun sem send er út um svæðið sem ferðaleiðin tengist. Tilgangur þessarar könnunar er að fanga anda Borgarfjarðar og finna sérstöðu hans og einkenni. Á þeim gögnum sem safnast í…Lesa meira

true

Snæfellsbær hyggst fjölga sumarstörfum

Í ljósi atvinnuástands í samfélaginu vegna Covid-19 faraldursins hefur Snæfellsbær ákveðið að fjölga sumarstörfum hjá bæjarfélaginu verulega á sumri komanda. Undanfarin ár hefur bæjarfélagið ráðið á bilinu 16 til 20 ungmenni til að sinna ýmsum verkefnum sem til falla á sumrin, svo sem flokksstjórn í vinnuskóla og aðra sumarvinnu. En í ljósi atvinnuástands ungs fólks…Lesa meira

true

Skakkur við Borg á Mýrum

Ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Snæfellsnesvegi við Borg á Mýrum seint á laugardagskvöld, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn viðurkenndi neyslu og veitti sýni, sem gaf jákvæða svörun við neyslu kannabisefna. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann heimilaði leit í bíl og þar fundust pokar með ætluðum kannabisefnum.Lesa meira

true

„Það ætla allir að hjóla í sumar“

Axel Gústafsson situr ekki auðum höndum þessa dagana en langt er síðan svo mikið hefur verið að gera í búðinni hjá honum, Axelsbúð á Akranesi. Axelsbúð er með reiðhjól, hjólavörur og ýmsar veiðivörur auk þess sem Axel gerir við reiðhjól. „Það er mikið meira að gera núna en síðustu ár,“ segir Axel þegar blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Mynduðu hjarta við Fellaskjól

Nemendur í Grunnskóla Grundarfjarðar, Eldhömrum og leikskólanum Sólvöllum tóku sig til og mynduðu hjarta fyrir utan Dvalarheimilið Fellaskjól í síðustu viku. Nú þegar samkomubanni hefur verið aflétt og skólahald komist í réttar skorður þá var nemendum hugsað til heimilismanna á dvalarheimilinu sem enn þurfa að vera svolítið einangruð. Því vildu krakkarnir mynda þennan gjörning til…Lesa meira

true

Frjáls eins og fuglinn í nýrri útgafu

„Frjáls eins og fuglinn“ er mynda- og minningabók Mats Wibe Lund ljósmyndara. Bókin er nú komin út í nýrri útgáfu þar sem Mats hefur bætt við fjölda mynda og sett inn nafnaskrá sem vantaði í frúmútgáfu bókarinnar. Mats Wibe Lund er þekktur fyrir átthagamyndir sínar sem skreyta heimili, fyrirtæki og stofnanir um land allt. Myndirnar…Lesa meira

true

Slökkviliðið kallað að járnblendinu

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað að járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga á fjórða tímanum í dag. Enginn opinn eldur kviknaði en reykur braust út. „Það var enginn eldur en það myndaðist ákveðið hættuástand. Við erum búnir að tryggja það og ástandið er stöðugt,“ segir Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri í samtali við Skessuhorn. „Skaut brotnaði á…Lesa meira

true

Stefnt að opnun Krambúðar í Búðardal á morgun

Þessa dagana standa yfir breytingar á versluninni í Búðardal og stefnt er að því að opna þar Krambúð á morgun, föstudaginn 15. maí. Frá því í október 2017 hafa Samkaup rekið verslun í Búðardal undir merkjum Kjörbúðarinnar, en áður var rekin þar verslun Samkaup Strax. „Nú horfum við fram á mikla óvissu og aljörlega óvíst…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður ætlar að verða Barnvænt sveitarfélag

Akraneskaupstaður bættist í dag í ört stækkandi hóp sveitarfélaga hér á landi sem hefja nú vinnu við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu sína. Það er gert með stuðningi félagsmálaráðuneytisins og UNICEF á Íslandi. Það voru Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraneskaupstaðar,…Lesa meira